Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Síða 45
45
málstaðinn en ekki til að
styrkja eða auglýsa fyrirtæki.
Í örfáum undantekningar-
tilvikum eru auglýsingar
heimilar en þá þarf að sækja
sérstaklega um undanþágu
til göngustjórnar. Athugið að
allar ósamþykktar auglýsingar
á bílum og fatnaði þarf
að hylja áður en gangan
fer af stað. Brot á þessum
reglum verður til þess að
atriði er hafnað eða vísað úr
göngunni.
Gleðigöngupotturinn
Með samstarfssamningi
Hinsegin daga og
Landsbankans varð til
sérstakur styrktarpottur
gleðigöngunnar. Pottinum er
ætlað að styrkja einstaklinga
og hópa til þátttöku í
gleðigöngunni og þannig
m.a. aðstoða þátttakendur við
að standa straum af kostnaði
við hönnun atriða, leigu
ökutækja, efniskaup og fleira.
Dómnefnd velur styrkþega
úr innsendum umsóknum
og úthlutar styrkjum með
það að markmiði að styðja
framúrskarandi hugmyndir
til framkvæmda. Miðað er
við að fjárhæðir styrkja úr
Gleðigöngupottinum séu á
bilinu 100.000–500.000 kr.
Dómnefndin hefur heimild
til að halda eftir að hámarki
200.000 kr. til veitingar
hvatningarverðlauna að hátíð
lokinni.
Þar með hafa allir styrkir og
verðlaun Hinsegin daga verið
færð undir einn hatt og því
er ekki hægt að sækja um
aðra styrki eða endurgreiðslu
kostnaðar vegna þátttöku í
gleðigöngu Hinsegin daga.
Auglýst var eftir umsóknum í
júní og umsóknarfrestur rann
út í byrjun júlí. Áhugasamir
þátttakendur eru hvattir til
að fylgjast með og sækja
um á næsta ári. Sjá nánar á
hinsegindagar.is/styrkir.
Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir
steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki
velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Við
göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar
og biðjum gæsa- og steggjapartí vinsamlegast
að virða það og finna sér annan vettvang.
The Pride Parade
Groups that wish to participate
in the parade must apply to
Reykjavik Pride before 1 August
by filling out a form on the
website, www.reykjavikpride.
is. For further information
about the parade please
contact the parade managers
Eva, Steina, Lilja, Anna and
Þórhallur at gongustjorn@
hinsegindagar.is. The parade
starts at 2 p.m. sharp and goes
from Hallgrímskirkja church,
down Skólavörðustígur,
Bankastræti, Lækjargata, and
Fríkirkjuvegur. The parade
concludes at Sóleyjargata, near
Hljómskálagarður, where an
outdoor concert takes place.
VATNSMÝRARVEGUR
UPPSTILLING
REYKJAVÍK CITY
A MAP OF