Börn og menning - 01.04.2012, Side 16

Börn og menning - 01.04.2012, Side 16
16 Börn og menning um höfund þeirrar bókar en hann reyndist hafa heitið Franz Hoffmann og verið uppi á 19. öld. Og ég er aldeilis ekki sú eina sem man eftir þessari bók hans, sem kom víst fyrst út á íslandi 1915. íslensk Fésbókarsíða hefur verið stofnuð til heiðurs Bláskjá og þar lýsir fólk eftir eintökum af bókinni sem það segist gjarnan vilja lesa fyrir börnin sín. Ég held hins vegar að nostalgísk þrá eftir Bláskjá sé skólabókardæmi um það hve fjarlægðin getur gert fjöllin blá. Ég fann enska útgáfu bókarinnar nefnilega á netinu - The Forest Cave, heitir hún - og þetta rit reyndist hreinasta skaðræði. Já, Ijúfa barnabókin sem ég sá í hillingum! Titillinn vísar til aðalpersónu sögunnar, drengs með blá augu, sem alist hefur upp ( dimmum helli sígauna sem rændu honum úr höllinni þar sem hann fæddist. Drengurinn liggur mest á fleti, fjarri hinu fólkinu og heyrir samtöl þess, hlátur og öskur, úr fjarlægð. Og í barnæsku, þegar ég lá iðulega með háan hita, kvef og astma, fannst mér ég oft breytast í Bláskjá. Suðið í lungunum á mér varð ómurinn af samskíptum sígaunanna inni í hellinum. Ég get ekki þrætt fyrir að hafa lesið bókina mér til ánægju sem barn og lifað mig inn í örlög drengsins með bláu augun af einlægri tilfinningu. Ég gerði mér akkúrat enga grein fyrir því hvað bókin er yfirfull af fordómum í garð fólks sem er dökkt yfirlitum og með brún augu. Það sé ég núna fyrst við að rifja upp kynni af bókinni á gamalsaldri. Sígaunum er stillt upp sem andstæðu við bláeyga drenginn og þeir sagðir grófir, óreglusamir, þjófóttir og fleira í þeim dúr. Þetta sýnir hvaða ógöngur nostalgían getur leitt mann í - að sjá í hillingum einhverja skruddu sem gæti hæglega hafa verið ein af uppáhaldsbókum Hitlers! Bláskjár er sem sagt bók sem maður ætti hvorki að mæra né leita að á Fésbók heldur henda beint á næsta bálköst. Ég veit ekki hvers vegna engin íslensk bók kemur upp í hugann víð þessa upprifjun. En ég heillaðist ekki tiltakanlega af neinum íslenskum barnabókum, nema ef Skólaljóðin geta talist til barnabóka. Þau gat ég lesið endalaust. Spyri og Blyton Ég marglas líka bækurnar um hina munaðarlausu Heiðu sem var send til hrjúfa afans í Ölpunum og kynntist svo hínni lömuðu og gullfallegu Klöru sem borin var upp í fjöllin en kom gangandi til baka. Höfundur bókanna var Johanna Spyri, sem uppi var á 19. öld, og sem betur fer fann ég ekkert Ijótt um hana á netinu. Það hefði alveg farið með mig. Eitt af því sem heillaði mig við Heiðu- bækurnar, fyrir utan hvað allt fór einstaklega vel að lokum, var maturinn. Núna get ég auðvitað ekki lýst fæðinu nákvæmlega en afinn eldaði einfaldan sveitamat handa stelpunum og mig minnir að hnöttóttur geitaostur hafi komið mikið við sögu. M.a. ostur sem var glóðaður yfir opnum eldi. Það var m.a. spenvolga geitamjólkin og fjallaloftið sem komu Klöru á fætur og af því að ég var bæði lasarus og mathákur langaði mig óskaplega að komast í fæði til afa hennar Heiðu. Og enn þann dag í dag hugsa ég til þessara bóka þegar ég borða bræddan ost. Svo er það hún Enid Blyton. Þegar ég var að vaxa úr grasi var ég alveg vitlaus í bækurnar hennar. Sumar þeirra hafði systir mín eignast á undan mér og það upphófst mikil lestrarorgía daginn sem ég kveikti á hvað þetta væri spennandi lesning. Síðan kárnaði gamanið, því eftir það þurfti ég alltaf að bíða í heilt ár eftir næstu bókum. En aðfaranótt jóladagsfékk ég loksins næsta skammt, enda bækur Blyton ávallt efstar á óskalistanum fyrir jólin: Ævintýrabækurnar, Fimmbækurnar og Dularfullu-bækurnar. Og það brást ekki að ég læsi með vasaljós undir sæng, langt fram á morgun, og væri ekki viðræðuhæf á jóladag vegna bóklesturs. Á annan í jólum var ég svo yfirleitt búin með mínar bækur og farin að lesa það sem bróðir minn hafði fengið. í dag gæti ég ekki rakið söguþráð í einni einustu Enid Blyton bók. Ég man bara eftir spennunni við að lesa þær og

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.