Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 71

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 71
71 Brotin tönn í búningsherberginu Þegar Hera er innt eftir góðri sögu frá Ósló skellir hún upp úr. „Það var búin að vera karamelluskál í búningsherberginu mínu þessar tvær vikur sem við vorum þarna. Ég var algjörlega búin að sniðganga karamellurnar en síðasta daginn, rétt fyrir lokakeppnina, hugsaði ég með mér að ég ætti skilið að fá mér eina. Ég stakk upp í mig karamellu og var ekki einu sinni búin að sjúga tvisvar þegar það losnaði fylling úr tönn!“ segir Hera og heldur áfram að hlæja. „Ég mátti bara setja allt í gang. Tannlæknirinn minn var í höllinni en var ekki með tannlím á sér og hefði ekki komist til mín vegna öryggisráðstafana,“ segir hún en segist sjálf hafa átt tannlím á hótelinu. „Silja, konan hans Valla, var ennþá á hótelinu og var nýstigin úr sturtu þegar hótelstarfsmaður óð inn til hennar og leiddi hana inn á mitt herbergi. Þar fundu þau tannlímið sem Silja mátti gjöra svo vel að hlaupa með í höllina, varla búin að þurrka hárið eða klæða sig, þar sem ég náði að líma tönnina sjálf áður en ég hljóp inn á svið.“ Í minningunni segir Hera þetta atvik ótrúlega fyndið þótt tímasetningin hafi varla getað verið óheppilegri. „Eftir á að hyggja skipti þetta auðvitað engu máli. Það hefði enginn tekið eftir þessu en á þessum tímapunkti var það að fá tönnina upp í mig aftur mikilvægt, bara upp á mína andlegu líðan,“ segir hún og bætir við að tannlæknirinn hennar hafi þó lært af þessu. „Ef Gunna vinkona, sem líka er tannlæknirinn minn, kemur að sjá mig syngja einhvers staðar er hún alltaf með tannlím í vasanum,“ segir Hera og skellihlær. Fasteignasalinn sem varð til í gríni Samhliða söngnum og söngkennslu er Hera fasteignasali hjá Fasteignasölu Reykjavíkur. „Þegar ég flutti heim frá Síle var ég ekki tilbúin að vera bara Hera söngkona og var þess vegna að leita að einhverju öðru,“ segir Hera sem íhugaði að taka upp þráðinn í viðskiptafræðinni. „Mig langaði í eitthvað annað líka, eitthvað alveg ótengt söngnum. Á þessum tíma var ég að kaupa og selja íbúð og foreldrar mínir líka svo ég hjálpaði þeim með það.“ Þegar Hera hitti fasteignasala foreldra sinna til að kvitta undir pappíra fyrir þeirra hönd má segja að ákvörðunin um næsta kafla hafi verið tekin. „Við hittumst á kaffihúsi í Kringlunni og ég sagði við hann að ég ætti auðvitað frekar að sjá um þessa pappíra sjálf. Þetta átti að vera grín en hann horfði á mig grafalvarlegur og sagði að ég yrði frábær fasteignasali! Ekki nóg með það heldur leit maðurinn minn upp úr blaðinu, sem þarf mikið til, og sagðist vera sammála.“ Þarna fóru hjólin heldur betur að snúast. Hera las sér til um námið, ræddi við fasteignasala um starfið og var innan viku skráð í nám til að verða fasteignasali. Hera segist ánægð með nýja starfið sem henti mjög vel samhliða tónlistinni. „Hin ástríðan mín eru hús, bæði að utan og innan. Ég rak verslun á Laugaveginum sem var bara með innanstokksmuni, sem mér fannst æðislegt og ég algjörlega elska þetta líka. Starf fasteignasalans er mjög margþætt og þarna koma samskiptahæfileikarnir sér vel. Það þarf oft að leysa alls konar vandamál, stundum mjög persónuleg hjá seljendum og kaupendum, eða eitthvað tæknilegt eða tengt byggingunni sjálfri. Svo er ég mikið í að gefa ráð um hvernig hægt sé að gera eignina seljanlegri, hvað ætti að mála, hverju má sleppa og svoleiðis. Svo smellpassar þetta með tónlistinni, Söng-Hera og Fasteigna-Hera vinna mjög vel saman!“ Queen of Fokkking Everything Í tilefni Hinsegin daga ætlar Hera að setja upp sýninguna Queen of Fokking Everything í Gamla bíói föstudaginn 16. ágúst. Um er að ræða frumsýningu á Íslandi en sýningin hefur áður verið sett upp í Svíþjóð við góðar viðtökur. „Queen of Fokking Everything er í rauninni búin að vera til í einhver ár,“ segir Hera og útskýrir tilurð sýningarinnar. „Við Valli vorum að koma heim úr rosa tónleikaferð. Ég var búin að vera díva fyrir allan peninginn, á fimm stjörnu hótelum með fullar töskur af hárkollum, farða og kjólum. Svo fer ég í inniskóna í flugvélinni, tek augnhárin af og skelli mér í þrítugustu og aðra röð í Icelandair vélinni, andvarpa og segi „andskotinn, ég þarf að setja í svo margar vélar þegar ég kem heim!“ segir hún og hlær. „Valli sprakk úr hlátri því að honum fannst þetta svo mikið spennufall en ég var bara búin að stimpla mig inn á íslensku Heru sem var bara að fara heim að skeina og skúra.“ Upp úr þessu samtali segir Hera að Queen of Fokking Everything hafi orðið til. „Þarna fattaði ég að maður er ekki alveg í lagi. Ég er náttúrlega þessi klassíska tveggja barna húsmóðir, eiginkona, ástkona og vinkona, arfaslök skúringakona sem þrífur klósett, setur í vélar og brosir í gegnum tárin. Ég hreinlega þoli ekki að brjóta saman þvott og ganga frá honum en geri það samt bölvandi og ragnandi. Og eigum við eitthvað að ræða þessa einmana einstæðu sokka uppi um alla veggi? Allavega, okkur fannst þetta svo fyndið og alveg klárt efni í ágætis sýningu.“ Niðurstaðan varð sýning sem Hera segir vera skemmtilega kvöldstund, fulla af söngvum og sögum úr lífi dívu. „Þetta er sýning á ensku sem ég skrifaði með uppistandaranum og snillingnum Jonathan Duffy. Þarna koma saman húsmóðirin, dívan, fimleikadrottningin, skógræktarbóndinn og söngkennarinn. Allar Herurnar og öll hliðarsjálfin safnast saman á sviðinu til að syngja og segja sögur. Ég veit ekki um betri stað eða stund til að koma út úr skápnum með Queen of Fokking Everything en á Hinsegin dögum. Ég er ótrúlega ánægð, hrærð og glöð með að fá að vera partur af hátíðinni í ár og hlakka gríðarlega til,“ segir Hera spennt fyrir komandi verkefnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.