Fréttablaðið - 03.04.2021, Síða 37

Fréttablaðið - 03.04.2021, Síða 37
EFLA leitar að öflugum leiðtogum með sérfræðiþekkingu í samgöngum. Um er að ræða störf í fagteymi vega og mælinga þar sem starfa þrettán sérfræðingar sem taka þátt í þverfaglegum verkefnum í mismunandi teymum. Fagteymið sinnir fjölbreyttum verkefnum í samgöngum sem snúa að hönnunar- og verkefnastjórnun, veg-, gatna- og stígahönnun, viðhaldi vega, ásamt eftirliti með vega- og gatnaframkvæmdum. HELSTU VERKEFNI • Hönnunar- og verkefnastjórnun • Gerð útboðs- og verklýsinga • Veg-, gatna- og stígahönnun • Tilboðsgerð HÆFNISKRÖFUR • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. byggingarverk- eða byggingartæknifræði, með áherslu á vegi/samgöngur • Kunnátta á notkun hönnunarforrita t.d. NovaPoint, Civil3D, AutoCad o.fl. • Gott vald á íslensku og ensku, þekking á Norðurlandamáli er kostur • Leiðtoga- og skipulagshæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. EFLA vill fá til liðs við sig kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Við bjóðum upp á afbragðs starfs- umhverfi, áhugaverðan starfsvettvang í alþjóðlegu umhverfi og góðan starfsanda. Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum ráðningarvef EFLU, www.efla.is/laus-storf fyrir 17. apríl 2021. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. NÁNARI UPPLÝSINGAR Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, sviðsstjóri Mannauðsviðs (iss@efla.is) efla.is412 6000 Ert þú framúrskarandi? Stafræn framtíð Við leitum að reyndum stjórnanda sem býr yfir: • Framsýni, metnaði, samskipta- og skipulagsfærni • Árangursríkri reynslu af stjórnun • Færni í að skapa liðsheild ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu hugarfari • Árangursríkri reynslu af stefnumótun og áætlanagerð • Háskólaprófi sem nýtist í starfi ásamt meistaraprófi eða mikilli reynslu sem nýtist í starfi • Góðri færni í íslensku og ensku í ræðu og riti • Þekking og reynsla af fjarskipta- og netöryggismálum æskileg • Reynsla á sviði nýsköpunar og tækni æskileg • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leitar að stjórnanda sem hefur brennandi áhuga, þekkingu og/eða reynslu af stafrænni þróun til að stjórna skrifstofu stafrænna samskipta hjá ráðuneytinu. Hlutverk skrifstofunnar er að leiða og styðja við stafræna þróun í samfélaginu m.a. með mótun og eftirfylgni stefnu á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni þar með töldum netöryggismálum. Þá krefjast verkefni skrifstofunnar töluverðra alþjóðasamskipta. Við leitum að einstaklingi sem vill ná árangri fyrir samfélagið með því að mæta áskorunum og nýta tækifæri sem fylgja stafrænum samskiptum og fjarskiptatækni. Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 9. apríl. Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, ragnhildur.hjaltadottir@srn.is eða 545-8200. Umsóknum skal skila rafrænt á starfatorg.is Skipað verður í embætti skrifstofustjóra til fimm ára frá og með 1. júní nk. Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.