Fréttablaðið - 03.04.2021, Qupperneq 52
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erna Sveinbjörnsdóttir
Strikinu 12, Garðabæ,
lést 27. mars. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 8. apríl
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni:
https://youtu.be/dkpCjuMptak
Friðrik S. Halldórsson Bergljót Friðriksdóttir
Elínborg Halldórsdóttir
Sveinbjörn Halldórsson Ingibjörg Erna Sigurðardóttir
Margrét Halldórsdóttir Jóhann Viktor Steimann
Erna Gunnþórsdóttir Óli Rúnar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Þóru Hjaltadóttur
Grænumýri 12, Seltjarnarnesi.
Sara Þórunn Óladóttir Houe Sölvi Þórðarson
Hjalti Thomas Houe Sólrún Fönn Þórðardóttir
og barnabörn.
Okkar kærleiksríka móðir og
tengdamóðir,
Margrét Jóna Ísleifsdóttir
Hvolsvegi 19,
Hvolsvelli,
er látin.
Guðríður Björk Pálmadóttir
Ingibjörg Pálmadóttir Haraldur Sturlaugsson
Ísólfur Gylfi Pálmason Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórdís Kristinsdóttir
Eiðsvallagötu 8, Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði að morgni föstudagsins
26. mars. Útförin fer fram föstudaginn
9. apríl kl. 13.00 frá Akureyrarkirkju. Vegna aðstæðna
í þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina. Hægt verður að nálgast streymi á
Facebooksíðunni - Jarðarfarir í Akureyrarkirkju.
Kristinn Björnsson Amphon Bansong
Úlfar Kristinsson Hafdís Sigmarsdóttir
Guðrún Sigríður Kristinsdóttir Ómar Torfason
Óskar Teitur Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ágúst Hjálmarsson
Ásfelli 4, Hvalfjarðarsveit,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, fimmtudaginn 25. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 8. apríl kl. 14. með fjölskyldu og nánustu
vinum. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju
www.akraneskirkja.is
Jóhann Ragnar Ágústsson Leskova Yanina
Sunneva Ágústa Tanja
Hanna Bára Adela Eyrún
Sæunn Jódís Marten Leon
Ágúst Páll Elína Valey
langafabörnin.
Elskulega systir mín og mágkona,
Bettý Kristín Fearon
hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, fimmtudaginn 25. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 8. apríl
kl. 11.00. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu óskum við eftir
að þeir sem vilja koma sendi tölvupóst á
mariaolafs35@gmail.com. Streymt verður frá útförinni á
vef Akraneskirkju. www.akraneskirkja.is
Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
á Lyflækningadeild Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, og á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða.
Fyrir hönd ættingja og ástvina,
Róbert Fearon og Hildur Óskarsdóttir
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com
Elskulegur sambýlismaður minn,
sonur, bróðir, vinur, mágur og frændi,
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Vesturgötu 111,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann
22. mars síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þann
6. apríl kl. 13. Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánustu
ástvinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á vef
Akraneskirkju: akraneskirkja.is/utfarir/
Kristbjörg Smáradóttir Hansen
Sigurlín Gunnarsdóttir Eiríkur Jónsson
Ásgeir Egilsson Sara Sofía Roa Campo
systkini, vinir og aðstandendur.
Elsku besta mamma okkar,
tengdamóðir og amma,
Dagný Guðmundsdóttir
Hraunhólum 18, Garðabæ,
lést föstudaginn 26. mars.
Útför fer fram í kyrrþey að hennar ósk.
Rósa Dögg Jónsdóttir
Helgi Hrannarr Jónsson Harpa Rós Gísladóttir
Dagur Geir Jónsson Elísa Rut Hallgrímsdóttir
og barnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Er þitt landssvæði veirufrítt Hjörleifur?Já, ég held að sveitarfélagið sé veirufrítt. Reyndar er ég ekki besti maðurinn til að upplýsa neitt um það því ég
bý í Reykjavík yfir veturinn og var að
koma í páskafrí.
Eru þá ekki allir skíthræddir við þig?
Jú, örugglega, ég held mig bara til hlés.
Er snjór í Svarfaðardal?
Já, það hefur snjóað heilmikið að
undanförnu sem gladdi alla nema hvað
þá var skíðasvæðinu lokað vegna sótt-
varnareglna. Það var mikill hugur hér
í fólki í aðdraganda páskanna, allt leit
svo vel út, það var skipulögð dagskrá í
fjallinu, svo átti að vera svarfdælskur
mars og ég veit ekki hvað – en svo var
öllu aflýst.
Þú ert náttúrlega skíðamaður.
Aðallega gönguskíðamaður og hef
reyndar alltaf verið, ég ólst upp á göngu-
skíðum og það hindrar mig ekkert þó
lyfturnar séu lokaðar. Ég fór fram í
Skíðadal í gær og reyni að nota göngu-
skíðafærið meðan það gefst.
Hvað ertu svo að skrifa annað en
Norðurslóð? Eruð þið Rán Flygenring
eitthvað að bralla í anda fugla-og hesta-
bókanna?
Við erum svona farin að tala saman
en það er ekkert orðið skothelt eða fast í
hendi. Við erum með hugmyndir- og
farin að tala við útgefendur, þeir vilja
halda í okkur en við ætlum að taka
okkur tíma.“ gun@frettabladid.is
Ekkert orðið skothelt
Hjörleifur Hjartarson skáld og skemmtikraftur er staddur í sinni heimasveit, Svarfað-
ardal, þegar hann svarar símanum og veit ekki af fyrr en hann er kominn í viðtal.
Hjörleifur
ólst upp
á göngu-
skíðum og
lyftuleysið
plagar hann
ekkert.
MYND/ÍRIS
ÓLÖF
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT