Fréttablaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 24
Alma Rut og sambýlis-maður hennar Haf-steinn Freyr eiga fjög-ur börn á aldrinum 19 mánaða til 19 ára og hefur nú tengdadóttir jafnframt bæst í hópinn. Alma sem hefur undanfarið stundað nám við Keili ákvað að taka hlé frá námi og leggja allt í að hugsa um fjölskylduna. „Ástæðan fyrir því er að mestu leyti sú að tvö yngstu börnin mín hafa glímt við veikindi. Við höfum lagt okkur fram við að sinna þeim vel og okkur öllum, enda er það álag á alla fjölskylduna þegar einhver veikist og enn meira þegar tveir veikjast.“ Ákveðinn vendipunktur varð í lífi fjölskyldunnar fyrir fimm árum sem olli hugarfarsbreytingu. „Við Haffi tókum þá ákvörðun þegar sonur okkar veiktist að vera bjartsýn, jákvæð, hamingjusöm og glöð. Við tókum líka ákvörðun um að gera allt eins skemmtilegt og við gætum þrátt fyrir aðstæðurnar sem við vorum í og við höfum gert það. Það hvernig við hugsum skiptir öllu máli; bæði fyrir okkur og börnin okkar öll. Því það er staðreynd að okkar hugarfar hefur áhrif á hugar- far barna okkar.“ Þegar sonurinn lá inni á spítala lögðu þau sig fram við að gera dvöl- ina að einhverju góðu og gleðilegu, einhverju sem skapaði tilhlökkun og það segjast þau enn gera í dag. „Sonur okkar fer í erfiðar lyfja- meðferðir í hverjum mánuði og er í framhaldi slappur í fimm daga. Í þessa fimm daga er allt gert kósí heima fyrir hann, hann fær að ráða hvað er í matinn og fær alltaf verðlaun sem við pökkum inn og fær að ráða hvað við gerum.“ Alma segir þetta hafa gert það að verkum að sonurinn telji dagana fram að spítalavist jafnvel þó hann viti að hann þurfi að vera með æðalegg og í lyfjagjöf. „Hann telur dagana því hann elskar þessa fimm daga sem hann fær í staðinn og þær stundir sem hann á með okkur.“ Eins árs varnareinangrun Heimsfaraldur COVID-19 hefur undanfarið ár gert fjölskyldunni erfiðara fyrir en samkvæmt læknis- ráði hefur hún verið í svokallaðri varnareinangrun vegna veikinda barnanna. „Við tókum líka ákvörð- un þá um að gera það eins skemmti- legt og við gætum. Haffi hefur verið mjög mikið frá vinnu því þegar mesta smitið er þurfum við að vera öll í varnareinangrun.“ Alma segir þau hafa lagt áherslu á að halda rútínu og finna sér og börnunum alltaf eitthvað skemmti- legt að gera bæði inni og úti þar sem ekki var fólk. „Þessir tólf mánuðir voru góðir og gáfu okkur margar stundir saman. Við gerðum helling skemmtilegt og einbeittum okkur líka að því að gera þroskandi hluti fyrir börnin. Við kenndum syni okkar heima og fundum upp á alls konar sniðugu í kringum það. Við gerðum til dæmis alla stafina og tölurnar úr leir, bjuggum til fal- legar skólabækur og prentuðum út það sem við vissum að gæti kennt honum en væri um leið eitthvað sem hann hefði gaman af.“ Hún segir þetta almennt vera leið fjölskyldunnar í gegnum lífið. „Við Haffi erum samstíga, hann tekur þátt í öllu og erum við til að mynda í marga daga að undirbúa okkur fyrir öskudag, þá förum við öll í búning og gerum mikið úr deginum sem er einn af okkar uppáhaldsdögum.“ Tíminn er í huga Ölmu dýrmætur. „Mér finnst svo mikilvægt að verja eins miklum tíma með börnunum mínum og ég get. Ég hef líka alltaf elskað að gera fjölbreytta hluti með þeim og finna upp á einhverju skemmtilegu.“ Hugmyndir sem kosta lítið Nýverið ákvað Alma að taka þetta skrefinu lengra og deila hugmynd- unum með fleirum. „Ég tek oft myndir og um daginn fór ég að ræða við Haffa um að mig langaði að gera eitthvað til þess að aðrir gætu séð það sem við værum að gera, til að gefa fólki innblástur að alls konar hugmyndum. Ein- hverju sem væri hægt að gera heima eða úti. Hvort sem það var að tálga eða fara í dýragarð.“ Alma útbjó hóp á Facebook undir nafninu Leikum okkur. „Hugmynd- in var að gera hóp þar sem fólk gæti séð bara venjulega fjölskyldu gera eitthvað saman. Hóp sem væri eðli- legur, engar uppstillingar og engin glansmynd. Bara við að njóta þess að vera með börnunum okkar. Hóp þar sem fólk gæti fengið innblástur og hugsað: „Hey, sniðugt! Mig lang- ar að gera þetta með börnunum mínum!“ segir hún og bætir við að á móti fáu þau hugmyndir frá með- limum hópsins. „Mér fannst líka sniðugt að koma með alls konar hugmyndir sem kosta lítið sem ekkert eins og að gera sand úr morgunmat eða gera f löskuskeyti, tjalda inni eða hoppa í pollum. Bara það að hoppa í polli er svo mikil skemmtun og það er svo mikilvægt að staldra við, horfa á börnin okkar, njóta þess með þeim þó þau verði blaut og skítug og þakka fyrir að þau geti það því það eru mörg börn sem geta það ekki. Hoppum í pollum Mér finnst líka svo mikilvægt að minna sig reglulega á að börn vilja ekkert meira í lífinu frá okkur en að við gefum þeim tíma. Þess vegna er svo mikilvægt að við njótum þess að vera með þeim hvort sem það er að fara eitthvað, spila, föndra eða tala saman. Við Haffi verjum f lest- um helgum og miklum tíma saman og gerum eitthvað sem gleður okkur og börnin okkar. Við förum til dæmis mikið í fjöruna, um dag- inn fundum við tré og bjuggum til rólu og klifurstiga, við búum oft til eitthvað eins og leir og stundum liggjum við bara öll saman uppi í rúmi og gerum skuggamyndir. Mér f innst svo mikilvægt að staldra við og hugsa hvernig ég er að forgangsraða og hvar börnin eru í þeirri forgangsröðun, ef forgangs- röðunin er ekki rétt þá er svo lítið mál að breyta henni. Bara með því einu að fara út og hoppa í pollum.“ Börnin vilja tíma með okkur Alma Rut Ásgeirsdóttir tók þá ákvörðun, þegar sonur hennar veiktist þriggja ára gamall í kjölfar flensu, að hafa jákvæðnina að leiðarljósi. Varnareinangrunina undanfarið hafa þau lagt sig fram um að gera sem besta fyrir alla. Alma Rut og Thelma í fallegu herbergi heimasætunnar en Alma er dugleg að kaupa notaðan fatnað og selja aftur auk þess sem hún hefur fundið mikið af notuðum leikföngum og munum og gert upp. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON Þær mæðgur fundu fallegt dúkkuhús til sölu á Facebook og gerðu það upp. Alma keypti ódýrar litaprufur, málaði húsið með þeim og lakkaði svo yfir. Eldhúsið fann Alma líka til sölu ódýrt á Facebook og gerði upp. Hún notaði litaprufur en sprautaði höldur og vask, veggfóðraði svo með sængurveri og lakkaði yfir. „Þetta kostaði mjög lítið og var æðislega gaman,“ segir hún. „Thelma á mikið af fallegum fötum sem eiga það sameiginlegt að kosta lítið og vera flest keypt notuð. Svo sel ég fötin aftur þegar þau eru orðin of lítil og kaupi fyrir peninginn næstu stærðir.“ Kjólarnir hanga svo uppi til skrauts. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is HUGMYNDIN VAR AÐ GERA HÓP ÞAR SEM FÓLK GÆTI SÉÐ BARA VENJU- LEGA FJÖLSKYLDU GERA EITTHVAÐ SAMAN. HÓP SEM VÆRI EÐLILEGUR, ENGAR UPPSTILLINGAR OG ENGIN GLANSMYND. 3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.