Fréttablaðið - 03.04.2021, Page 66
Leikararnir og vinirnir Víkingur Kristjánsson og Ólafur Darri Ólafs-son sættu færis í kófinu síðasta sumar og fóru Vestfjarðahringinn
á meðan þeir léku ýktar útgáfur
af sjálfum sér þannig að úr varð
þáttaröðin Vegferð sem hefst á
Stöð 2 um páskana.
„Hann Darri hefur oft sent á mig
hugmyndir að einhverju og stakk
upp á því að ég myndi skrifa ein-
hvers konar ferðalag okkar saman,“
segir Víkingur.
Meingallaðir vinir
„Þá var hann var nýbúinn að horfa
á The Trip, ofboðslega skemmtilega
þætti með Steve Coogan og Rob
Brydon, og er bara með eitthvað í
hausnum sem hann hendir í mig.
Ég settist niður og byrjaði að
skrifa og fann f ljótlega að ég var í
góðu flæði með einhverja sögu um
tvo svona nána vini sem lífið hefur
leikið misvel og misjafnlega. En þeir
svona staðið í gegnum súrt og sætt
og þeir taka sér ferð á hendur vestur
á firði,“ segir Víkingur sem komst á
skrið með því að ýkja sjálfan sig og
Ólaf Darra „svolítið hressilega í sitt
hvora áttina,“ eins og hann orðar
það.
„Þeir eru meingallaðir eins og
bara fólk er f lest en það er nú svona
eitthvað af þeim raunverulegt en
með því svona aðeins að stækka
þessa karaktera þá varð til áhuga-
verð saga.“
Óþolandi Darri
„Ég er kannski að leika það sem
gæti verið mest óþolandi útgáfan
af sjálfum mér, held ég. Þegar
kemur að sjálfsdýrkun og sjálfs-
upphafningu og óöryggi yfir því að
vera ekki alltaf aðal númerið,“ segir
Ólafur Darri. „Ég reyndi að skrúfa
eins mikið upp í því og hægt er og
það gekk bara vel.“
Það hefur væntanlega verið gaman
að fá tækifæri til að gera þetta, ver-
andi svona hógværðin holdi klædd
eins og þú ert dagsdaglega?
„Jú mér fannst það…,“ svarar
Ólafur Darri og hikar aðeins. „Ég
segi ekki að ég sé hógværðin holdi
klædd,“ heldur hann áfram og hlær
sínum djúpa en milda hlátri. „En
þetta dansar á línu sem mér finnst
sjálfum mjög áhugaverð.
Gæsin gripin
Þetta er náttúrlega kannski svolítið
steríótýpísk ímynd af leikara eða
óperusöngvara eða svona príma
ballerínu og mér fannst mjög gaman
að því að gera þetta. Það er alveg
skemmtilegt að fá að prófa svo-
leiðis manneskju eins og svo margt
annað.“
Ýkt velgengni Ólafs Darra í Holly-
wood vegur nokkuð þungt í þátt-
unum sem urðu einmitt til á meðan
heimsfaraldurinn hægði á heims-
frægðinni ef svo má að orði komast.
„Þetta er bara svo önnum kafinn
maður hann Ólafur Darri. Hann er
náttúrlega svo of boðslega hlaðinn
verkefnum að maður grípur gæsina
þegar hann gefst. Það er ekki oft sko
upp á síðkastið en svo kom COVID
og svona og þá hægist aðeins á
heimsfrægðinni og þá var hægt að
leika við Darra,“ segir Víkingur.
Brjálað að gera
„En það hægir ekkert á honum því
það er náttúrlega búið að vera brjál-
að að gera hjá honum, kallinum. Það
er Ófærð og Ráðherra og alls konar
svona dót.“
„Ég var bara fyrir tilviljun búinn
að ákveða að koma heim til Íslands
og það hafði alltaf verið planið
mitt að gera þessa sjónvarpsseríu
með Víkingi. Ég ætlaði bara að fara
að gera leikhús og taka mér frí frá
útlöndum í hálft ár,“ segir Ólafur
Darri.
„Það er kannski ákveðin guðs
lukka að hér á Íslandi, allavegana í
kvikmyndabransanum, gátum við
starfað óáreitt. Það eru bara örfáir
staðir í heiminum sem geta státað
af því að hafa haft opið í COVID-far-
aldrinum. Þannig að það er náttúr-
lega bara æðislegt.
Ég meina, ég á fullt af vinum í
útlöndum sem hafa unnið mjög lítið
í heilt ár. Ef nokkuð,“ segir Ólafur
Darri sem er nýfarinn til Ástralíu
þar sem hann verður næstu þrjá
mánuðina við tökur á spennuþátt-
unum The Tourist þar sem hann
leikur meðal annars á móti Jamie
Dornan og Hugo Weaving.
Bara æðislegt
„Það var náttúrlega bara æðislegt,“
segir Ólafur Darri þegar hann er
spurður hvernig hafi verið að fá
loksins að bregða á leik með Víkingi
og bætir við að þegar frábær leik-
stjóri hafi komið að verkefninu þá
hafi þetta bara verið „no brainer“.
„Fyrir utan náttúrlega að úti í
hinum stóra heimi er bara farsótt
og við gátum einhvern veginn gert
sjónvarpsseríu án þess að það væri
mikið mál í rauninni.
Við lentum þarna einhvern veg-
inn mitt á á milli fyrstu og þriðju
bylgju, eða annarrar og þriðju
bylgju, eða hvað það var. Og það
var mjög afslöppuð stemning í
landinu. Vestfirðir skörtuðu sínu
fegursta, æðislegt veður. Þetta var
bara ógeðslega gaman.“
Eins og tuðandi hjón
Ólafur Darri og Víkingur kynntust
í Leiklistarskólanum þegar Darri
var að ljúka námi og Víkingur að
byrja. „Ég veit eiginlega ekki hvern-
ig það æxlaðist, en við smullum
mjög f ljótt saman þá og urðum
bara miklir mátar. Það er bara svo-
leiðis,“ segir Víkingur.
„Við erum náttúrlega bara búnir
að vera einhvern veginn að nöldra
hvor í öðrum, eins og gömul hjón,
síðan við kynntumst. Í 25 ár og mér
hefur alltaf fundist mjög gaman að
því og þeirri kemistríu,“ segir Darri.
„Við vorum náttúrlega báðir
hluti af þessum Vesturportshóp
þegar hann var stofnaður og höfum
fengið að leika svolítið saman þar
og svona,“ segir Víkingur og notar
nákvæmlega sömu slettuna til þess
að lýsa vinasambandi þeirra.
„Það er svolítið skemmtileg
kemistría á milli okkar Darra.
Við erum stundum eins og gömul
hjón. Okkur finnst voðalega gaman
að tauta og tuða hvor í öðrum og
honum fannst svolítið gaman að
leyfa því að skína svolítið í gegn,“
segir Víkingur sem skrifaði fyrsta
uppkastið að Vegferð áður en Ólaf-
ur Darri og leikstjórinn Baldvin Z
komu að málum.
Skemmtilega öðruvísi
„Ég lét bara vaða og ákvað að
skrifa sjónvarpsseríu sem var alls
ekki hefðbundin,“ segir Víkingur
og bætir við að hann hafi hvorki
kunnað allar reglurnar í slíkum
skrifum né hirt sérstaklega um að
virða þær. „Það var nú dálítið það
sem húkkað Baldvin inn á þetta.
Honum fannst þetta skemmti-
lega öðruvísi af því að ég var ekki
að fylgja forminu. Honum fannst
þetta strax mjög áhugavert af því
að þetta var svona svolítið óhefð-
bundið.“
Víkingur segir leikstjórann hafa
gefið þeim vinunum dálítið svig-
rúm þegar á hólminn og Vestfirð-
ina var komið.
„Stór hluti af þessu er sam-
kvæmt handriti en Baldvin hleypti
okkur Darra alveg oft bara á skeið
í að spinna og við fengum að leika
okkur svolítið mikið og það var
mjög skemmtilegt,“ segir Víkingur
um þá sterku tengingu sem tuðið
er milli hans og Darra. „Af því að
það er náttúrlega samt alveg heil-
mikil ást þar á bak við. En það er
alveg saga þarna sem fær að njóta
sín alveg frá upphafi til enda.“
toti@frettabladid.is
Ólafur Darri og
Víkingur smullu
saman fyrir
aldarfjórðungi
og hafa notið
þess að tuða
hvor í öðrum
allar götur
síðan. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ANTON
BRINK
Víkingur
ætlar í heilun
og að komast í
núvitund fyrir
vestan á meðan
Darri má ekkert
vera að þessu.
Tuðandi hjónin Darri og Víkingur
Þegar faraldurinn hægði á heimsfrægð Ólafs Darra gripu þeir Víkingur Kristjánsson tækifærið og léku ýktar út-
gáfur af sjálfum sér í sjónvarpsþáttunum Vegferð og nutu þess um leið að tuða hvor í öðrum eins og gömul hjón.
VEGFERÐIN
Þegar þáttaröðin hefst er
staðan á vinunum þannig að
Ólafur Darri hefur um skeið
unnið í stórum verkefnum
erlendis og haslað sér völl sem
eftirsóttur leikari úti í hinum
stóra heimi.
Víkingur hefur hins vegar haft
lítið að gera sem leikari og er
að ná sér eftir vægt taugaáfall í
kjölfar fjárhagslegs og andlegs
gjaldþrots.
Hann hefur aðallega eytt tíma
sínum í sjálfsskoðun og reynt
að byggja sig upp með öllum
hugsanlegum ráðum sem í boði
eru og hugmyndin að fá vin sinn
með sér í ferðalag vestur á firði,
þaðan sem hann er ættaður, á
að vera liður í þeirri uppbygg-
ingu.
ÉG ER KANNSKI AÐ
LEIKA ÞAÐ SEM GÆTI
VERIÐ MEST ÓÞOLANDI ÚT-
GÁFAN AF MÉR.
Ólafur Darri
ÞAÐ ER
SVOLÍTIÐ
SKEMMTILEG
KEMISTRÍA Á
MILLI OKKAR
DARRA. VIÐ
ERUM STUND-
UM EINS OG
GÖMUL HJÓN.
Víkingur
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ