Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1964, Blaðsíða 96
1964
— 94
fengu 19 manns kemóþerapíu, sem ekki höfðu nein einkenni um virka
berklaveiki, en voru nú Mantoux-pósitivir, en höfðu verið neikvæðir
áður, og var þar um nýsmitun að ræða (X). Eins og sjá má af berkla-
skýrslu, var óvenjulega mikið um berklapróf og gegnumlýsingar á
þessu ári, og er það allt vegna hins mikla berklafaraldurs í sambandi
við X, sem olli þessum faraldri, enda rannsökuð heil bæjarhverfi, og
voru gerðar yfir eitt þúsund gegnumlýsingar eingöngu af þessum sök-
um og einnig milli 2—3 þúsund berklapróf af sömu sökum. Þessi
berklafaraldur er sá langstærsti og umfangsmesti þau 28 ár, sem ég
hef verið hér héraðslæknir. Ég tel, að í sambandi við hann hafi komið
áþreifanlega í ljós, hversu nauðsynlegt er að vera vel á verði um að
grípa fljótt og rækilega inn í, þegar svona vanda ber að höndum.
Breiöumýrar. 1 desembermánuði fannst nýr sjúklingur, 16 ára pilt-
ur, með mikið smit. Hafði verið í vinnu á Húsavík í fulla tvo mánuði,
áður en vart varð við veikindi hans. Ekki er vitað, hvar hann hafi smit-
azt. En hann er frá stóru barnaheimili, og virðist nær útilokað, að ekki
fylgi fleiri tilfelli í slóð hans, þó að allt heimilisfólk hans væri neikvætt
við berklapróf nú fyrir áramótin.
KópasJcers. Berklar tóku sig upp í 68 ára gamalli konu í Öxarfirði í
byrjun ársins. Allt heimilisfólk, svo og íbúar á næstu bæjum, mun hafa
komið í skoðun. Hafði sjúklingurinn ekki náð að smita út frá sér.
Þórshafnar. 61 árs gamall karl veiktist af berklum, og áður en það
uppgötvaðist, hafði hann náð til að smita 10 börn og unglinga á aldrin-
um 6—14 ára. Níu þeirra þurftu á hælisvist að halda, en þegar þetta er
skrifað (marz), eru öll komin heim nema tvær telpur.
Eyrarbakka. Berklasjúkur maður kom í heimsókn og sýkti tvo, sem
á árinu hafa fengið fullan bata.
3. ígulmyglu (actinomycosis).
1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964
Sjúkl. 1 3 1 tt tt 1 2 2 1 11
Dánir tt tt tt tt tt tt tt 11 tt tt
4. Holdsveiki (lepra).
1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964
Á spítala 5 5 6 5 5 4 4 3 3 3
í héruðum 2 2 2 tt tt tt ti tt 11 11
Samtals 7 7 8 5 5 4 4 3 3 3
5. Sullaveiki (echinococcosis).
1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964
Dánir 1 1 4 2 tt 1 ti 2 1 1