Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 1
Ert Þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 2. tbl. 24. árg. 13. janúar 2021 - kr. 950 í lausasölu Tilboð gildir út * 330 ml. af Coca Cola eða Coca Cola án sykurs fylgir með Hot dog & Coca cola 5 9 kr. & coke Í dós Arion appið Fyrir hverju langar þig að spara í ár? Reglulegur sparnaður í Arion appinu er alltaf góð hugmynd Björgunarsveitir á Vesturlandi voru um klukkan þrjú á mánudginn kallaðar út til aðstoðar þremur mönnum á gönguskíðum norðan við Þursaborg í Langjökli. Einn göngumannanna hafði snúið sig á fæti og komst því ekki lengra. Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks fór á svæðið á vélsleðum, bílum og snjóbílum. Fyrsti björg- unarsveitarbíll kom að mönnunum um klukkan sex um kvöldið. Hæglætisveður var á jöklinum og um 20 gráðu frost. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kom fram að félagar mannsins sem slasaðist höfðu gert allt rétt í stöðunni, komið félaga sínum í hlý föt og skjól og gefið honum heitt að drekka um leið og þeir hringdu í Neyðar- línuna. Manninum var svo komið um borð í sjúkrabíl í Húsafelli og björgunar- sveitarfólk sá um að koma félögum hans og búnaði niður af jöklinum. arg Fyrsti björgunarsveitarbíllinn kom að mönnunum um klukkan sex. Ljósm. Björgunarsveitin Ok. Við Kerlingarskarð á Snæfellsnesi liggur fyrrum þjóðleið sem teng- ir suður- og norðurhluta Snæfells- ness, en eftir að vegurinn um Vatna- leið var opnaður 2001 hefur gamla þjóðveginum ekki verið haldið við. Efst á Kerlingarskarði er steintröll sem kallast Kerlingin. Svo virðist sem Kerlingin sé nú höfðinu styttri eftir árið 2020, ef marka má mynd sem Sumarliði Ásgeirsson frétta- ritari tók af henni á dögunum. Var hún um 21 metri á hæð áður en hún varð höfðinu styttri. arg Kerlingin kúrir nú höfðinu styttri á fjallinu. Ljósm. sá. Kerlingin höfðinu styttri Starfsmenn Grundarfjarðarbæj- ar hafa nýtt frosthörkurnar síð- ustu daga til að væta vel upp í bíla- planinu við grunnskóla bæjarsins. Þar hefur þeim tekist að mynda þokkalegt svell en þetta var einn- ig gert fyrir jólin 2019 með góð- um árangri. Veður var með ágætum mánudaginn 11. janúar síðastlið- inn þegar þeir Ólafur Geir, Krist- ján Pétur og Leon Logi nýttu svell- ið til að renna sér eftir ísnum. Von- andi helst þetta eitthvað áfram en ef hlýnar þá þarf bara að bíða eftir næsta frosti svo hægt verði að end- urtaka leikinn. tfk Skautað innanbæjar Safahreinsun Kaju Organic Árangursrík safahreinsun með girnilegum söfum frá Kaja Organic Sími 840-1665 Opnunartímar: Virka daga 10:00-16:30 Laugardaga 12:00-16:00

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.