Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 202118 nýverið ákvað stjórn Íþróttabanda- lags Akraness (ÍA) að heiðra hóp fólks sem stendur á bak við ÍATV fyrir fórnfúst starf fyrir félagið. Í til- kynningu frá ÍA sem birtist í Skin- faxa, tímariti Ungmennafélags Ís- lands, segir m.a: „Íþróttabanda- lag Akraness hrósar og þakkar þeim hópi fólks sem stendur á bak við ÍATV fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþrótta og mannlífs á Akra- nesi. Hópurinn hefur séð til þess að fjöldi fólks hefur getað horft á ýmsa íþróttaviðburði hjá aðildarfélög- um ÍA. Allar útsendingar eru unn- ar í sjálfboðavinnu og þessi hóp- ur er alltaf tilbúinn til að koma og taka upp ef eitthvað stendur til hjá félögum okkar. ÍATV byrjaði með formlegar útsendingar á körfubolta- leikjum sem síðar vatt upp á sig. Þeim, sem að þessu stóðu, var líka mikið í mun að koma öllum leikj- um hjá knattspyrnukonum Akra- ness í loftið til þess að auka áhorf og umfjöllun um kvennaknattspyrnu á Akranesi. Þetta hefur stækkað all- mikið og hefur gert alla umfjöllun og umgjörð íþrótta og annarra við- burða á Akranesi svo miklu meiri og skemmtilegri.“ Hófst í körfunni Blaðamaður Skessuhorns hitti tvo meðlimi ÍATV, þá Örn Arnarson og Arnar Óðinn Arnþórsson, að máli og spurði þá út í tilurð ÍATV. „Þetta þróaðist út frá Körfuknattleiksfélagi ÍA en ég var formaður þar 2015. Þá datt okkur í hug að senda beint út frá körfuboltanum. Við byrjuð- um að senda út í gegnum iPad á vef sem heitir Ustream. Við notuðum ókeypis útgáfu af því og streymdum en upptakan varðveittist ekki. Síðan þróaðist það þannig að við fórum að fá einhverja til að lýsa, þá sátu þeir bara nálægt iPadinum og töluðu í hann.“ segir Örn. Örn heldur áfram: „Síðan feng- um við hann Heiðar Mar Björns- son kvikmyndagerðarmann til þess að hjálpa okkur til þess að gera þetta aðeins betur. Hann kom með sinn búnað, myndavél og tölvu. Hann var í raun að gera það af greiðasemi við körfuknattleiksfélagið. Við þekkj- umst vel við Heiðar og fórum að fabúlera með þessa hugmynd, hvort ekki væri nær að stofna eitthvað sem myndi nýtast fleirum. Í framhaldinu fórum við og ræddum við Íþrótta- bandalagið um hvort þeir væru til- búnir að styrkja svona verkefni. Sem betur fer voru framkvæmdastjór- inn og meirihluti þeirrar stjórnar sem þá var hlynnt þessu. úr varð að við fengum styrk til þess að kaupa myndavél og tölvu og fyrsta út- sendingin undir merkjum ÍATV var frá körfuboltaleik ÍA og Vestra í nóvember 2016. Fyrst um sinn var þetta bara körfubolti en þegar kom fram á sumar vorum við ákveðnir að taka kvennaboltann. Á þeim tíma var karlaliðið í efstu deild en kvennalið- ið í næst efstu deild. Karlaliðið fékk því þegar mikla umfjöllun og beinar útsendingar. Síðan hefur þetta bara stækkað.“ Fleiri bættust í hópinn Arnar kemur að sögn Arnar inn í þetta fyrir tilviljun. „Ég stóð og var að vandræðast, vantaði mann á myndavélina þegar Arnar kom sem áhorfandi,“ segir Örn. Arnar held- ur áfram: „já, já, ég skal gera það í þetta skiptið. Svo hafði Örn sam- band við mig síðar og spurði hvort ég væri til í að vera með í þessu. Ég sló til og hef verið með síðan - og losna sennilega aldrei úr þessu.“ Síðan þetta var hefur verið að bæt- ast í hópinn að sögn Arnar. „Snorri Kristleifsson, ofboðslega flinkur tæknimaður, bættist við og Ingimar Elvar Ágústsson kom inn í þetta sem mjög áhugasamur en hann var þá sennilega í níunda bekk. Hann var þá á námskeiði í kvikmyndagerð í Grundaskóla. Þessi þátttaka í ÍATV hefur haft þónokkuð að segja því Arnar til að mynda var kominn sem kamerumaður hjá RúV og Stöð 2 Sport. Ingimar Elvar var að vinna í útsendingarbílnum hjá Stöð 2 Sport í sumar. Þessi reynsla getur því skap- að ýmis tækifæri fyrir fólk sem hefur áhuga á að fara þessa leið.“ „Fleiri hafa komið að lýsingum hjá okkur.“ segja þeir félagar. „Þar má nefna Björn Þór Björnsson, bróður Heiðars Mar, Sverri Mar Smárason, Hannibal Hauksson og jón Orra Kristjánsson. Þá hafa nokkrir verið kamerumenn í styttri tíma en kjarn- inn í þessu sem hefur verið nokkuð lengi og í flestum verkefnum eru sex talsins.“ Margar vinnustundir Örn segir að allt sé þetta starf þeirra félaga unnið í sjálfboðavinnu og hefst vegna áhuga þeirra á íþróttum og fjölmiðlum og þess að þeir vilja gera þetta fyrir félagið sitt. „Þetta er annars vegar hugsað sem þjónusta, bæði við íþróttafélögin og stuðn- ingsmenn íþrótta á Akranesi, en hins vegar þannig að við erum að skrásetja og varðveita söguna. Við eigum til að mynda myndskeið af því þegar Ísak Bergmann kemur inn á í fyrsta og eina skiptið hjá ÍA.“ Á síðasta ári var ÍATV með 55 beinar útsendingar en þær hefðu orðið mun fleiri hefði Covid ekki sett strik í reikninginn. Frá upp- hafi eru útsendingarnar orðnar 220 talsins. „Metárið okkar, 2019, vor- um við með 66 útsendingar en við hefðum bætt það ef allt hefði ver- ið eðlilegt á síðasta ári. Þetta hafa verið rúmlega ein útsending á viku. Í venjulegri útsendingu eru þrír starfsmenn; lýsandi, myndatöku- maður og tölvumaður en stundum erum við fimm. Með uppsetningu og frágangi tekur þetta um fjórar klukkustundir. Það eru því um 12 vinnustundir og stundum 20 á bak við eina útsendingu. Stundum tek- ur þetta enn lengri tíma. Golfmót sem við sýndum frá tók tíu klukku- stundir. Þá vorum við talsvert fleiri að vinna.“ segir Örn. Meira áhorf en hjól- hestaspyrna Ronaldos „Á síðasta ári vorum við með yfir 86.000 áhorf og erum komnir með um 1.500 áskrifendur. Það drífur okkur svolítið áfram hvað við mæt- um allsstaðar mikilli jákvæðni. Fólk sem við þekkjum ekki stoppar okkur úti í búð og hrósar okkur auk þess sem okkur berst hvatning víða að utan úr heimi. Þá má nefna að klippa frá okkur af marki Arnars Más, sem hann skoraði frá miðju, fékk tvær til þrjár milljónir áhorfa. Ronaldo skoraði í sömu viku mark með hjól- hestaspyrnu en klippan okkar fékk meira áhorf en Ronaldo.“ Það hafa líka verið að bætast við verkefni hjá ÍATV. „Þetta er ekki lengur bara fótbolti og körfubolti. Við höfum sent út frá kjöri íþrótta- manns Akraness, golfi, klifri, fim- leikum, badminton, amerískum fót- bolta, fundum og tónleikum og í vor gerðum við fimm þátta seríuna „Að koma saman er bannað“. Þá má ekki gleyma norðurálsmótinu sem er al- veg sérstaklega gaman að taka þátt í. Þar höfum við verið með ÍATV- Íþróttabandalag Akraness heiðrar ÍATV Við upptöku á útsendingu vegna Íþróttamanns Akraness á þrettándanum í síðustu viku. F.v. Örn, Arnar, Snorri, Heiðar Mar og Ingimar Elfar. Ljósm. mm Arnar Óðinn Arnþórsson við ÍATV-völlinn á Norðurálsmótinu 2020. Björn Þór Björnsson og Örn Arnarson við Akranesvöll 2019.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.