Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 45

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 45
45 málstaðinn en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki. Í örfáum undantekningar- tilvikum eru auglýsingar heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot á þessum reglum verður til þess að atriði er hafnað eða vísað úr göngunni. Gleðigöngupotturinn Með samstarfssamningi Hinsegin daga og Landsbankans varð til sérstakur styrktarpottur gleðigöngunnar. Pottinum er ætlað að styrkja einstaklinga og hópa til þátttöku í gleðigöngunni og þannig m.a. aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja, efniskaup og fleira. Dómnefnd velur styrkþega úr innsendum umsóknum og úthlutar styrkjum með það að markmiði að styðja framúrskarandi hugmyndir til framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr Gleðigöngupottinum séu á bilinu 100.000–500.000 kr. Dómnefndin hefur heimild til að halda eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar hvatningarverðlauna að hátíð lokinni. Þar með hafa allir styrkir og verðlaun Hinsegin daga verið færð undir einn hatt og því er ekki hægt að sækja um aðra styrki eða endurgreiðslu kostnaðar vegna þátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga. Auglýst var eftir umsóknum í júní og umsóknarfrestur rann út í byrjun júlí. Áhugasamir þátttakendur eru hvattir til að fylgjast með og sækja um á næsta ári. Sjá nánar á hinsegindagar.is/styrkir. Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar og biðjum gæsa- og steggjapartí vinsamlegast að virða það og finna sér annan vettvang. The Pride Parade Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before 1 August by filling out a form on the website, www.reykjavikpride. is. For further information about the parade please contact the parade managers Eva, Steina, Lilja, Anna and Þórhallur at gongustjorn@ hinsegindagar.is. The parade starts at 2 p.m. sharp and goes from Hallgrímskirkja church, down Skólavörðustígur, Bankastræti, Lækjargata, and Fríkirkjuvegur. The parade concludes at Sóleyjargata, near Hljómskálagarður, where an outdoor concert takes place. VATNSMÝRARVEGUR UPPSTILLING REYKJAVÍK CITY A MAP OF

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.