Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 2021 19
Örn Arnarson ræðir við Lúðvík Gunnarsson þjálfara Kára 2019.
Heiðar Mar Björnsson og Örn Arnarson við ÍATV-völlinn á Norðurálsmótinu 2020
(Ingimar Elfar Ágústsson snýr baki í myndavélina).
Örn Arnarson, Björn Þór Björnsson og Hannibal Hauksson við Akranesvöll 2019.
Akraneskaupstaður mun í ársbyrjun 2021 efna til hugmyndasamkeppni um
íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni er að fá hug-
verkefni um dýrmætt svæði og því mikilvægt að kalla eftir skoðunum
auglýsingu um samkeppnina. Könnunin samanstendur af sextíu spurning-
einhverjir heppnir gjöf að launum.
ALLIR ungir sem aldnir eru
hvattir til að taka þátt.
akranes.is/hugmyndasamkeppni
Viðhorfskönnun
Íbúasamráð um hugmyndir að
uppbyggingu á Langasandssvæðinu
Einkunnarorð sveitarfélagsins eru
jákvæðni, metnaður og víðsýni
Sk
an
na
ðu QR kóðann
til að taka þ
át
t
völlinn síðustu tvö árin. Svo er út-
varpsþáttur í útvarpi Akranes orð-
inn fastur liður,“ segir Arnar.
Reyna alltaf að
gera betur
Allar útsendingar ÍATV fara í gegn-
um rásina þeirra á YouTube. Kost-
urinn við það er að strax að lokinni
útsendingu er myndbandið orð-
ið aðgengilegt. Yfirleitt eru knatt-
spyrnuleikirnir einnig teknir upp
auk þess að vera sendir út. Þá er
upptaka til í betri gæðum en á You-
Tube og geymd á hörðum diski.
„Þetta er orðið það mikið að vöxt-
um að Snorri er kominn í hálfgerð
vandræði með geymslupláss.“ seg-
ir Örn. „Stöð 2 og RúV hafa einn-
ig fengið myndskeið til birtingar frá
okkur,“ bætir hann við.
Þegar þeir félagar eru spurðir út
í framtíðina svarar Örn: „Stefnan
er að halda áfram á sömu braut og
reyna alltaf að gera betur, gera þetta
fagmannlega en ekki kasta til hönd-
unum. Það er ákveðinn gæðastand-
ard sem við erum allir stilltir inn á,
hvort sem það er tæknilegs eðlis eða
tungumálið sem er notað í lýsing-
unni. Arnar pikkar alltaf í mig þegar
ég er farinn að sletta þannig að ég
geri mitt besta til að finna góð ís-
lensk orð til að nota í staðinn. Við
ætlum að viðhalda og bæta tækja-
búnaðinn okkar. Muninn, kvik-
myndagerðin hans Heiðars, hefur
lánað okkur mikið af tækjabúnaði
þegar hefur vantað í stærri útsend-
ingar. Það væri gott að eiga allan
tæknibúnað sem við þurfum. Halda
áfram að bæta ofan á og halda áfram
að taka skrefin.”
Vilja fjölga í hópnum
„Þá viljum við endilega fá nýtt
áhugasamt fólk inn í hópinn,“ segja
þeir félagar. „Við erum með tvo til
þrjá til þess að fara á myndavélina,
tvo til þrjá sem skiptast á að lýsa og
tvo til þrjá til að stýra útsending-
um. Ef verkefnin verða of mörg fyr-
ir hvern og einn fer þetta að verða
íþyngjandi. Menn eru með fjöl-
skyldur og geta hreinlega brunnið
upp í þessu. Hingað til höfum við
ekki auglýst sérstaklega eftir fólki en
við myndum glaðir þiggja að fleiri
myndu sýna áhuga. Sérstaklega
yngra fólk og sér í lagi stelpur. Það
er í raun hægt að líta á þetta sem
stökkpall inn í hvaða kvikmynda-
gerð sem er því þessar íþrótta-
myndatökur eru bara svo góð þjálf-
un, þú lærir að bregðast hratt við og
lesa í það sem fer fram. Okkur datt
í hug að kvikmyndaklúbbur í skóla
gæti komið að þessu. Við erum svo-
lítið hræddir um að fólk horfi á okk-
ur og hugsi með sér að þetta sé bara
einhver lokuð klíka – sem við erum
alls ekki.“
En hvernig getur fólk komist í
samband við þá? „Við erum náttúru-
lega á samfélagsmiðlunum og inni á
iatv.is er gluggi þar sem fólk getur
haft samband í gegnum tölvupóst.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa
til þess að hafa samband við okkur,
þeim verður tekið fagnandi. Á iatv.is
eru líka reikningsupplýsingar ef fólk
vill leggja okkur lið við að auka við
og bæta tækjabúnaðinn,“ segja þeir
félagar að lokum. frg/ Ljósm. ÍATV.