Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2019, Qupperneq 44
44
GLEÐIGANAGAN
THE PRIDE PARADE
FRÁ HALLGRÍMSKIRKJU,
LAUGARDAGINN 17. ÁGÚST KL. 14:00.
FROM HALLGRÍMSKIRKJA CHURCH,
SATURDAY 17 AUGUST AT 2 P.M.
Gleðigangan er hápunktur
Hinsegin daga. Í henni
sameinast lesbíur, hommar,
tví- og pankynhneigðir, trans
fólk, intersex fólk og aðrir
hinsegin einstaklingar í einum
hópi með fjölskyldum sínum
og vinum til að staðfesta
tilveru sína, sýnileika og gleði,
ásamt því að minna á þau
baráttumál sem skipta hvað
mestu máli hverju sinni.
Hinsegin dagar skipuleggja
gleðigönguna en atriðin sjálf
eru sprottin úr grasrótinni og
einstaklingar og hópar geta
skipulagt atriði og sótt um
þátttöku í göngunni. Hinsegin
dagar stýra hvaða atriði fá
aðgang að henni en skilyrði
er að þau miðli skýrum
skilaboðum sem varða
veruleika hinsegin fólks á einn
eða annan hátt.
Gönguleið
Gangan leggur af stað frá
Hallgrímskirkju stundvíslega
kl. 14:00 og bíður ekki eftir
neinum. Gengið verður eftir
Skólavörðustíg, Bankastræti,
Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og
endað á Sóleyjargötu við
Hljómskálagarðinn þar sem
taka við glæsilegir útitónleikar
að göngu lokinni.
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla
að vera með atriði í
gleðigöngunni skulu sækja
um eigi síðar en 1. ágúst
á heimasíðu Hinsegin daga
www.hinsegindagar.
is/gledigangan. Nánari
upplýsingar um gönguna
veitir göngustjórn
(gongustjorn@
hinsegindagar.is) og
Þórhallur Hafþórsson
öryggisstjóri
(thorhallur@hinsegindagar.is).
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af
því að gleðigangan í Reykjavík
er ein af fáum sambærilegum
göngum í heiminum þar
sem auglýsingar fyrirtækja
og þjónustu eru óheimilar.
Með auglýsingabanninu
er undirstrikað að gangan
er grasrótarviðburður og
þátttakendur taka þátt
til að styðja baráttuna og
Athugið að ekki er hægt
að veita fólki með atriði
aðgang að göngunni nema
rafræna umsóknin hafi
verið fyllt út og send og
skilmálar samþykktir.
Hinsegin dagar leggja áherslu
á að þeir sem vilja ganga með,
en hafa ekki sótt um þátttöku
og eru ekki með sérstakt
atriði, bíði með að slást í
hópinn þar til síðasti vagninn
hefur farið framhjá.