Fréttablaðið - 03.04.2021, Qupperneq 2
Hjólað um Heiðmörk
Nokkuð var um að fólk nýtti gærdaginn til útivistar, bæði til að skoða gos á Reykjanesi, en ekki síður til að iðka hjólreiðar og aðra útiveru, eins og
þessir knapar í Heiðmörk. Í dag verður hins vegar ekki hleypt inn á gossvæðið og þarf fólk að finna sér aðra útvist. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Millimál í fernu
VÍTAMÍN
& STEINEFNI
PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA
ÁN ÁN
Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd
næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild.
NORÐURLAND „Það voru mistök að
nefna sveitarfélagið Norðurþing,“
segir Ágúst Sigurður Óskarsson,
ráðgjafi hjá VIRK, sem sendi inn
erindi til sveitarstjórnar um að
nafninu verði breytt í Húsavíkurbæ.
Norðurþing varð til árið 2006
eftir sameiningu Húsavíkurbæjar,
Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnar-
hrepps og Kelduneshrepps. Í kjöl-
farið sendi sameiningarnefnd 14
tillögur til Örnefnanefndar en fékk
aðeins 3 til baka sem kosið var um,
Norðurþing, Norðausturbyggð og
Gljúfrabyggð. „Fólk fékk aðeins þrjá
vonda kosti til að velja úr og nafnið
Norðurþing hefur verið umdeilt
allar götur síðan,“ segir Ágúst.
Í þessu ferli var fyrir fram ákveðið
að taka ekki upp neitt af fyrri nöfn-
um sveitarfélaganna. Ágúst bendir
á að við aðrar sameiningar hafi allur
gangur verið á þessu. Til dæmis
voru tekin upp ný nöfn í Árborg og
Múlaþingi en í öðrum hafa stærri
staðir haldið nafni sínu, svo sem
Ísafjarðarbær og Akureyrarbær.
„Bæði Íslendingum og útlending-
um finnst nafnið Norðurþing óþjált
og nota það lítið í daglegu tali,“ segir
Ágúst. Á undanförnum árum hefur
erlendum ferðamönnum fjölgað
mjög í sveitarfélaginu. Þá segir hann
nafninu oft ruglað við Norður-Þing-
eyjarsýslu sem aðeins hluti sveitar-
félagsins er innan.
Aðspurður um hvort nafnabreyt-
ing kæmi ekki illa við íbúa Kópa-
skers, Raufarhafnar og dreifbýlisins
segir Ágúst að það þyrfti ekki að
vera svo. Málið snúist um heildar-
hagsmuni svæðisins. Til dæmis þá
miklu kynningu sem sveitarfélagið
hefur fengið vegna kvikmyndar-
innar um Eurovision og lagsins
Husavik sem tilnefnt hefur verið til
Óskarsverðlauna. Það hreyfði við
honum að senda erindið inn.
Bendir Ágúst á að bæði Íslend-
ingum og útlendingum finnist auð-
velt að nota það nafn. „Húsavík er
verðmætt vörumerki,“ segir hann.
„Það er ekkert að því að segjast búa
á Kópaskeri í Húsavíkurbæ.“
Þá sé Húsavík elsta örnefni lands-
ins, nefnt af sænska víkingnum
Garðari Svavarssyni sem hafði þar
vetursetu og byggði sér hús. Hefur
Ágúst áhyggjur af því að örnefnið
þurrkist smám saman út í ljósi þess
að bærinn sjálfur er í auknum mæli
skráður sem Norðurþing á kortum
Google og annarra tæknirisa.
Erindið var nýlega tekið fyrir í
byggðarráði Norðurþings og því
hafnað. Kom þó fram að ef til frekari
sameininga kemur við nágranna-
sveitarfélög yrði nafnið mögulega
endurskoðað.
„Ég missi ekki svefn yfir þessu,“
segir Ágúst aðspurður um hvort
hann sé vongóður um að tillagan
nái fram að ganga síðar. „Ég tel hags-
munum sveitarfélagsins þó borgið
með því að skoða þessa tillögu vel.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Vill að sveitarfélagið
heiti Húsavíkurbær
Húsvíkingurinn Ágúst Sigurður Óskarsson sendi nýlega inn erindi til sveitar-
stjórnar um nafnabreytingu Norðurþings. Hann segir örnefnið Húsavík verð-
mætt vörumerki sem öllum íbúum sveitarfélagsins sé til hagsbóta að viðhalda.
Nöfnin Norðurþing, Norðausturbyggð og Gljúfrabyggð voru valkostirnir
sem íbúar fengu að kjósa um árið 2006 eftir sameiningu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Bæði Íslendingum
og útlendingum
finnst nafnið Norðurþing
óþjált og nota það lítið í
daglegu tali.
Ágúst Sigurður
Óskarsson Hús-
víkingur
SAMFÉLAG Meir a en 500 manns
send u tölv u póst á Frétt a bl að ið,
sem sagð i fyr ir t æk ið Þyrl u spað ann
bjóð a upp á mjög ó dýr ar þyrl u ferð -
ir að eld gos in u í Geld ing a döl um.
Um apr íl g abb var að ræða af hálf u
Frétt a bl aðs ins.
Gabb ið var gert með þát ttök u
Þór ar ins Ævars son ar, eig and a píts u-
stað ar ins Spað ans og fyrr ver and i
fram kvæmd a stjór a Ikea. Frétt a-
bl að ið þakk ar hon um kær leg a fyr ir
að taka þátt.
Vert er að bend a á að nokkr ar
þyrl u þjón ust ur hald a í raun úti
þyrl u f l ug i yfir gos stöðv arn ar fyr ir
á h ug a sam a. – þp
Hundr uð hlupu
apríl og vildu
komast í þyrlu
Meir a en 500 manns
send u tölv u póst á Frétt a-
bl að ið.
AUSTURLAND Vettvangsrannsókn er
lokið í fjörunni við Vopnafjörð þar
sem mannabein fundust á skírdag.
Hjalti Bergmar Axelsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni
á Austurlandi, segir að beinin hafi
verið send til kennslanefndar en
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
Samkvæmt tilkynningu lögregl-
unnar á skírdag er staðfest að um
mannabein sé að ræða og talið er
að þau hafi legið í sjó um nokkurn
tíma. Ekki er grunur um hjá lög-
reglu að líkfundurinn tengist sak-
næmu atviki. – khg
Rannsókn lokið
á vettvangi eftir
beinafundinn
Vopnafjörður. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Um aprílgabb Fréttablaðsins var að
ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
UMHVERFISMÁL Ísland er í efsta sæti
yfir umhverfisvænustu lönd heims
samkvæmt tímariti bandaríska
tækniháskólans MIT. Reiknaður
var stuðull byggður á kolefnislos-
un, orkuskiptum, grænum lífs-
stíl, nýsköpun og umhverfisstefnu
stjórnvalda. Skoraði Ísland 6,45 á
stuðlinum, ögn hærra en Danmörk.
Á meðal annarra hæstu landa má
nefna Noreg, Frakkland og Írland.
Alls náði rannsóknin til 76 landa og
í neðstu sætum höfnuðu Rússland,
Íran og Paragvæ. – khg
Ísland grænasta
land heimsins
Langstærstur hluti íslenskrar orku-
framleiðslu er endurnýtanlegur.
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð