Börn og menning - 01.04.2012, Page 21
Anna í Grænuhlíð
21
Anna endurunnin og forunnin
Árið 2008 kom út barnabókin Before Green Gables eftir kanadíska
barnabókahöfundinn Budge Wilson en hún var samin og gefin út í
tilefni af því að hundrað ár voru liðin frá útgáfu Önnu í Grænuhlíð.
Eins og titillinn gefur til kynna gerist sagan áður en Anna kom til
Marillu og Matthíasar í Grænuhlíð, þá ellefu ára gömul. í þessari
bók er greint frá dauða foreldra Önnu og því hvernig hún er send
frá einu fósturheimili til hins næsta. Þar gegnir hún ýmsum störfum
og gætir barna og hennar eini flótti er öflugt ímyndunaraflið og hún
lætur sig dreyma um að eignast sína eigin fjölskyldu. Það var gerð
japönsk teiknimyndasería eftir bókinni sem heitir Konnichiwa Anne en
þættirnir voru framleiddir af japanska fyrirtækinu World Masterpiece
Theater sem hefur framleitt fjölda teiknimynda og teiknimyndaþátta
sem byggðir eru á klassiskum barnasögum. Hér má t.d. nefna
teiknimyndir um Önnu í Grænuhlíð og Heiðu eftir Jóhönnu Spyri en
þeir þættir voru sýndir í íslensku sjónvarpi fyrir röskum tuttugu árum
síðan.
Höfundurinn
Lucy Maud Montgomery skrifaði alls 20 skáldsögur, þar af gerast
19 á Prins Eðvarðs-eyju. Átta fjalla um Önnu Shirley. Montgomery
fluttist þó þaðan um tvítugt og bjó í Ontario öll sín fullorðinsár.
Eftir hana liggur einnig mikill fjöldi Ijóða og smásagna auk þess sem
úrval úr dagbókum hennar hefur verið gefið út. Árið 1994 var L.M.
Montgomery stofnunin opnuð í Cavendish. Stofnunin heldur utan
um útgáfu á skáldskap Montgomery, heldur reglulega ráðstefnur um
bækur hennar og styrkir rannsóknir og þýðingar á þeim.