Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.04.2021, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 03.04.2021, Qupperneq 60
HVER OG EINN VERÐUR SÍÐAN AÐ FARA Í ÞETTA FERÐALAG Á EIGIN FORSENDUM EN ÞAÐ ER MITT MAT AÐ HÉR SÉ TÆKIFÆRI TIL AÐ ENDURNÝJA SAMTALIÐ VIÐ MEISTARA KJARVAL OG UPPLIFA VERK SAMTÍMALISTA- MANNANNA ÚT FRÁ NÝJUM FORSENDUM. Ólöf Kristín Sigurðardóttir Ólöf Kristín sýningarstjóri og Eggert Pétursson við málverk hans þar sem sést í blómaandlit og teikningu Kjarvals. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ólafur Elíasson á verk á sýningunni. MYND/AÐSEND Eilíf endurkoma er yfir-skrift viðamestu sýning-ar Listasafns Reykjavík-ur á Kjarvalsstöðum á þessu starfsári. Sýningin er ekki einungis í sölum safnsins heldur teygir hún sig út á ganga þess. Sýningarstjórar eru Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Markús Þór Andrésson og Edda Halldórsdóttir en hún er sérfræðingur safnsins um list Kjarvals. „Á þessari sýningu erum við að setja fram tilgátu um tengsl á milli listaverka samtímalistamanna og verka sem fólk þekkir eftir meist- ara Kjarval,“ segir Ólöf Kristín. „Fyrir utan verk Kjarvals höfum við valið verk eftir sextán starf- andi listamenn sem allir hafa sett svip sinn á íslenskt menningarlíf á síðustu árum og áratugum. Lista- mennirnir hafa ólík höfundar- einkenni og vinna á ólíkan hátt. Sumir hafa skapað verk þar sem þeir vinna beint með arfleifð Kjar- vals, aðrir hafa skapað sín verk út frá allt öðrum forsendum en við sýningarstjórarnir lesum í verkin og samhengi þeirra tengsl við list og arf leifð meistarans og finnst því áhugavert að bjóða upp á þetta samtal tveggja tíma. Hver og einn verður síðan að fara í þetta ferðalag á eigin forsendum en það er mitt mat að hér sé tækifæri til að endur- nýja samtalið við meistara Kjarval og upplifa verk samtímalistamann- anna út frá nýjum forsendum.“ Áhrifamiklar innsetningar Verk samtímalistamannanna eru unnin í fjölbreytta miðla. „Þetta eru allt frá því að vera málverk eða ljósmyndir yfir í það að vera stórar vídeóinnsetningar. Verkin eftir Kjarval eru ekki mörg en á meðal þeirra eru nokkur af hans frægustu verkum, svo sem Fjallamjólk. Á meðal verka samtímalistamann- anna á sýningunni eru stórar og mjög áhrifamiklar innsetningar og stærri verk. Þar á meðal er ljósaverk úr gleri eftir Ólaf Elíasson. Í því er gyllt gler og handgert grænt gler sem unnið er úr jökulleir. Eitt umfangsmesta verkið á sýn- ingunni er vídeóinnsetning eftir Steinu Vasulka sem nefnist Hraun og mosi og kallast á við hraun og mosa Kjarvals. Steina hefur sagt frá sterkri upplifun sinni af þessum náttúrufyrirbærum auk þess sem ofskynjunarlyf ýtti þar eitthvað undir. Við erum mjög spennt að kynna þennan samhljóm listar samtímans við listaverk Kjarvals fyrir fólki. Sjálfri finnst mér samhljómurinn augljós. Kjarval hefur alltaf verið á einhvern hátt ósnertanlegur og ekki oft sem verkum hans er tef lt fram með list starfandi listamanna á þennan hátt. Áhrif Kjarvals á lista- mennina eru stundum greinileg en hin hugmyndalega tenging er alltaf sterk.“ Á sýningunni er vídeó með stutt- um viðtölum við f lesta listamenn- ina sem taka þátt í sýningunni. „Þetta er samklipp af stuttum sam- tölum, eins og mósaíkmynd hug- leiðinga um listamanninn Kjarval en einnig þeirra eigin sköpun,“ segir Ólöf Kristín. Upphaf á ferðalagi Eggert Pétursson er einn listamann- anna sem eiga verk á sýningunni. „Þetta eru tvö verk, bæði glæný. Annað, olía á striga, er mjög stór dýjamosamynd, og hitt verkið er nokkuð sérstakt því það er öðru- vísi en þau verk sem ég hef áður gert. Fyrir tæplega tveimur árum setti ég saman hér á Kjarvalsstöðum sýningu á blómaverkum Kjarvals, Get ekki teiknað bláklukku. Vinnan við þá sýningu leiddi til þess að áhrif Kjarvals laumuðust inn í mín verk. Fyrirmyndin er Blómaandlit, teikning eftir Kjarval sem er í eigu Listasafns Reykjavíkur. Í þessu nýja verki mínu er fígúra þótt hún sé svo- lítið óljós.“ Eggert segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem greina megi fígúru í verki eftir hann. „Þær hafa verið þarna, en verið faldar. Ég vann eitt sinn upp úr verki eftir Mugg þar sem ég breytti fígúrum í blóm en þarna geri ég þetta á annan hátt. Kannski er þetta upphaf á ferðalagi sem ekki sér fyrir endann á.“ Samtal tveggja tíma Á Kjarvalsstöðum er sýning á verkum Kjarvals og sextán samtímalistamanna sem unnin eru í ýmsa fjölbreytta miðla. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Innsetning Steinu Vasulka. MYND/EYÞÓR ÁRNASON 3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.