Fréttablaðið - 03.04.2021, Page 4
RAFMAGNAÐ ÆVINTÝRI MEÐ ALVÖRU 4X4
Einu rafknúnu Plug-In Hybrid jepparnir í sínum stærðarflokki með lágt drif.
Ótrúlegt verð á bílum hlöðnum lúxusbúnaði.
JEEP COMPASS PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.999.000 KR.* JEEP RENEGADE PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.499.000 KR.*
*G
ildir m
eðan birgðir endast, hvítur R
enegade, svartur Com
pass Lim
ited.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 • LOKAÐ LAUGARDAG FYRIR PÁSKA
MENNTAMÁL „Miðað við hlutföll
í bóknám og starfsnám þá vekur
athygli að rúmlega helmingur fari
í starfsnám,“ segir Arnar Sigbjörns-
son hjá Menntastofnun en nýverið
kom út skýrslan Nemendasamsetn-
ing í framhaldsskólum á vorönn.
Umsóknir í starfsnám eru 52,2 pró-
sent af heildarfjölda en í almennt
bóknám 34,3 prósent. Alls sóttu
um 13 prósent í undirbúningsnám.
Stutt er síðan ný reglugerð um
vinnustaðanám tók gildi sem felur í
sér grundvallarbreytingu í þjónustu
skóla við nemendur.
Fram til þessa hafa nemar í starfs-
námi verið sjálfir ábyrgir fyrir því
að komast á námssamning, en með
nýju reglugerðinni færist ábyrgðin á
að komast á samning frá nemanum
og yfir á skólana sjálfa.
Skólarnir bera nú ábyrgð á að
finna vinnustað þar sem neminn
fær leiðsögn og æfingu við raunað-
stæður. Önnur breyting er sú að ef
ekki tekst að koma nema á samning
tekur svokölluð skólaleið við þar
sem skólinn þarf að sjá til þess að
neminn fái nauðsynlega þjálfun
jafnvel á f leiri en einum vinnustað.
Þriðja breytingin er sú að horft
verður til hæfni nemans við ákvörð-
un um lengd vinnustaðanáms.
Þetta er í annað sinn sem Mennta-
stofnun tekur þessar tölur saman og
í fyrsta sinn á vorönn. Arnar segir að
þessi breyting sé hluti af þeirri raf-
rænu ferilbók sem unnið er að og
ekki komi lengur rof í feril nemenda
til að finna samning. „Þetta eykur
öryggið hjá nemendum en hvort
þetta sé að gerast strax, ég treysti
mér ekki alveg að segja til um það.“
Gamla góða bóknámið stendur
samt alveg enn fyrir sínu enda
dreymir marga foreldra um að börn
þeirra skari fram úr í bóknámi jafn-
vel þótt börnin hafi lítinn áhuga á
því. „Það hefur verið talað um þetta
sem foreldravandamál frekar en
nemendavandamál. Það eru for-
eldrarnir sem eiga sér þann draum
að börnin feti bóknámsleiðina.
Það er ekki alltaf nemandanum til
góða,“ segir Arnar og bendir á að því
eldri sem nemendur eru, því líklegri
eru þeir til að fara í starfsnám.
„Þetta eru nemendur sem hafa
byrjað í bóklegu námi en hætt
mögulega og fara nú aftur í nám og
velja þá starfsnám. Eða þetta eru
nemendur sem byrja seinna og vita
hvað þeir vilja læra. Það er margt
sem er athyglisvert í þessu en líka
margt sem kallar á frekari rýni.“
Náttúrufræði- og félagsfræði-
brautir eru til dæmis enn vinsæl-
ustu brautirnar en ný braut, opna
brautin, fylgir í humátt á eftir. „Það
er stúdentsbraut þar sem nemendur
hafa býsna mikið val um hvernig
þeir setja námið sitt saman. Í náms-
skrárbreytingum sem hafa gengið
í gegn síðasta áratug hafa margir
skólar tekið þessa leið upp, sem
ég held að sé hugsuð fyrir þá nem-
endur sem hafa skýran fókus á hvað
þeir vilja læra. Það er lítill kjarni en
nemendur geta síðan sett námið
saman. Þeir ætla til dæmis að verða
flugmenn og það passar engin braut
í skólanum við það en þá geta þeir
notað valið sem þeir hafa á þessari
braut, sem er býsna mikið, til að
undirbúa sig sem best í það nám
sem þeir ætla í.“
benediktboas@frettabladid.is
Foreldravandamál að hlusta
ekki á hvað börnin vilja læra
Umsóknir í starfsnám eru yfir helmingur af heildarfjölda umsókna í framhaldsskólana á vorönn, miðað
við þrettán prósent í haust. Reglubreyting um að ábyrgðinni sé komið yfir á skólana tók gildi í febrúar
en fram að því þurftu nemar að koma sér sjálfir á starfssamning. Flestir nemendur byrja þó í bóknámi.
Borgarholtsskóli býður upp á ýmsar starfsnámsbrautir. Hér má sjá tvo
nema í bílamálun, sem er vinsæl meðal stúlkna. MYND/BORGARHOLTSSKÓLI
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
25 ára og eldri
19-24 ára
17-18 ára
16 ára og yngri
Almennt
bóknám
Starfs-
nám Undirbúnings-nám
Starfsbrautir
17,2%
51,6%
74,0%
70,2% 14,0% 12,4%
17,7% 4,8%
36,9% 9,4%
71,9% 10,9% 0,0%
2,1%
3,5%
3,4%
✿ Skipting nemenda á námsleiðum eftir aldri
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
55,7%
44,1%
33,4%
66,5%
44,2%
55,0%
33,3%
66,7%
70%
Almennt
bóknám
KVK KK
Starfs-
nám
Undir-
búnings-
nám
Starfs-
brautir
✿ Kynjaskipting í íslensk-
um framhaldsskólum
eftir námsleiðum
TÖLUR VIKUNNAR 28.03.2021 TIL 03.04.2021
1.200
milljónir er áætlað söluverð hluta-
bréfa Íslandsbanka í Visa Inc.
27
prósenta áfengismagn er
í bjórnum Krosslafi sem
bruggaður er til minningar
um Helga Hóseasson.
49.289
manns hafa fengið bóluefni
við COVID-19 hér á landi.
hafa heimsótt
gosstöðvarnar
síðustu sjö
daga.
24.602 89,2
prósenta jafnrétti
er á Íslandi sam-
kvæmt skýrslu
Alþjóðaefnahags-
ráðsins um kynja-
jafnrétti í heiminum.
Þrjú í fréttum
stjóri, leikstjóri
og vígslubiskup
Halldór Benjamín
Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA
vill stjórnsýsluút-
tekt á Samkeppn-
iseftirlitinu og
segir samskipti
þess við fyrirtæki
komin í öngstræti.
Eftir sættir við eftir-
litið hefur Festi þurft að
greiða 56 milljónir króna til óháðs
kunnáttumanns frá árinu 2018.
Halldór segir þetta mál aðeins eitt
af mörgum sem þurfi að skoða.
Stefanía Thors,
leikstjóri og handritshöfundur
ge r ði hei m i ld a r-
my nd um Hús-
mæðr a skóla n n
á s a m t H e l g a
Svavari Helga-
s y n i . My nd i n
verður sýnd á RÚV
á páskadag. Myndin
var frumsýnd á Hot-Docs, stærstu
heimildarmyndahátíð Ameríku
í fyrra. Vegna heimsfaraldursins
mátti ekki sýna hana í bíósal heldur
þurfti að streyma henni á netinu.
Upphaf lega fannst Stefaníu hug-
myndin um húsmæðraskóla úrelt
en snerist hugur við gerð myndar-
innar.
Kristján Björnsson,
vígslubiskup í Skálholti
er kátur yfir því að
hjólin séu loksins
farin að snúast
hvað tímabærar
endu rbæt u r á
Skálholtsk irkju
varðar. Útboðsgögn
liggja brátt fyrir og
undirbúningur að f lutningi bóka-
safnsins er hafinn en þangað flæddi
inn um kirkjuturninn og minnstu
mátti muna að stórskaði yrði. Gera
þarf nýtt þak, kirkjuklukkur, laga
steypu og mála allt innan og utan.
Safnað er fyrir framkvæmdunum
en kirkjuráð ábyrgist verkið.
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð