Fréttablaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Ólafía Ingólfsdóttir er 69 ára og starfaði sem rekstrarstjóri á N1 á Hvolsvelli. „Ég vann langar vaktir, var mikið á ferðinni og var orðin svo slæm í hnénu að ég tók stundum hátt í tíu verkjatöflur á dag og svaf mjög slitrótt vegna verkja,“ útskýrir Ólafía. Það var svo í fyrrasumar sem Ólafía var á leið í hnjáliðaskipti að hún sá auglýsingu um Active Joints frá Eylíf. „Ég hugsaði með mér að ég hefði engu að tapa og ákvað að prófa að taka það inn. Árangurinn lét ekki á sér standa, hann kom fram innan þriggja vikna og í september var ég farin að sofa betur og orðin það góð að ég þurfti ekki lengur að taka verkjatöflur dagana langa,“ upplýsir Ólafía, alsæl með góðan árangur Active Joints á heilsu sína. „Ég finn líka mikinn mun á meltingunni og mér líður almennt mikið betur líkamlega og andlega. Núna fer ég í jóga og get gert allar æfingar sem ég gat aldrei áður gert. Mér finnst orðið svo auðvelt að hreyfa mig og núna get ég gengið um allt án vandræða, sem ég gat ekki áður,“ segir Ólafía. „Svo er gaman að segja frá því að í kringum mig eru tíu manns sem eru einnig að taka inn Active Joints og finna sömuleiðis mikinn mun á sér líkamlega til hins betra.“ Ólafía mælir svo sannarlega með Active Joints frá Eylíf. „Það er það allra besta bætiefni sem ég hef tekið inn. Ég finn svo mikinn mun á mér, mér líður svo mikið betur og hef miklu meiri lið­ leika, sem eru mikil lífsgæði fyrir mig. Ég er einnig byrjuð að taka inn Smoother Skin & Hair frá Eylíf og finn strax mun á húðinni, nögl­ unum og hárinu því ég hafði glímt við hárlos. Ég mæli því 100 prósent með vörunum frá Eylíf.“ Heilsan er dýrmætust Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar frábærar heilsuvörur sem reynst hafa fólki vel. Þær eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og nýjasta varan Happier Guts. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum og engum aukefnum er bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofn­ andi Eylíf. „Hugmyndin að vörulínunni kom til vegna þess að mig langaði að setja saman þau frábæru hrá­ Ólafía finnur víðtækan mun á sér til hins betra eftir að hún fór að taka inn Active Joints og er nú farin að stunda jóga og hreyfa sig sem aldrei fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af Happier Guts, Active Joints, Stronger Bones og Smoother Skin & Hair. Lífið nú annað og betra en áður „Ég mæli eindregið með Happier GUTS frá Eylíf því það hefur reynst mér mjög vel,“ segir Þórdís S. Hannesdóttir sem hefur af því frábæra reynslu. „Ég var svo heppin að kynnast Happier GUTS eftir ábendingu um að bætiefnið virkaði vel fyrir meltinguna. Ég hef alltaf verið með lata þarmastarfsemi og prófað ýmislegt í gegnum tíðina til að laga melting- una, en var hreinlega hætt að gera mér vonir um betri líðan því ekkert kom að gagni. Ég var því farin að sætta mig við að vera bara svona og lítið við því að gera,“ segir Þórdís sem hafði verið í langri hvíld frá bætiefnum þegar hún ákvað að prófa Happier GUTS. „Ég sé svo sannarlega ekki eftir því, því eftir aðeins tveggja mánaða notkun á Happier GUTS fann ég gríðarlegan mun á mér og lífið varð allt annað og betra en áður. Óþægindi frá meltingarvegi hurfu og þarma- starfsemin er komin í gott lag. Ég fann líka hvernig almenn líðan varð mjög góð, bæði andleg og líkamleg, og mér líður svo miklum mun betur.“ Þórdís mælir eindregið með Happier GUTS fyrir alla sem eiga við melt- ingaróþægindi að stríða. „Ég mun svo sannarlega halda áfram að taka inn þetta frábæra bætiefni sem er unnið úr íslenskum gæðahrá- efnum og framleitt hér á Íslandi. Það hefur hjálpað mér mjög mikið.“ efni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr íslenskum, náttúrulegum auðlindum og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum,“ upplýsir Ólöf. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta varan okkar er Active Joints sem inni­ heldur fjögur íslensk næringarefni og sýna margra ára rannsóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka, sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“ Hráefni sem notuð eru í bætiefnin frá Eylíf eru ekki erfðabreytt. „Þau stuðla að heilbrigði og sveigjanlegri líkama því þá erum við færari um að takast á við verkefnin í dags­ ins önn. Við vitum öll að heilsan er okkur dýrmætust og því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrir­ byggja ýmis heilsufarsvandamál. Heilbrigð melting er grunnur að góðri heilsu og þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir meltinguna,“ segir Ólöf Rún. Heilsubót úr íslenskri náttúru Nýjasta varan frá Eylíf er Happ­ ier GUTS. Það inniheldur fjögur íslensk hráefni, sem eru: • Kítósan, unnið úr rækjuskel sem eru náttúrulegar trefjar og reynist vel fyrir meltinguna. Það dregur í sig fituefni úr meltinga­ veginum. • Kalkþörungar sem eru mjög kalkríkir og innihalda 74 stein­ og snefilefni frá náttúrunni. • GeoSilica kísill sem hefur reynst vel og rannsóknir staðfesta virkni. • Fjallagrös sem eru vel þekkt fyrir sín góðu áhrif í gegnum tíðina. Við styrkjum blönduna með öflugri blöndu af meltingarens­ ímum, C­vítamíni, krómi, joði og sinki. Athugið að ekki má taka D­víta­ mín eða önnur fituleysanleg víta­ mín á sama tíma. Látið líða sirka tvær klukkustundir á milli. Íslensku hráefnin sem notuð eru í Eylíf­vörurnar eru: kalkþörungar frá Bíldudal, smáþörungar (Astax­ anthin) frá Reykjanesbæ, GeoSilica frá Hellisheiði, kollagen frá Sauðár­ króki og kítósan frá Siglufirði. Íslenskar jurtir eru handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnar­ firði. Hrein hráefni og íslensk framleiðsla. Fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Nettó og á eylif.is þar sem hægt er að fá fría heimsendingu. Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráð­ lagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Active Joints er það allra besta bætiefni sem ég hef tekið inn. Mér líður svo mikið betur og hef miklu meiri liðleika, sem eru mikil lífsgæði fyrir mig. Ólafía Ingólfsdóttir Þórdís S. Hannesdóttir 2 kynningarblað A L LT 3. apríl 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.