Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Side 72
72
KAFFIHÚS HINSEGIN DAGA
REYKJAVIK PRIDE CAFÉ
TJARNARBÍÓ, TJARNARGÖTU 12
AT TJARNARBÍÓ, TJARNARGATA 12
Afgreiðslutími:
8.–17. ágúst kl. 11–19
Opening hours:
8–17 August 11 a.m–7 p.m.
Yfir hátíðina verður kaffihús Tjarnarbíós tileinkað
Hinsegin dögum. Það er staðsett aðeins nokkrum
skrefum frá kaupfélagi og upplýsingamiðstöð Hinsegin
daga í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11. Þar verður
svo sannarlega tilvalið að líta við enda verða alltaf tilboð
á veitingum og drykkjum og nóg af hýrum uppákomum
í húsinu; leiksýning, uppistand, dragbítur og margt fleira.
Hinsegin listafólk mun heimsækja staðinn og vera með
varning til sýnis og sölu.
Við mælum með heimsókn í Tjarnarbíó þar sem til
dæmis verður gott að setjast niður með kaffibolla, blaða
í gömlum tímaritum Hinsegin daga og hitta vini og
kunningja til að rifja upp atburði liðinnar nætur.
We encourage you to cross the street from our Pride Store
and Information Centre at Reykjavik City Hall to Tjarnarbíó,
where our Pride Café will be located during Reykjavik Pride.
The Pride Café offers discounted refreshments as well as a
whole lot of events: marvellous drag show acts, hilarious
stand up, delicious drag brunch and much more. Local
queer artists will display and sell their unique work at the
Pride Café as well.
We highly recommend sitting down at the Pride Café with
a good cup of coffee to browse through old Reykjavik Pride
magazines or simply to meet up with a friend to discuss an
eventful previous night out.
HINSEGIN DAGAR Í REYKJAVÍK
ÞAKKA SAMTÖKUNUM ’78 FYRIR
ÓMETANLEGT STARF Í ÞÁGU
MANNRÉTTINDA HINSEGIN
FÓLKS Á ÍSLANDI SÍÐASTLIÐNA
ÁRATUGI.