Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 202112 Uppskeruhátíð Fimleikasambands Íslands var eins og margt ann- að haldin rafrænt í ár. Starfsmenn sambandins fóru og hittu þá sem hlutu viðurkenningar og færðu þeim þakklætisvott fyrir góðan ár- angur og vel unnin störf. Brynjar Sigurðsson, þjálfari ÍA, var valinn þjálfari ársins. Hann hefur unnið óeigingjarnt starf í þágu Fimleika- félags Akraness. „Hann er sterk- ur leiðtogi og burðarás í þjálfara- teymi félagsins,“ segir í umsögn um Brynjar á heimasíðu Fimleikasam- bands Íslands. Brynjar hefur unnið hjá Fimleikafélagi Akraness í nærri tvo áratugi og hefur félagið notið góðs af því. arg Menntaskóli Borgarfjarðar og Sím- inn hófu samstarf nú í haust und- ir heitinu „Síminn skapar tækifæri fyrir sitt fólk.“ Markmið verkefnis- ins er að styðja við starfsfólks Sím- ans til að afla sér frekari menntun- ar og því var leitað samstarfs við MB um fræðsluhliðina. Allt stefn- ir í að þrettán starfsmenn Sím- ans verði skráðir nemendur MB í gegnum þessa námsleið nú á vor- dögum. Starfsfólk Símans sem ekki hefur lokið formlegu námi, svo sem stúdentsprófi eða iðnnámi, geti nú skráð sig í fjarnám við skólann og sinnt námi samhliða störfum sínum hjá Símanum. Samningur Símans og MB felur í sér að þessir nemend- ur fá aukna athygli umsjónaraðila innan skólans ásamt því að Síminn skuldbindur sig að veita sínu starfs- fólki svigrúm svo námið sitji ekki á hakanum. Við upphaf námsins er farið vandlega yfir og metið fyrra nám og reynsla, til dæmis litið til raun- færnimats en með slíku mati geta nemendur unnið sér inn einingar sem gefnar eru út frá þeirri reynslu sem þeir hafa öðlast í störfum sín- um. Allir nemendur hafa farið í gegnum raunfærnimat á vegum Sí- menntunarmiðstöðvar Vesturlands. nemendum er úthlutað umsjónar- kennara sem hefur það hlutverk að fylgjast með framvindu og styðja nemendur ásamt því að námsráð- gjöf stendur þeim til boða. Alls eru 17 nemendur skráðir í þessa náms- leið á vorönn. „Við hjá Menntaskóla Borgar- fjarðar lítum það mjög jákvæðum augum að koma til móts við fólk sem á einhverjum tímapunkti hefur ekki náð að ljúka námi. Það er mik- ilvægt hlutverk menntastofnana að finna leiðir sem henta sem flestum og ekki síður ef það er hægt að gera í samvinnu við atvinnulífið,“ segir Bragi Þór Svavarsson skólameist- ari. mm nýir eigendur að Dússabar í Borg- arnesi sátu hvergi auðum hönd- um eftir að hafa fengið lyklavöld- in að staðnum á laugardaginn. „Við tókum við lyklunum í gær og það er gjörsamlega búið að rústa öllu hérna út. Þú sérð hvað spennan er mikil,“ segir Sóley Ósk Sigur- geirsdóttir, einn af eigendum nýja staðarins í samtali við blaðamann Skessuhorns. Þau María og Stein- þór Grönfeldt hafa því hætt starf- semi eftir langan rekstur í hús- inu. Ekki leynir sér spenningur- inn í loftinu hjá fjórmenningunum sem eiga nú Dússabar. Hjónin Sól- ey Ósk og Hlynur Þór Ragnarsson og Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir og Magnús Björn jóhannsson eru fjór- menningarnir sem keyptu Dússa- bar en þess má geta að Sóley Ósk og Rakel Dögg eru systur og dætur Geira bakara og Önnubellu. Fjölskylduvæn barstemning Þegar blaðamaður kíkti í heimsókn til nýju eigendanna á sunnudaginn var spenningurinn í loftinu nánast áþreifanlegur enda var strax hafist handa við að græja og gera stað- inn tilbúinn til opnunar á nýjan leik. „Maggi og Hlynur kíktu að- eins hingað í gær þegar við fengum lyklana og ætluðu bara að gera eitt- hvað smá. Svo komum við Rakel um klukkutíma seinna, en þá voru þeir búnir að rífa allt úr eldhúsinu,“ segir Sóley og hlær. „Okkur langar að opna skemmti- legan og lifandi stað. Við sjáum fyr- ir okkur vini og vandamenn sem og vinnufélaga koma saman. Fá sér einn drykk eða tvo, jafnvel léttan mat. Leysa heimsmálin, hlæja smá og halda heim á leið. Við höfum ferðast mikið og upplifað skemmti- lega fjölskylduvæna barstemningu um allan heim sem okkur langar að bjóða upp á í Borgarnesi,“ segir Rakel Dögg um áætlanir þeirra fyrir staðinn. „Þetta verður svona pöbb- inn í hverfinu. Við munum bjóða upp á gott úrval af bjór, áfengum og óáfengum, auk þess sem hægt verður að fá léttan bar mat og helst viljum við hafa flest hráefni úr hér- aði,“ bætir Rakel við. „Þetta snýst um að gera eitthvað skemmtilegt,“ skýtur Magnús inn í áður en hann rífur gamla barborðið upp af nögl- unum með tilheyrandi látum. „Allt sem er til staðar í bænum er yndis- legt, við viljum bæta við í flóruna og bæta enn fremur við þjónustuna í bænum,“ segir Sóley. Bjóráhugafólk Rakel, Magnús, Sóley og Hlynur eru öll tiltölulega nýflutt á heima- slóðir. Rakel og Magnús bjuggu í 12 ár í Hafnarfirði og þar áður í sex ár í Danmörku. Þau fluttu á heima- slóðir Rakelar, í Borgarnes, fyrir rúmu ári síðan til að einfalda líf sitt og til að stofna ferðaþjónustufyrir- tæki í Borgarnesi. Sóley og Hlynur hafa búið í noregi síðastliðin sex ár. Áður hafa þau búið víðsvegar á Ís- landi, einnig um stund í London og Danmörku. Fluttu þau í Borgarnes í sumar. „Við erum öll flutt til baka í Borgarnes og erum mikið bjór- áhugafólk, okkur finnst mjög gott að fá góðan bjór. Það er einmitt þetta, að hafa einhvern stað sem okkur langar að hafa í bænum. Það sem við erum vön að hafa í kring- um okkur og það sem okkur þykir rosalega skemmtilegt. Öll eru þau í vinnu samsíða þessu nýja verkefni. Magnús Björn starfar sem leiðsögu- maður og málari, Rakel Dögg er sjúkraþjálfari, Sóley Ósk er kennari við Grunnskólann í Borgarnesi og Hlynur Þór starfar sem pípulagn- ingamaður. „Eins og staðan er núna þá nýtum við kvöldin og helgarnar að gera staðinn kláran til reksturs,“ segir Rakel. Borgarnes er heillandi staður Margt þarf að gera áður en stað- urinn verður opnaður, en miðað við taktinn í samfélaginu þar sem samkomur eru takmarkaðar eru þau ekkert að stressa sig yfir því að opna sem fyrst. „Við stefnum á að opna með vorinu. Við erum ekk- ert stressuð á tíma og okkur ligg- ur ekkert á þannig lagað. Við ætlum fyrst og fremst að gera þetta vel og reyna gera þetta flott. Gefum þessu tvo til þrjá mánuði og þó það séu ekki nema tíu sem komast inn þeg- ar við opnum, þá verður það bara þannig. Um leið og Þórólfur gef- ur grænt ljós á samkomur af þessu tagi, þá verðum við til í slaginn,“ segir Rakel létt í lund. „Borgarnes er heillandi staður á svo marga vegu en það vantar aðeins upp á finnst okkur og þessi ákvörðun að kaupa Dússabar er bara einn liður í því að búa til samfélagið sem við viljum búa í,“ segir Rakel full tilhlökkunar að endingu. glh Bragi Þór Svavarsson skólameistari MB og Eva Karen Þórðardóttir fræðslustjóri Símans. Menntaskóli Borgarfjarðar og Síminn í fræðslusamstarf Brynjar er þjálfari ársins hjá Fimleikasambandi Íslands. Ljósm. FÍ. Brynjar er þjálfari ársins Vilja opna lifandi og skemmtilegan stað Rætt við nýju eigendur Dússabars í Borgarnesi Nýir eigendur Dússabars: Hlynur Þór, Sóley Ósk, Magnús Björn og Rakel Dögg. Nafnið Dússabar verður lagt til hliðar þegar nýi staðurinn verður opnaður með vorinu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.