Fréttablaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 37
EFLA leitar að öflugum leiðtogum með sérfræðiþekkingu í samgöngum.
Um er að ræða störf í fagteymi vega og mælinga þar sem starfa þrettán sérfræðingar
sem taka þátt í þverfaglegum verkefnum í mismunandi teymum. Fagteymið sinnir
fjölbreyttum verkefnum í samgöngum sem snúa að hönnunar- og verkefnastjórnun, veg-,
gatna- og stígahönnun, viðhaldi vega, ásamt eftirliti með vega- og gatnaframkvæmdum.
HELSTU VERKEFNI
• Hönnunar- og verkefnastjórnun
• Gerð útboðs- og verklýsinga
• Veg-, gatna- og stígahönnun
• Tilboðsgerð
HÆFNISKRÖFUR
• Menntun sem nýtist í starfi, t.d. byggingarverk- eða byggingartæknifræði,
með áherslu á vegi/samgöngur
• Kunnátta á notkun hönnunarforrita t.d. NovaPoint, Civil3D, AutoCad o.fl.
• Gott vald á íslensku og ensku, þekking á Norðurlandamáli er kostur
• Leiðtoga- og skipulagshæfileikar
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í
sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. EFLA vill fá til liðs við sig kraftmikið, jákvætt og
metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Við bjóðum upp á afbragðs starfs-
umhverfi, áhugaverðan starfsvettvang í alþjóðlegu umhverfi og góðan starfsanda.
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í
gegnum ráðningarvef EFLU, www.efla.is/laus-storf fyrir 17. apríl 2021. Farið er með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, sviðsstjóri Mannauðsviðs (iss@efla.is)
efla.is412 6000
Ert þú framúrskarandi?
Stafræn framtíð
Við leitum að reyndum stjórnanda sem býr yfir:
• Framsýni, metnaði, samskipta- og skipulagsfærni
• Árangursríkri reynslu af stjórnun
• Færni í að skapa liðsheild ásamt jákvæðu
og lausnamiðuðu hugarfari
• Árangursríkri reynslu af stefnumótun og áætlanagerð
• Háskólaprófi sem nýtist í starfi ásamt meistaraprófi
eða mikilli reynslu sem nýtist í starfi
• Góðri færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
• Þekking og reynsla af fjarskipta-
og netöryggismálum æskileg
• Reynsla á sviði nýsköpunar og tækni æskileg
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar að stjórnanda
sem hefur brennandi áhuga, þekkingu og/eða reynslu
af stafrænni þróun til að stjórna skrifstofu stafrænna
samskipta hjá ráðuneytinu.
Hlutverk skrifstofunnar er að leiða og styðja við stafræna
þróun í samfélaginu m.a. með mótun og eftirfylgni stefnu
á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni þar með töldum
netöryggismálum. Þá krefjast verkefni skrifstofunnar
töluverðra alþjóðasamskipta.
Við leitum að einstaklingi sem vill ná árangri fyrir samfélagið
með því að mæta áskorunum og nýta tækifæri sem fylgja
stafrænum samskiptum og fjarskiptatækni.
Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 9. apríl. Einstaklingar óháð kyni eru hvattir
til að sækja um. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi með
upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi
og telur að nýtist embættinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir
ráðuneytisstjóri, ragnhildur.hjaltadottir@srn.is eða 545-8200.
Umsóknum skal skila rafrænt á starfatorg.is
Skipað verður í embætti skrifstofustjóra til fimm ára frá og með 1. júní nk.
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is