Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 15
15
Hinsegin dagar voru stofnaðir haustið
1999 sem sjálfstætt félag. Hugmyndafræði
þeirra er að gleðin sé áhrifaríkasta vopnið,
ekki hnefinn og reiðin yfir örlögum okkar
fólks í gegnum tíðina. En ekki er allt sem
sýnist. Með gleðinni minnumst við sigra
þeirra hugrökku sem fóru fremst í baráttu
samkynhneigðra og uppskáru háðung,
niðurlægingu, fangelsun, líkamsárásir og
jafnvel dauða. Augljósustu fórnarlömbin
voru dragdrottningarnar og karlmenn sem
þóttu kvenlegir, en þeir voru ekki þeir einu.
Með gleðinni sýnum við menningu okkar
og sögu en allt of oft gleymist að hún er
einstök og sérstök. Því þótt við höfum
víða unnið þann sigur að verða jöfn fyrir
lögunum og gagnkynhneigðir vorum við
ekki, erum við ekki og verðum aldrei streit.
Nú á tuttugu ára afmælinu minnumst við
áfram sigranna og fórnanna sem færðar
voru en við megum aldrei gleyma hver við
erum. Fullnaðarsigurinn getur aldrei og
má aldrei verða sá að verða streit. Þannig
myndum við vanvirða sögu okkar, baráttu
og fórnir þeirra þúsunda sem sköpuðu
okkur betri heim. Heim þar sem við getum
sungið stolt: „Ég er eins og ég er, hvernig á
ég að vera eitthvað annað?“
Til hamingju við öll.
Heimir Már Pétursson
framkvæmdastjóri Hinsegin daga í Reykjavík
1999 til 2011