Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Side 31
31
Iva Marín Adrichem efaðist
um kynhneigð sína snemma
á unglingsárunum án þess þó
að velta því meira fyrir sér fyrr
en seinna meir. Iva fæddist
blind og hefur fengið ýmsar
spurningar og athugasemdir
en það heyrir þó til
undantekninga og skrifast
oft á fljótfærni. Í viðtali við
Ágústu Örnu Sigurdórsdóttur
talar Iva Marín um undarlegar
spurningar sem hún hefur
fengið, hvernig gert er ráð
fyrir því að fatlað fólk geti
ekki verið samkynhneigt og
um vandræðalegt atvik á
stefnumóti, sem þó var hægt
að hlæja að eftir á.
Iva er fædd í Reykjavík
sumarið 1998 og hefur verið
blind frá fæðingu. „Það er
vegna þess að augu mín
þroskuðust ekki nægilega í
móðurkviði en það er þekkt
undir heitinu Anopthalmia,“
útskýrir hún. Snemma á
gelgjuskeiðinu fór Iva Marín
að efast um kynhneigð sína
án þess að velta því neitt
meira fyrir sér: „Ég áttaði
mig á því endanlega að
ég væri samkynhneigð í
menntaskóla. Mínir nánustu
vissu að ég efaðist um
kynhneigð mína þegar ég
var yngri. Fjölskyldan mín
hvatti mig hins vegar til að
leyfa málunum að þróast því
kynhneigð skiptir ekki máli í
7. bekk.“
Samkynhneigð
jafn sjálfsögð og
gagnkynhneigð
Þegar í menntaskóla var
komið fór Iva Marín að fikra
sig hægt og rólega út úr
skápnum fyrir fjölskyldu
og vinum. „Fyrir um það bil
tveimur árum var ég tilbúin
að ræða kynhneigð mína
opinberlega. Flestir voru
mjög afslappaðir og það
var ekkert mikið rætt inni
á heimilinu þar sem fyrir
flestum fjölskyldumeðlimum
og vinum er samkynhneigð
jafn sjálfsögð og
gagnkynhneigð,“ segir hún.
Fær skrítnar spurningar og
athugasemdir
Iva segir að hún hafi
eiginlega aldrei komið
formlega út úr skápnum
nema þá helst fyrir eldra
fólki sem hefur alist upp
og lifað við önnur gildi.
„Mér finnst ég ekki þurfa að
útskýra kynhneigðina fyrir
neinum. Vissulega fékk ég
einhverjar spurningar og
athugasemdir,“ segir hún
og bætir við að skrítnar
spurningar og framkoma
heyri til undantekninga.
Sumt sé látið flakka í
fljótfærni. „Oftast finnst mér
bjánalegur hugsunarháttur
fyndinn og ég leyfi mér
hiklaust að láta fólk
finna fyrir því með svarta
húmorinn minn að vopni.
Einu tilfellin þar sem
ég gæti tekið einhvern
klaufaskap nærri mér væri
kannski ef einstaklingur
sem ég þekki vel kæmi með
svona athugasemd.“
Engin tengsl milli
samkynhneigðar og þess
að sjá ekki
Meðal þeirra athugasemda
sem Iva Marín hefur fengið
er að hún sé samkynhneigð
vegna þess að hún sé
blind og hafi því ekki sömu
upplifun af hinu kyninu.
Iva segir að engin tenging
sé þarna á milli og að
þetta sé vitleysa. „Að vera
meðvitaður um kynhneigð
sína tengist sjón ekki neitt,
heldur bara tilfinningum.
Auðvitað get ég nýtt mér
aðra skynjun en sjón til að
vita hvernig mismunandi
fólk er,“ segir hún og bætir
við: „Einnig hefur fólk gefið
í skyn við mig að ég gangi
í gegnum lesbískt tímabil
og sé bara að uppgötva
lífið.“ Hún segir að margar
hinsegin konur fái slíkar
athugasemdir án þess að
það hafi nokkuð með fötlun
að gera.
Sjálfsmyndin fór í hnút á
stefnumóti
„Mig grunar að fólk myndi
sjaldan lesa mig sjálfkrafa
sem samkynhneigða og
þar held ég að fötlun mín
spili stórt hlutverk því oft
virðist ekki gert ráð fyrir
að fatlað fólk geti verið
samkynhneigt, eða lifað
ástalífi yfir höfuð. Til dæmis
hef ég lent í því þegar ég
var á stefnumóti að fólk hélt
að konan sem ég var að hitta
væri systir mín. Þó svo ég viti
að margar lesbíur fái viðlíka
athugasemdir held ég að
meiri líkur séu á að ég fái þær
vegna fötlunar minnar. Oft er
haldið að fólk sem umgengst
mig sé að passa mig eða
aðstoða og það getur verið
pirrandi. Þess vegna fór
sjálfsmyndin svolítið í hnút
þarna, þó svo að konan hafi
ekki tekið þessu illa og hægt
væri að hlæja að þessu eftir
á,“ segir Iva.
Erfitt að gera ráð fyrir
öllum
Iva Marín segir að fötluðu
fólki sé almennt vel tekið
í hinsegin samfélaginu og
þar séu allir velkomnir sem
skilgreini sig hinsegin. Þá
hafi aðgengi fyrir fatlað fólk
að viðburðum tengdum
hinsegin samfélaginu batnað
eftir að Samtökin ’78 fluttu
í nýtt húsnæði. Þó segir
aðgengi ekki alltaf til um
hvort gert sé ráð fyrir fötluðu
fólki.
„Ég hef nokkrum sinnum
ætlað á viðburð hjá
ungliðahreyfingu þar sem
þau voru að spila eða á
teiknikvöld. Fyrir mig er það
frekar útilokandi þar sem
ég þyrfti mjög mikla aðstoð
til að taka þátt í flestum
spilum og ég get alls ekki
teiknað. Þetta upplifi ég
samt alls ekki sem fordóma
enda er mjög erfitt að ætla
alltaf að gera ráð fyrir öllum,“
segir Iva og bætir við að
aðgengi fyrir hjólastóla að
hinsegin skemmtistöðum
í miðborginni sé lítið sem
ekkert. „Það er útilokandi
fyrir stóran hóp fatlaðs fólks.“
Fjarráðgjöf gæti hjálpað
fötluðu fólki
En þarf fatlað fólk öðruvísi
stuðning eftir að það kemur
út úr skápnum? Iva segir
að svo hafi ekki verið í
hennar tilfelli en telur að
það sé erfiðara fyrir fatlaða
einstaklinga að koma út úr
skápnum ef þeir hafi ekki
sterkt bakland í fjölskyldu
og vinum. „Einnig held ég
að það fari eftir því hvaða
fötlun einstaklingar búa við
og hvort þeir fái persónulega
aðstoð í daglegu lífi. Þegar
kemur að því að sækja sér
ráðgjöf eða kynnast fólki
er margt fatlað fólk upp á
aðstoð fjölskyldu, vina eða
fólks sem það treystir ekki
endilega fyrir viðkvæmum
málefnum komið. Ég get
ímyndað mér að það gæti
hjálpað að hafa til dæmis
ráðgjafa innan Samtakanna
’78 sem hefði sérstaka
þekkingu á stöðu fatlaðs
hinsegin fólks og gæti
aðstoðað það við að taka
fyrstu skrefin út úr skápnum.
Gott væri að veita þess
háttar þjónustu í fjarráðgjöf,
þar sem fyrir sumt fólk getur
verið heljarmál eitt og sér að
komast út úr húsi. Af eigin
reynslu get ég til dæmis
sagt að áður en ég kom
út úr skápnum fyrir öllum
fór ég nokkrum sinnum á
viðburði hjá Samtökunum
’78 og tók þá leigubíl á
vegum Ferðaþjónustu
blindra. Ég þekki marga
sem nýta sér þessa þjónustu
og það er ekki gefið að
bílstjórar virði alltaf trúnað
við skjólstæðinga sína. Því
fannst mér þetta óþægilegt
og var hrædd um að
verða fyrir slúðri. Þó vil ég
árétta að þetta er algjört
lúxusvandamál því sumir
notendur Ferðaþjónustu
fatlaðra þurfa að gefa upp
viðkomustað þegar þeir
panta bíl en fyrir suma getur
það verið viðkvæmt að gefa
upp hvert þeir eru að fara,“
segir Iva Marín að lokum.