Börn og menning - 01.04.2012, Blaðsíða 24
Börn og menning
þau við textann. Svona verkefni eins og
Biophilia vekur þessar stöðvar í heilanum;
fær nemandann til að nota rökhugsun,
vislndi, listina, sköpun, allt þetta saman.
I námi barna, eigi það að vera gott og
metnaðarfullt og skila árangri, þarf að kitla
allar stöðvarnar i heilanum; helst I einu. Og
galdur kennslunnar felst ekki síst I því að
vekja áhuga barnanna á viðfangsefninu, með
fjölbreyttum aðferðum."
„Lestrarlestin brunar"
Á vegum Skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar er unnið að ýmsum
verkefnum til að stuðla að meiri lestri barna.
Oddný var spurð út í þau:
Oddný: „Eitt af þeim lestrarhvetjandi
verkefnum sem við erum að vinna núna, erað
móta læsisstefnu fyrir leikskóla, það er mjög
stórt skref. Læsisstefna verður mótuð I Ijósi
aðalnámskrár leikskóla og verða skilgreindar
áherslur I málörvun, ritmáli, tjáningu og leik
en það eru þættir sem leggja grunn að hæfni
barna I lestri siðar meir. Tillaga um mótun
læsisstefnunnar kom frá leikskólastjórunum
sjálfum sem sýnir hvað leikskólinn hefur
mikinn metnað og vill leggja sitt af mörkum
til að stuðla að læsi barna.
Síðan settum við á laggirnar að kortleggja
hvar samstarfsverkefni leik- og grunnskóla
ættu sér stað í borginni og sú skýrsla liggur
nú fyrir. Þau samstarfsverkefni sem eru
I gangi eru flott en við viljum fá fleiri
svo að nú viljum við para saman leik- og
grunnskóla út um allan bæ. Við viljum bjóða
leikskólakennurum og grunnskólakennurum
á yngsta stigi saman á námskeið, til þess að
tengja þá saman. Þannig segjum við: Við
eigum þessi börn saman, þó að grunnskólinn
sé eitt og leikskólinn annað; saman berum
við ábyrgð á lestrarfærni barna sem er svo
mikil undirstaða alls náms, velferðar og
hamingju I skóla út allt lífið."
í febrúar 2012 hófu öll frístundaheimili í
Miðborg og Hlíðum samstarf um lestrarátak
við Borgarbókasafn Reykjavíkur í Kringlunni
og aðalbókasafnið í Tryggvagötu.
Oddný: „Á nýsameinuðu sviði skóla og
fristunda opnast nýjar dyr sem gaman er
að kikja inn um. Núna erum við byrjuð með
verkefni sem heitir „Lestrarlestin brunar" og
markmiðið erað kynna almenningsbókasafnið
fyrir börnum eftir skóla. Börnunum er sýnt
hvar almenningsbókasafnið I hverfinu er,
hvernig maður kemst þangað, gangandi
eða í strætó. Bækur eru áberandi I starfi
frístundaheimilanna og það er unnið með
bóklestur á margvíslegan hátt, allt eftir
áhuga barnanna."
Börnunum er fylgt einu sinni í mánuði á
bókasafnið þar sem þau fá sína eigin bók til
yndislesturs í einn mánuð. Þau skrásetja svo
lesturinn á svokallaða lestrarvagna, ýmist í
formi teikninga eða stuttra endursagna úr
bókunum. Úr þessum frásögnum verða gerð
vegglistaverk þar sem börn og fullorðnir geta
skoðað afraksturinn í vor. Markmiðið er að
hvetja börn til að lesa meira utan skólatíma,
hvort heldur er á frístundaheimilunum eða
heima fyrir.
• •
menningarfAni
REYKJAVÍKURBORGAR
Menningarfáninn
Menningarfáninn er nýtt verkefni á vegum
Reykjavíkurborgar sem ætlað er að ýta undir
menningarstarf fyrir börn, meðal annars
með því að stuðla að auknum tengslum
milli starfsemi frístundaheimila, leik- og
grunnskóla. Úr slíkri samvinnu geta sprottið
upp nýstárleg verkefni sem skapa möguleika
á samþættum kennsluaðferðum í námi.
Oddný: „Menningarfáninn er verkefni
byggt á hugmyndinni um Grænfánann en
um 200 skólar á íslandi hafa hlotið hann.
Grænfáninn er samstarf leik- og grunnskóla
og Landverndar og hægt er að flagga
grænfánanum að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum um vistvæna skóla.
Hugmyndin að Menningarfánanum kviknaði
eftir að ég sá niðurstöður könnunar á
menningarþátttöku barna og skóla t.d. I
heimsóknum á listasöfn og ferðum á
myndlistarsýningar og tónleika. En það
reyndist himinhrópandi munur á milli hverfa:
hverfin 1101 og 105, 107, voru með áberandi
flestar heimsóknir en hverfin á útjaðri