Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2019, Qupperneq 53
53
PARADÍSARSKÚRINN
THE PARADISE GARAGE
LOFT HOSTEL, BANKASTRÆTI 7
LOFT HOSTEL, BANKASTRÆTI 7
LAUGARDAGINN 10. ÁGÚST KL. 20–23.
SATURDAY 10 AUGUST AT 8 P.M.– 11 P.M.
AÐGANGUR 1.000 KR.
ADMISSION: 1.000 ISK.
MIÐAR EINUNGIS SELDIR VIÐ HURÐ.
TICKETS ONLY SOLD AT THE DOOR.
Á þessu merka ári í sögu hinsegin fólks
verður Paradísarskúrinn haldinn til heiðurs
helstu dansklúbbum síðustu aldar þar
sem hinsegin fólk var við stjórnvöllinn.
Þetta eru staðir eins og Paradise Garage og
The Loft í New York sem voru mikilvægir
samkomustaðir LGBT+ fólks á áttunda og
níunda áratugnum en þar varð gjörbylting
á hvernig tónlist var gerð og spiluð, til
dæmis með tilkomu 12" smáskífunnar.
Þessir staðir eru í dag taldir upphafsstaðir
nútíma danstónlistarmenningar.
Paradísarskúrinn verður haldinn í fallegu
rými á efstu hæð Loft Hostel þar sem
fjórir af okkar bestu diskóplötusnúðum
koma fram og spila tónlist frá þessum
tíma. Frábær upphitun fyrir frekari
ævintýri næturinnar!
Paradise Garage is held in tribute to the
great queer club music spaces of the late
last century. Venues such as Paradise
Garage and The Loft in New York served
as important queer music spaces during
the 70s and 80s where the DJs there
revolutionized how records were made and
heard. They are now widely considered the
birthplace of modern dance music culture.
We’ll set up our own Paradise Garage on
the top floor at Loft Hostel, a bright and
open space where four of Iceland's top
disco DJ's will play all the best music from
the heyday of these legendary NYC clubs.
PARADÍSARSKÚRINN ER
FJÁRÖFLUNARVIÐBURÐUR OG
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR BEINT TIL
HINSEGIN DAGA.
PARADISE GARAGE IS A FUNDRAISING EVENT
FOR REYKJAVIK PRIDE.
VIÐBURÐUR EVENTS
LAG HINSEGIN DAGA 2019:
ÉG ER EINS OG ÉG ER!
THE OFFICIAL SONG OF REYKJAVIK PRIDE 2019:
I AM WHAT I AM!
Flytjandi / Performed by: Aaron Ísak
Útsetning / Arranged by: StopWaitGo
Í tilefni af 20 ára afmæli Hinsegin
daga er lagið „Ég er eins og ég er“
nú endurútgefið í glænýrri útgáfu
StopWaitGo-bræðra og í flutningi hins
unga og hæfileikaríka Aarons Ísaks.
Lagið, sem samið er af hinum
samkynhneigða Jerry Herman, var
fyrst flutt af George Hearn í Broadway-
söngleiknum La Cage aux Folles árið 1983.
Íslenskur texti Veturliða Guðnasonar
við lagið tók fyrst að hljóma í flutningi
Hafsteins Þórólfssonar árið 2003 en
heyrðist einnig nokkrum árum síðar í
útgáfu Páls Óskars Hjálmtýssonar.
To celebrate 20 years of Pride in Reykjavik
we now introduce a brand new version
of the all time classic “I Am What I Am”,
arranged by the power-duo StopWaitGo
and performed by our young and talented
Aaron Ísak.
The song, composed by the openly gay
Jerry Herman, was first performed by
George Hearn in the Broadway musical La
Cage aux Folles in 1983. Icelandic lyrics
by Veturliðni Guðnason were introduced
by Hafsteinn Þórólfsson in 2003 and later
recorded by Páll Óskar Hjálmtýsson.
Sjá nánar á / More info at
hinsegindagar.is/lag2019