Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 44

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 44
44 GLEÐIGANAGAN THE PRIDE PARADE FRÁ HALLGRÍMSKIRKJU, LAUGARDAGINN 17. ÁGÚST KL. 14:00. FROM HALLGRÍMSKIRKJA CHURCH, SATURDAY 17 AUGUST AT 2 P.M. Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi með fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni og einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og sótt um þátttöku í göngunni. Hinsegin dagar stýra hvaða atriði fá aðgang að henni en skilyrði er að þau miðli skýrum skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. Gönguleið Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00 og bíður ekki eftir neinum. Gengið verður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem taka við glæsilegir útitónleikar að göngu lokinni. Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í gleðigöngunni skulu sækja um eigi síðar en 1. ágúst á heimasíðu Hinsegin daga www.hinsegindagar. is/gledigangan. Nánari upplýsingar um gönguna veitir göngustjórn (gongustjorn@ hinsegindagar.is) og Þórhallur Hafþórsson öryggisstjóri (thorhallur@hinsegindagar.is). Auglýsingar bannaðar Hinsegin dagar eru stoltir af því að gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum sambærilegum göngum í heiminum þar sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu eru óheimilar. Með auglýsingabanninu er undirstrikað að gangan er grasrótarviðburður og þátttakendur taka þátt til að styðja baráttuna og Athugið að ekki er hægt að veita fólki með atriði aðgang að göngunni nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og send og skilmálar samþykktir. Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt um þátttöku og eru ekki með sérstakt atriði, bíði með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.