Fréttablaðið - 03.04.2021, Page 50

Fréttablaðið - 03.04.2021, Page 50
Enn er mér í fersku minni ferðin góða á útitónleika ensku s t ó r s v e i t a r i n n a r P r o col H a r u m í D a n mör k u . Æ t l i þeir hafi ekki verið sumarið 2006. Og fundinn staður í snoturri dal- bót á miðju Sjálandi, suðvestur af Hróarskeldu, þar sem heitir Ledreborg, hvar ríkisstjórinn Johan Ludwig Holstein lét reisa sér ríkulega efnaðan kastala um miðja átjándu öld, byggðan í bar- okk-stíl. Hann er meðal fegursta húsa Danmerkur – og talsverð áminning um að gamla herra- þjóðin reisti híbýli sín heldur lengra upp úr jörðinni en Íslendingar í gamla daga. Þangað streymdu tón- leikagestirnir í skipulagðri röð fyrir svo sem eins og hálfum öðrum áratug. Og ég minnist sérstaklega heilu fjöl- skyldnanna úr nálægu þéttbýli, með blístrið á vörunum, sem ýmist báru sólstóla og samfellu- borð á herðum sér, ellegar tága- körfur í hendi, barmafullar af bjórdósum og ákavítisf löskum, innan um smurbrauðsbauka og kavíarkrukkur. Danskara gat það ekki verið. Og liðið var ligeglad.  Svo settist það í brekkurnar, margmennið allt saman, eins og vel skipulagður hópur af háttvísu fólki, um tuttugu þúsund manns – og það var ekki að sjá að nokkur þvaga myndaðist um alla endi- langa kvosina í þann mund sem múgurinn var að koma sér þar fyrir heldur fékk þar hver einasta sála sitt pláss fyrir djúpa stóla og dúkað borð sem fumlaust voru fyllt af heimagerðum kræsingum. Svo liðu fyrstu tónar A Salty Dog yfir dalinn. Og mannskapur- inn hallaði sér aftur með snafsinn og snittuna á lofti, lygndi aftur augum og lét sér líka allt til enda þegar A Whiter Shade of Pale vætti vanga og kinn, sá ómþýði ópus sem sagður er saminn í sjö- unda himni.  Ógleymanleg stund. Yndislega dönsk. Afslöppuð.  En ekki var augnablikið ómerki- legra þegar ég leit um öxl, að af loknum tónleikunum og horfði yfir dal skvompuna eftir að mann- skapurinn var farinn að tygja sig heim á leið. Ég ætlaði ekki að trúa eigin augum. Það sá ekki á svæðinu. Hver einasti gestur hafði tekið til eftir sig. Það sást ekki sérvíetta á fjúki, hvað þá gleymdar glerf löskur, eða matur sem misst hafði marks. Hvammurinn var alveg eins og að honum var komið.  Og samt sem áður gerum við Íslendingar okkur þá mynd af Dönum að þar fari f líruleg þjóð, sem fljóti í gegnum dagana í dæma- lausum hálf kæringi, svo til óafvit- andi um umhverfi sitt – og ef ekki góðglöð, þá puntuð.  Því er á þetta minnst að ekki liðu margir sólarhringar frá því að jarðeldarnir rifu jörð á Reykjanes- skaga á Íslandi að bjórdósirnar og bréfmiðarnir byrjuðu að safnast fyrir í hraunjaðrinum, innan um sælgætispoka og salernispappír, svo og annan óþrifnað. Eyjarskeggjarnir, sem einatt telja sig á pari við prýðilegustu stórþjóð- ir á yfirborði jarðar, eigruðu sum sé inn í eldspúandi dalina með drykki sína og drjúgan kost, þess fullvissir sem fyrr að óbyggðirnar taki lengi við, líkt og hafið allt í kringum þá hefur gert um aldir. Og svo makalaus er þessi mann- skapur allur, að minnsta kosti hluti hans, að hann á auðveldara með að fara með fullar dósir á fjöll en tómar til baka.  Sóðaskapu r er almennu r á Íslandi. Og hann tekur á sig undar- legustu myndir. Einna alvana- legastar eru allar tyggjóklessurnar eftir endilöngum gangstéttum bæja og borgar. Og ef menn hafa fyrir því að horfa upp úr þeim ósköpum blasir veggjakrotið við á húsalengj- unum í kring. Það er sama hvert litið er. Víðast hvar á gatnamótum getur að líta óhroðann allan af rusli og ranimoski, svo sem sígarettustubba og samlokubréf, svo og drykkjar- fernur og dósir undir munntóbak. Allt þetta af hrak liggur eins og hráviði út um umferðareyjar og undir vegriðum. Og ekki er við götusóparana að sakast sem hafa ekki undan að moka þessu mann- anna mori upp á pall og aka á burt. Ætli þetta stafi af hugsunarleysi? Stutta svarið er nei. Lengra svarið er skortur á umhyggjusemi fyrir öllu því sem er í kringum okkur, altso umhverfinu, inn til bæja og upp um fjöll. Eða hvað getur maður annað sagt eftir að hafa horft á ökumanninn í bílnum fyrir framan sig stöðva til- hlýðilega við rauða ljósið á gatna- mótunum, opna bílstjórahurðina hálfvegis upp gátt og sturta úr öskubakka bílsins á bera götuna fyrir neðan. Eins og ekkert sé sjálf- sagðara. Á Íslandi er þetta ekki óalgeng sjón. Af því að gatan er gólfsóp. Það tekur þetta einhver annar upp.  Ungum var mér kennt það til fjalla að taka þaðan allt saman með mér sem ég bæri þangað upp eftir. Allt saman. Líka bananahýðið. Eða vömbina utan af lifrarpylsunni. Og roðið allt af harðfiskinum. Það er nefnilega svo að allt það lífræna úrkast, sem við höldum að náttúran upp til fjalla nærist á, fer ekki þaðan svo glatt. Kuldinn í efra er alla jafna meiri en svo að það brotni auðveldlega niður. Og því getur göngumaður komið ára- fjöldunum seinna í gamla nestis- staðinn sinn og séð þar leifarnar af löngu étnum föngum sínum. Og er það hugsunarleysi? Nei, varla. Öllu frekar skeytingarleysi, einfaldlega sú hugsun að fjöllin megi eiga það sem úti frýs. Já, og náttúran nær og fjær.  Danir öfunda okkur margir af ægifagurri náttúru sem vísast á ekki sinn líka í heimi hér. Þeir hafa ferðast hingað öldum saman til að kynnast þessum mestu kenjum jarðarinnar. Okkar óspilltu víð- ernum. Eða hvað? Út fyrir kassann Sigmundur Ernir Rúnarsson Höfundur er sjónvarpsstjóri Hringbrautar, sem rekin er af Torgi, sem jafn- framt gefur út Fréttablaðið. Íslenskur sóðaskapur OG SVO MAKALAUS ER ÞESSI MANNSKAPUR ALLUR, AÐ MINNSTA KOSTI HLUTI HANS, AÐ HANN Á AUÐVELDARA MEÐ AÐ FARA MEÐ FULLAR DÓSIR Á FJÖLL EN TÓMAR TIL BAKA. 3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.