Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 18
18
18. JÚNÍ 2019
SAMÞYKKTI
ALÞINGI
NÝ LÖG UM
KYNRÆNT
SJÁLFRÆÐI
45 þingmenn greiddu atkvæði
með frumvarpinu en þrír sátu hjá.
Frumvarpið er mikil réttarbót fyrir
trans fólk og intersex fólk en einnig
fleiri hópa, svo sem kynsegin fólk. Það
á sér langa sögu og er af mörgum
talið eitt það framsæknasta í sögu
hinsegin fólks. Í því felst möguleiki
á kynhlutlausri skráningu sem
táknuð verður með X á skilríkjum,
kynleiðréttingarferlið verður
mannúðlegra, 15 ára og eldri geta
breytt kynskráningu sinni í Þjóðskrá,
óheimilt er að skilyrða breytingu
kynskráningar við læknismeðferðir og
allir eiga rétt á persónuskilríkjum sem
samræmast breyttri skráningu. Þótt
þetta sé stórt stökk fram á við saknar
fólk ákvæðis um intersex einstaklinga,
banns við skurðaðgerðum á börnum og
að þær aðgerðir séu skráðar svo hægt
sé að átta sig á fjölda þeirra.
Tótla I. Sæmundsdóttir spjallaði
við Uglu Stefaníu Kristjönudóttur
Jónsdóttur, formann Trans Íslands,
og Kitty Anderson, formann Intersex
Íslands, um tildrög frumvarpsins og
hvað það raunverulega þýðir fyrir
þessa hópa.