Fréttablaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 72
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Margrétar
Kristmannsdóttur
BAKÞANKAR
995,-/stk.
Páskagreinar
©
Inter IKEA System
s B.V. 2021
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
Lesa bara FBL
Lesa bæði
FBL OG MBL
Lesa bara MBL
62,6%
11,6%
25,8%
88,4%
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup okt. - des 2020
MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
Börnin mín eiga ekki minn-ingar af erfiðri páskaeggjaleit. Á okkar heimili einskorðaðist
leitin við vel afmarkað svæði og
best þótti móðurinni ef sást glitta
örlítið í ungann ofan á egginu.
Skipti engu þó að börnin stækkuðu
og hefðu þroska til að takast á við
vandasamari verkefni – páska-
eggjaleitin var höfð einföld og stutt.
Nú vill sú sem þetta ritar ekki
gerast svo dramatísk að segjast
bera sár á sálinni eftir páskaeggja-
leit í æsku en eitthvað er það. Árið
er 1967 og ég á sjötta ári þegar við
systkinin rifum okkur upp fyrir
allar aldir á páskadag enda spenn-
ingur mikill. Í þriggja hæða húsi
í vesturbænum hlupu litlir fætur
upp og niður stigana í ákafri leit.
Fljótlega fann eldri bróðir sitt egg
en áfram hélt leitin. Að lokum varð
að þrengja leitarsvæðið með aðstoð
foreldranna, fyrst við ákveðna
hæð og að lokum við ákveðið her-
bergi, en ekki fannst páskaeggið.
Það var á þessum tímapunkti sem
kökkurinn í hálsinum gerði vart
við sig og efinn um að páskaeggin
væru raunverulega tvö vaknaði.
Enn var leitarsvæðið þrengt með
frekari aðstoð sem leiddi til þess
að loks stóð fimm ára hnáta með
andlitið upp við bakarofninn á
heimilinu og eggið blasti við. Það
þurfti hins vegar marga mola af
dísætu súkkulaðinu áður en gleðin
tók völd að nýju.
Ég hef á seinni árum komist að
því að ýmis verðmæti eru geymd
í bakarofnum á heimilum lands-
manna enda dettur bíræfnum
þjófum víst ekki í hug að nokkur
noti ofna til að fela hluti. Ef hægt
er á jafn auðveldan hátt að plata
atvinnumenn í faginu er ekki að
furða að börn í páskaeggjaleit
gangi ítrekað fram hjá bakar-
ofnum.
Njótið páskanna!
Páskaegg og
felustaðir