Fréttablaðið - 03.04.2021, Síða 29

Fréttablaðið - 03.04.2021, Síða 29
Vegna aukinna umsvifa á Íslandi og á erlendum mörkuðum leitar Zymetech ehf. að starfsfólki til starfa hjá framsæknum líftæknifyrirtæki. Menntunar- og hæfniskröfur: Starfsmaður í Cryotin verksmiðju Starfsmaður á sviði gæðatryggingar (QA) Spennandi störf í líftækniiðnaði Zymetech leitar að starfsmanni í Cryotin verksmiðju fyrirtækisins. Cryotin er ensímblanda sem unnin er úr Atlantshafsþorski. Zymetech hefur fjárfest í nýjum tækjabúnaði sem verið er að taka í notkun. Við leitum að ábyrgum, samviskusömum og sjálfstæðum einstaklingi sem mun starfa í framleiðsluteymi fyrirtækisins. Í boði eru áhugaverð framtíðarstörf hjá litlu og framsæknu líftæknifyrirtæki í skemmtilegu starfsumhverfi sem starfar þétt með móðurfélagi sínu í Svíþjóð og á alþjóðamarkaði. Zymetech var stofnað árið 1999 og hefur sérhæft sig í rannsóknum á virkni þorskensíma og framleiðslu á ensímunum. Ensímin eru notuð í lækningatæki og snyrtivörur sem fyrirtækin þróa og selja. Zymetech ehf. sameinaðist sænska líftæknifyrirtækinu Enzymatica AB árið 2016 en síðarnefnda fyrirtækið er skráð á Nasdaq First North hlutabréfamarkaðinn í Stokkhólmi. Dæmi um vörur fyrirtækjanna eru PENZIM húðáburðurinn sem seldur er á Íslandi og PreCold® munnúði gegn kvefi. PreCold® (einnig kallað ColdZyme®) er nú selt víðsvegar um Evrópu og Asíu. Zymetech ehf. er staðsett í líflegu umhverfi á Grandanum í Reykjavík. Nánari upplýsingar um fyrirtækin má nálgast á: www.zymetech.is og www.enzymatica.com Zymetech leitar að starfsmanni á gæðatryggingasviði (quality assurance). Zymetech framleiðir ensím sem notuð eru í lækningatæki og snyrtivörur. Gæðakerfi fyrirtækisins er ISO 9001 vottað og ensímin eru framleidd samkvæmt GMP stöðlum. Starfsmaðurinn mun taka þátt í daglegum störfum sem snúa að framleiðslugæðum ensímanna ásamt viðhaldi og betrumbótum á gæðakerfinu. Menntunar- og hæfniskröfur: Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. lyfjafræði, verkfræði eða sambærilegt • Reynsla af vinnu við gæðakerfi er áskilin • Reynsla úr lækningatækja- eða lyfjaiðnaði og/eða GMP umhverfi er æskileg • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Góðir samskiptahæfileikar og færni í teymisvinnu eru mikilvægir kostir • Gott vald á ensku í töluðu og rituðu máli • Reynsla í framleiðslu lyfja, fæðubótaefna eða matvæla • Áhugi á tækni og færni í notkun tölvubúnaðar er kostur • Menntun sem nýtist í starfi • Agi, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Reglusemi og stundvísi eru áskilin • Góðir samskiptahæfileikar og gott vald á enskri tungu og rituðu máli Nánari upplýsingar um starfið veita: Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) í síma 511 1225. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.