Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Síða 35
35
Verkið er til minningar um
þá Íslendinga sem hafa látist
úr alnæmi. Ein rós fyrir hvert
fórnarlamb.
Sólrún Jónsdóttir / Sóla Við
minnumst þeirra.
Rakel Tomas er grafískur
hönnuður og listakona.
Hennar list einkennist af
svarthvítum, súrrealískum
blýantsteikningum af
kvenlíkömum. Myndirnar
eru oft af tveimur eða fleiri
líkömum sem blandast
saman á einn eða annan
hátt. Rakel segir að það
hafi ekki verið meðvituð
ákvörðun að gera hinsegin
list. Hún er sjálf hinsegin og
listin endurspeglar hennar
veruleika, tilfinningar
og hugsanir. Rakel skilur
ávallt eftir svigrúm fyrir
áhorfendann til þess að túlka
myndirnar á sinn eigin hátt
en sumar myndirnar er þó
erfitt að túlka sem annað en
hinsegin.
Alda Lilja er myndskreytir,
búsett í Amsterdam. Hún
vinnur flestar sínar myndir
á stafrænu formi en nýverið
byrjaði hún einnig að vinna
með leir. Helstu þemun í
list hennar eru kynhneigð,
andleg heilsa og jákvæð
líkamsímynd. Hún notar helst
bjarta liti til þess að draga
athygli að hverju málefni fyrir
sig. Tilgangur hennar með
listinni er að hjálpa fólki að
líða betur með sjálft sig og
vera öruggt í eigin skinni,
óháð kynhneigð, fötlun,
líkamsbyggingu eða nokkru
öðru sem skilgreint er sem
öðruvísi. Ef verk hennar fá
eina manneskju til að brosa
þá hefur Alda náð markmiði
sínu.
Dóra Dúna fæddist í
Danmörku og hefur
flakkað á milli Íslands og
Danaveldis allt sitt líf. Árið
2007 opnaði hún, ásamt
vinkonu sinni, barinn Jolene
í Kaupmannahöfn og seinna
opnaði hún The Log Lady
Café í sömu borg. Dóra
hefur ávallt elskað að skapa
og að hennar sögn var það
skemmtilegasta við að opna
barina hugmyndavinnan
sem lá á bak við þá en þar
nýttist ljósmyndaferill hennar
einstaklega vel. Dóra elskar
að geta séð hlutina fyrir sér,
eitthvað sem enginn annar
sér, og láta sýn sína verða
að raunveruleika. Oft veit
hún nákvæmlega hvernig
myndataka kemur út áður
en hún byrjar að mynda. Um
leið og hugmynd nær föstum
tökum í huga hennar bregst
sú sýn ekki.
Anna Maggý er 24 ára
ljósmyndari og leikstjóri
sem tekur að sér ólík
verkefni. Hún er frjálsleg
að eðlisfari og hefur búið
yfir einstaklega mikilli
sköpunargleði frá unga
aldri. Myndlist var hennar
ástríða lengi vel þangað til
hún fór að taka ljósmyndir.
Hún varð ástfangin af því
að festa augnablik á filmu.
Með list sinni vill Anna fá fólk
til þess að hugsa. Hún vill
veita öðrum konum kraft og
stuðla að því að fólk víkki út
heimsmynd sína, sem hefur
að mestu verið sköpuð af
karlmönnum. Með myndum
sínum vill hún segja sögur.
Sem stendur er Anna stödd á
Indlandi með kærustu sinni
þar sem þær taka myndir og
njóta lífsins saman.
Sveinn Snær er 28 ára
myndskreytir og prentari.
Í verkum sínum vill hann
tjá femínisma og sýna
að hann sé hinsegin
listamaður. Hann sérhæfir
sig í collagemyndum
og ólíkum prentferlum.
Collage-myndir eru gerðar
úr klipptum eða skornum
myndum og öðrum efnum
og Sveinn vinnur helst með
ljósmyndir, fundið efni og
teikningar. Hann segir að
vinna hans sé leidd áfram að
miklu leyti af vinnuferlinu
sjálfu og handverkið sem
slíkt hafi mikil áhrif á
lokaútkomuna. Hann sér
eitthvað sérstakt við það
að sjá myndir birtast með
ólíkum collage-aðferðum og
hvernig þær breytast þegar
þær eru klipptar, krumpaðar,
rifnar, sameinaðar eða
prentaðar. Nýlega voru verk
hans tilnefnd til Creative
Conscience verðlauna.
Reynir Katrínar hóf sitt
listnám í Noregi þar sem
hann lærði myndlist, dans,
leik og tónlist. Seinna
fór hann í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og fékk
einkakennslu hjá listafólki
sem veitti honum innblástur.
Reynir hefur einnig stundað
nám við hugleiðslu en
andlega námið hefur mikil
áhrif á list hans. Hann lifir
lífinu eins og hann er og
hefur aldrei lagt mikið upp úr
því að flokka sig í ákveðinn
hóp. Hann segir að það að
vera hinsegin listamaður veiti
sér ákveðið frelsi og gleði í lífi
sínu. Reynir var nýverið með
sýningu í Galleríi ʼ78 sem hét
„Karlmenn eru eins og tíglar,
þeir eru fullkomnir“.