Fréttablaðið - 03.04.2021, Side 28
deiginu jafnt á milli formanna
(fyrra deiginu í þessi fjögur 15 cm
form og seinna deigi í þessi þrjú
20 cm form) og bakið í um 30-35
mínútur eða þar til prjónn kemur
út með smá kökumylsnu á en ekki
blautu deigi. Kælið botnana vel og
skerið svo ofan af botnunum svo
þeir verði alveg sléttir og kælið þá.
Krem
500 g smjör við stofuhita
300 g rjómaostur við stofuhita
1.800 g flórsykur
100 ml rjómi
2 tsk. vanillusykur
Þeytið smjör og rjómaost saman
í nokkrar mínútur, skafið niður
á milli. Bætið f lórsykri, rjóma
og vanillusykri saman við í
nokkrum skömmtum og skafið
vel niður. Smyrjið um 1 cm þykku
lagi af kremi á milli botnanna
á hvorri köku og hjúpið að utan
með þunnu lagi svo það sjáist í
hliðarnar á botnunum. Það má
þó vera meira krem á toppnum
sjálfum. Athugið að minni kakan
þarf að sitja á pappaspjaldi til þess
að geta farið ofan á hina síðar.
Skafið hliðarnar sléttar og ef krem
ýtist upp á toppinn á köntunum
eins og á þessari köku er nátt-
úrulegt og skemmtilegt að leyfa
því bara að standa þannig í stað
þess að draga það inn á kökuna
sjálfa og slétta úr því. Kælið hvora
köku um sig vel, gott að setja þá
minni í frystinn í um klukku-
stund áður en þið lyftið henni yfir
á hina. Setjið stoðir í neðri kökuna
og lyftið hinni ákveðið ofan á
hana og skreytið að lokum með
ferskum blómum eða því sem
hugurinn girnist.
Fyllt kransakökuhjarta
(3 hæðir og 35-40 bitar)
1,5 kg ODENSE marsípan
(þetta bleika)
750 g sykur
100 g eggjahvítur (um 3 stk.)
Brytjið marsípanið niður í
nokkra hluta og setjið í hræri-
vélarskál með sykrinum, blandið
vel saman með K-inu. Hrærið
eggjahvíturnar saman og setjið í
nokkrum skömmtum saman við
marsípanblönduna. Gott að taka
síðan blönduna og hnoða aðeins í
höndunum, plasta vel og kæla í að
minnsta kosti 4 klst. eða yfir nótt.
Teiknið hjarta á bökunarpappír
og dragið í gegn svo þið hafið þrjú
eins hjörtu á pappír. Ég teiknaði
eins stór og platan þoldi en auð-
vitað má gera þau í þeirri stærð
sem þið óskið. Skiptið deiginu í 4
hluta. Síðan má skipta 3 af þeim í
tvennt og rúlla út sitt hvora lengj-
una fyrir hjartað sitt hvoru megin
(ég var með um 300 g af marsípani
þegar ég var að rúlla út hvern
helming af hjörtunum). Hvor
lengja má vera um 2 cm á þykkt
og í kringum 50 cm á lengd (fer
eftir stærð hjartans hjá ykkur) og
skera má af henni í miðjunni efst
og neðst til að þær smelli saman.
Reynið að láta lengjuna elta hjarta-
teikninguna ykkar miðja og þann-
ig verða öll hjörtun svipað stór. Allt
umfram marsípan má síðan nýta
til að skera út bita, um 6 cm langa.
Bakið hjörtun við 190°C í um 13
mínútur (ofnar eru misjafnir svo
hér þarf bara að fylgjast vel með og
taka þau út þegar þau eru farin að
dökkna) og bitana aðeins styttra.
Kælið vel og sprautið fyrst hvítu
og síðan dökku súkkulaði yfir og
raðið saman. Ég bræddi súkku-
laði og setti í sprautupoka með
pínulitlum hringstút en einnig
má klippa pínulítið gat á zip-lock
poka/sprautupokann. Einnig er
hægt að frysta hjörtun/bitana
og raða þeim saman síðar en þá
er betra að bíða með að sprauta
súkkulaðinu á þar til raða á þeim
saman en þó ekki nauðsynlegt.
Fyllið hjartað að innan með því
sem hugurinn girnist og skreytið
að vild. Ég setti súkkulaðihjúpuð
jarðarber, kransakökubitana
auðvitað og makkarónur (keyptar
tilbúnar) ofan í og skreytti með
ferskum blómum og það kom mjög
vel út.
Berglind Hreiðars er köku- og
matarbloggari hjá Gotteríi og
gersemum. Við fengum hana til
að baka og skreyta kökur sem
tilvaldar eru til að bera fram á
sælkerakræsingaborðinu og
gleðja bæði augu og munn.
Tilefnið var að að slá upp ferming-
arveislu fyrir áhorfendur þáttarins
Matur og Heimili þar sem hugsað
var fyrir heildarumgjörð veislunnar
með glæsilegri útkomu. Toppurinn
á sælkerakræsingaborðinu er
gjarnan kaka sem er oftar en ekki
gerð í anda fermingarbarnsins. „Eitt
það skemmtilegasta sem ég geri er
að baka köku fyrir veislu sem prýðir
þema veislunnar og þá koma lifandi
blóm sterk inn í þessu tilviki,“ segir
Berglind sem er annáluð fyrir að slá
upp veislum þar sem umgjörðin og
þemað er tekið alla leið og upplifun
gesta eftir því.
Berglind bakaði og skreytti stór-
fenglega bera súkkulaðiköku með
rjómaostakremi sem skreytt var á
einfaldan hátt þar sem lifandi blóm
voru í forgrunni. En þar sem hún
var byrjuð í bakstrinum ákvað hún
að baka líka eina kransaköku og
fylla með sætum bitum og ferskum
berjum. „Ég notaði sama magn af
marsípani í þessa uppskrift fyrir
kransakökuhjartað eins og ég geri
fyrir heila kransaköku því ég ákvað
að hafa hjörtun aðeins breiðari
en hringina fyrir kökuna og síðan
gerði ég fullt af litlum kransaköku-
bitum til að setja ofan í hjartað.“
Súkkulaðikaka með
rjómaostakremi
Botnar
Þessi uppskrift x 2
(hrært í sitt hvoru lagi)
240 g hveiti
350 g sykur
90 g Cadburys bökunarkakó
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
250 ml súrmjólk
150 ml matarolía
4 egg
250 ml heitt vatn
1 tsk. vanilludropar
Hitið ofninn í 170°C. Hrærið saman
öllum þurrefnum í eina skál og
leggið til hliðar. Pískið eggin og
blandið súrmjólk, olíu, vanillu-
dropum og vatni saman við. Hellið
vökvanum varlega saman við þurr-
efnin, hrærið og skafið niður á milli
(deigið er þunnt og það á að vera
þannig). Takið til 4x15 cm form
og 3x20 cm form, setjið bökunar-
pappír í botninn og spreyið vel að
innan með matarolíuspreyi. Skiptið
Stórfenglegar veislukökur sem slá í gegn
Berglindi
Hreiðars, köku-
og matarblogg-
ara hjá Gotteríi
og gersemum,
galdrar fram
glæsilegar
veislutertur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Fyllt kransakaka sem er hjartalaga.
Hægt er að fylla með ýmsu góðgæti.
Fallegt veisluborð gleður augað, ekki síst þegar lifandi blóm fá að njóta sín.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Engin venjuleg súkkulaðikaka og sómir sér vel á veisluborði, hvort sem það
eru páskar eða ferming. Berglind gefur uppskrift að þessari hnallþóru.
Leiftrandi hugmyndarík
og ögrandi!
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
4 kynningarblað A L LT 3. apríl 2021 LAUGARDAGUR