Fréttablaðið - 03.04.2021, Side 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Ólafía Ingólfsdóttir er 69 ára og
starfaði sem rekstrarstjóri á N1 á
Hvolsvelli.
„Ég vann langar vaktir, var mikið
á ferðinni og var orðin svo slæm
í hnénu að ég tók stundum hátt í
tíu verkjatöflur á dag og svaf mjög
slitrótt vegna verkja,“ útskýrir
Ólafía.
Það var svo í fyrrasumar sem
Ólafía var á leið í hnjáliðaskipti að
hún sá auglýsingu um Active Joints
frá Eylíf.
„Ég hugsaði með mér að ég hefði
engu að tapa og ákvað að prófa að
taka það inn. Árangurinn lét ekki
á sér standa, hann kom fram innan
þriggja vikna og í september var
ég farin að sofa betur og orðin það
góð að ég þurfti ekki lengur að
taka verkjatöflur dagana langa,“
upplýsir Ólafía, alsæl með góðan
árangur Active Joints á heilsu sína.
„Ég finn líka mikinn mun á
meltingunni og mér líður almennt
mikið betur líkamlega og andlega.
Núna fer ég í jóga og get gert allar
æfingar sem ég gat aldrei áður gert.
Mér finnst orðið svo auðvelt að
hreyfa mig og núna get ég gengið
um allt án vandræða, sem ég gat
ekki áður,“ segir Ólafía.
„Svo er gaman að segja frá því að
í kringum mig eru tíu manns sem
eru einnig að taka inn Active Joints
og finna sömuleiðis mikinn mun á
sér líkamlega til hins betra.“
Ólafía mælir svo sannarlega
með Active Joints frá Eylíf.
„Það er það allra besta bætiefni
sem ég hef tekið inn. Ég finn svo
mikinn mun á mér, mér líður svo
mikið betur og hef miklu meiri lið
leika, sem eru mikil lífsgæði fyrir
mig. Ég er einnig byrjuð að taka
inn Smoother Skin & Hair frá Eylíf
og finn strax mun á húðinni, nögl
unum og hárinu því ég hafði glímt
við hárlos. Ég mæli því 100 prósent
með vörunum frá Eylíf.“
Heilsan er dýrmætust
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active Joints,
Stronger Bones, Smoother Skin
& Hair og nýjasta varan Happier
Guts. Vörurnar eru framleiddar
á Íslandi úr hreinum, íslenskum
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við.
Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofn
andi Eylíf.
„Hugmyndin að vörulínunni
kom til vegna þess að mig langaði
að setja saman þau frábæru hrá
Ólafía finnur
víðtækan mun á
sér til hins betra
eftir að hún
fór að taka inn
Active Joints
og er nú farin
að stunda jóga
og hreyfa sig
sem aldrei fyrr.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af Happier Guts, Active Joints, Stronger Bones og Smoother Skin & Hair.
Lífið nú annað og betra en áður
„Ég mæli eindregið með Happier GUTS frá Eylíf því það hefur reynst mér
mjög vel,“ segir Þórdís S. Hannesdóttir sem hefur af því frábæra reynslu.
„Ég var svo heppin að kynnast Happier GUTS eftir ábendingu um
að bætiefnið virkaði vel fyrir meltinguna. Ég hef alltaf verið með lata
þarmastarfsemi og prófað ýmislegt í gegnum tíðina til að laga melting-
una, en var hreinlega hætt að gera mér vonir um betri líðan því ekkert
kom að gagni. Ég var því farin að sætta mig við að vera bara svona og lítið
við því að gera,“ segir Þórdís sem hafði verið í langri hvíld frá bætiefnum
þegar hún ákvað að prófa Happier GUTS.
„Ég sé svo sannarlega ekki eftir því, því eftir aðeins tveggja mánaða
notkun á Happier GUTS fann ég gríðarlegan mun á mér og lífið varð allt
annað og betra en áður. Óþægindi frá meltingarvegi hurfu og þarma-
starfsemin er komin í gott lag. Ég fann líka hvernig almenn líðan varð
mjög góð, bæði andleg og líkamleg, og mér líður svo miklum mun betur.“
Þórdís mælir eindregið með Happier GUTS fyrir alla sem eiga við melt-
ingaróþægindi að stríða.
„Ég mun svo sannarlega halda áfram að taka inn þetta frábæra bætiefni sem er unnið úr íslenskum gæðahrá-
efnum og framleitt hér á Íslandi. Það hefur hjálpað mér mjög mikið.“
efni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr
íslenskum, náttúrulegum auðlindum og auka þannig
aðgengi fólks að þessum hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna
er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís.
„Vinsælasta varan okkar er Active Joints sem inni
heldur fjögur íslensk næringarefni og sýna margra
ára rannsóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir
Ólöf Rún. „Við vöndum til verka, sækjum í sjálfbærar
auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af
viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bætiefnin frá Eylíf eru ekki
erfðabreytt.
„Þau stuðla að heilbrigði og sveigjanlegri líkama því
þá erum við færari um að takast á við verkefnin í dags
ins önn. Við vitum öll að heilsan er okkur dýrmætust
og því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrir
byggja ýmis heilsufarsvandamál. Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu og þess vegna vildum við hjá
Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir meltinguna,“ segir
Ólöf Rún.
Heilsubót úr íslenskri náttúru
Nýjasta varan frá Eylíf er Happ
ier GUTS. Það inniheldur fjögur
íslensk hráefni, sem eru:
• Kítósan, unnið úr rækjuskel
sem eru náttúrulegar trefjar og
reynist vel fyrir meltinguna. Það
dregur í sig fituefni úr meltinga
veginum.
• Kalkþörungar sem eru mjög
kalkríkir og innihalda 74 stein
og snefilefni frá náttúrunni.
• GeoSilica kísill sem hefur reynst
vel og rannsóknir staðfesta
virkni.
• Fjallagrös sem eru vel þekkt fyrir
sín góðu áhrif í gegnum tíðina.
Við styrkjum blönduna með
öflugri blöndu af meltingarens
ímum, Cvítamíni, krómi, joði og
sinki.
Athugið að ekki má taka Dvíta
mín eða önnur fituleysanleg víta
mín á sama tíma. Látið líða sirka
tvær klukkustundir á milli.
Íslensku hráefnin sem notuð eru
í Eylífvörurnar eru: kalkþörungar
frá Bíldudal, smáþörungar (Astax
anthin) frá Reykjanesbæ, GeoSilica
frá Hellisheiði, kollagen frá Sauðár
króki og kítósan frá Siglufirði.
Íslenskar jurtir eru handtíndar
frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnar
firði. Hrein hráefni og íslensk
framleiðsla.
Fæst í öllum apótekum, Hagkaup,
Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum,
Nettó og á eylif.is þar sem hægt er
að fá fría heimsendingu.
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn
fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað
börnum eða barnshafandi konum.
Ekki er ráðlagt að taka meira en ráð
lagður dagskammtur segir til um.
Geymist þar sem börn ná ekki til.
Active Joints er það
allra besta bætiefni
sem ég hef tekið inn.
Mér líður svo mikið
betur og hef miklu meiri
liðleika, sem eru mikil
lífsgæði fyrir mig.
Ólafía Ingólfsdóttir
Þórdís S. Hannesdóttir
2 kynningarblað A L LT 3. apríl 2021 LAUGARDAGUR