Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Síða 65
www.samtokin78.is Sími: 552 7878 netfang: skrifstofa@samtokin78.is Suðurgötu 3, 101 Reykjavík
Þegar Samtökin ’78 voru stofnuð bjóst
líklega enginn við því að rúmum fjörutíu árum
seinna yrði árlega haldin hátíð hinsegin
fólks sem einnig teldist stærsta, litríkasta
og skemmtilegasta hátíð landsins. Þökk sé
Hinsegin dögum er þetta staðreynd í dag.
Hópurinn sem við köllum hinsegin fólk hefur
með auknum sýnileika og fordómaleysi
stækkað og orðið æ fjölbreyttari með árunum.
Samtökunum ’78 tilheyra meðal annars
lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir, eikynhneigðir,
pankynhneigðir, trans fólk og intersex fólk.
Við erum eins fjölbreytt og við erum mörg en
barátta okkar allra er þó samtvinnuð. Það er
einlæg sannfæring okkar í Samtökunum ’78
að sameinuð séum við sterkari.
Grunnstarfsemi Samtakanna ’78
felst í fræðslu, ráðgjöf og réttinda- og
hagsmunabaráttu. Við förum í hundruð
fræðsluheimsókna á hverju ári, oftast til
ungmenna en einnig til kennara og annarra
fagstétta. Ráðgjöfin og stuðningshóparnir
blómstra sem aldrei fyrr. Til ráðgjafa
Samtakanna ’78 leita einstaklingar sem
þurfa hinseginvæna ráðgjöf og eru t.d. að
velta fyrir sér kynhneigð sinni, kynvitund eða
öðrum hinseginleika. Einnig tökum við á móti
foreldrum, fagfólki og aðstandendum sem
þurfa á stuðningi að halda. Í réttinda- og
hagsmunabaráttu Samtakanna ’78 kennir
ýmissa grasa en grunnstefið í þeirri vinnu er
að þrýsta á stjórnvöld um að bæta lífsgæði
og lagaleg réttindi hinsegin fólks. Við skrifum
umsagnir um lagafrumvörp og ýtum á eftir
nýrri löggjöf. Þegar þetta er skrifað liggur fyrir
Alþingi frumvarp um kynrænt sjálfræði sem
vonir standa til að verði samþykkt en í því felst
gríðarleg réttarbót fyrir trans og intersex fólk.
Auk fræðslu, ráðgjafar og réttindabaráttu
standa Samtökin ’78 fyrir viðburðum af
ýmsu tagi. Reglulega höldum við opin hús,
félagsfundi, umræðufundi, fjölskyldumorgna,
sýningar hjá Galleríi ’78 og ýmsa aðra
viðburði sem félagsmönnum dettur í hug
að halda. Síðast en alls ekki síst má nefna
félagsmiðstöð fyrir hinsegin ungmenni
sem við rekum í samstarfi við Tjörnina
hjá Reykjavíkurborg. Til okkar koma tugir
ungmenna í hverri viku sem fá tækifæri til
þess að vera þau sjálf í öruggu og faglegu
umhverfi og kynnast öðrum hinsegin
ungmennum í svipuðum sporum.
Í hinsegin baráttu er mikilvægt að við sofnum
aldrei á verðinum og sættum okkur aldrei
við bakslag. Þó að daglegt líf hinsegin
fólks á Íslandi hafi orðið mun auðveldara
með árunum berast okkur enn fregnir af
ofbeldi, fjölskylduerfiðleikum, mismunun og
vanlíðan hinsegin einstaklinga. Þess vegna
er nauðsynlegt að baráttan haldi áfram, bæði
gagnvart löggjafanum en einnig til þess að
breyta úreltum viðhorfum samfélagsins sem
hamla okkur og reyna að troða okkur í kassa
sem henta okkur ekki. Við hvetjum öll þau sem
hafa áhuga til þess að vera með í þessari
baráttu, taka þátt í starfi Samtakanna ’78,
gerast félagar eða sjálfboðaliðar, styrkja
félagið fjárhagslega eða bjóða sig fram til
trúnaðarstarfa.
Rúmum fjórum áratugum eftir stofnun
Samtakanna ’78 eru aðalmarkmið félagsins
enn þau sömu: að hinsegin fólk sé sýnilegt
og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í
íslensku samfélagi. Hinsegin dagar í
Reykjavík hafa svo sannarlega stuðlað að
sýnileika og viðurkenningu hinsegin fólks í
samfélaginu okkar. Hvort tveggja ýtir undir
að við fáum notið fyllstu réttinda, því yfirleitt
fer almenningsálit og pólitískur vilji saman.
Það er þess vegna ómetanlegt fyrir Samtökin
’78 og allt hinsegin fólk á Íslandi að Hinsegin
dagar séu jafn stór og glæsileg hátíð og
raun ber vitni. Við óskum Hinsegin dögum til
hamingju með 20 ára afmælið og hlökkum til
áframhaldandi samstarfs.
Takk fyrir okkur og gleðilega hátíð!
Hýrar kveðjur,
Samtökin ’78