Fréttablaðið - 03.04.2021, Side 10
Alla daga,
örugg ferð
Sérhönnuð fjölskylduhjól
til að ferja fjölskylduna og allt
sem þér er kært á milli staða.
Hannaðu þitt hjól í dag!
Sendu tölvupóst á krumma@krumma.is
og pantaðu reynsluakstur.
Nánari upplýsingar á
krumma.is/fjolskylduhjol
Gylfaflöt 7, 112 Reykjavík
TAÍVAN Yfir f immtíu eru látnir
og yfir hundrað særðir eftir að lest
með um 500 farþega keyrði á mann-
lausan flutningabíl nálægt borginni
Hualien á Taívan á föstudag.
Bíllinn var í eigu iðnaðarmanns
sem hafði lagt honum án hand-
bremsu á nálægu byggingarsvæði.
Bíllinn rann stjórnlaust niður fjalls-
hlíð og yfir á lestarteinana. Nokkr-
um mínútum síðar keyrði lestin inn
í hlið bílsins nálægt göngum.
„Margir krömdust undir lestar-
sætunum í árekstrinum. Ofan á sæt-
unum voru svo aðrir farþegar þann-
ig að þeir sem lentu undir krömdust
og misstu meðvitund,“ sagði særður
farþegi í viðtali við taívönsku sjón-
varpsstöðina EBC.
Á meðal látinna voru lestarstjóri
og aðstoðarlestarstjóri lestarinnar.
Lestaryfirvöld á Taívan segja þetta
vera mannskæðasta lestarslys í
sögu landsins. Slysið átti sér stað
á fyrsta degi árlegrar trúarhátíðar
þar sem fjölskyldur koma saman og
heimsækja grafreiti ættingja sinna.
Álag var því á lestarkerfinu. – þsh
Tugir fórust
í lestarslysi á
Taívan í gær
Björgunarmenn bera líkpoka út úr
lestarvagninum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
BANDARÍKIN Samkvæmt nýjustu
tilmælum Sóttvarnastofnunar
Bandaríkjanna (CDC) er fullbólu-
settum Bandaríkjamönnum frjálst
að ferðast bæði innanlands og
utanlands svo lengi sem þeir fylgja
helstu sóttvarnareglum.
Samkvæmt tilmælunum þurfa
fullbólusettir Bandaríkjamenn nú
ekki að gangast undir sýnatöku
fyrir brottför, nema landsyfirvöld
á áfangastað krefjist þess, né heldur
þurfa þeir að gangast undir sóttkví
við heimkomu, nema staðaryfir-
völd krefjist þess sérstaklega.
Í tilmælunum, sem gefin voru út á
föstudag, segir meðal annars:
„Fullbólusettir ferðalangar eru
ólíklegri til að smitast af og dreifa
COVID-19. Hins vegar myndast
aukin áhætta við millilandaflug og
jafnvel fullbólusettir ferðalangar
eru undir aukinni hættu á að smit-
ast af og dreifa COVID-19.“
Í frétt New York Times um málið
er ranglega greint frá því að banda-
rískir ferðalangar sem hafa verið
fullbólusettir eða geta sýnt fram
á vottorð um fyrri sýkingu, geti
ferðast til Íslands án þess að þurfa
að sæta sýnatöku eða sóttkví. Fjöl-
miðillinn vísar þar í úreltar upp-
lýsingar frá vef Stjórnarráðsins sem
hafði greint frá því um miðjan mars
að undanþágur á sóttvarnareglum
fyrir bólusetta einstaklinga sem
ferðast hingað til lands yrðu fram-
lengdar til ferðamanna utan Schen-
gen-ríkja frá og með 26. mars.
Samkvæmt nýjum sóttvarna-
reglum sem tóku gildi á landa-
mærum Íslands 1. apríl þurfa allir
ferðamenn að gangast undir tvær
sýnatökur og fimm daga sóttkví
við komu. Þeir sem geta sýnt fram á
bólusetningarvottorð eða vottorð
um fyrra smit þurfa ekki að fara í
sóttkví en eina sýnatöku.
Bólusetningar hafa gengið hratt
fyrir sig í Bandaríkjunum undan-
farnar vikur. Hafa nú tæpar 58
milljónir, eða 17,5 prósent, verið
fullbólusettar og 101 milljón, um
30 prósent, fengið fyrsta skammt.
Á fyrsta blaðamannafundi emb-
ættistíðar Joes Biden Bandaríkjafor-
seta, sem haldinn var í Hvíta húsinu
25. mars síðastliðinn, lofaði Biden
að gefa 200 milljónir skammta af
bóluefni á fyrstu hundrað dögum
forsetatíðar sinnar.
thorvaldur@frettabladid.is
Heimila ferðir bólusettra jafnt
innanlands sem og utanlands
Fullbólusettum Bandaríkjamönnum er nú heimilt að ferðast innanlands og utanlands án þess að gang-
ast undir sýnatöku eða sóttkví. Dagblaðið New York Times greinir ranglega frá því að Bandaríkjamenn
með gilt bólusetningarvottorð geti ferðast til Íslands án nokkurra hafta. 58 milljónir eru fullbólusettar.
New York Times greinir
ranglega frá því að bólu-
settir geti ferðast til Íslands
án nokkurra hafta.
Bólusetningarvottorð Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna. 58 milljónir eru nú fullbólusettar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð