Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 20216
Píratar bjóða
fram í öllum
kjördæmum
LANDIÐ: Skráning í próf-
kjör Pírata er nú hafin og
stendur yfir til 3. mars, en
þann sama dag hefst jafn-
framt prófkjörið sjálft á
kosningavef Pírata, x.piratar.
is. Prófkjörinu lýkur 13. mars
og mun þá liggja fyrir hverjir
verða í framboði fyrir Pírata
í komandi alþingiskosning-
um. „Hver sem er getur boð-
ið sig fram í prófkjörinu. Til
þess þarf viðkomandi að skrá
sig í Pírata, en það má gera á
vefnum x.piratar.is. Atkvæð-
isrétt í prófkjörinu hafa þau
sem skráð hafa verið í flokk-
inn í 30 daga eða lengur.
Síðustu forvöð að skrá sig í
Pírata til að geta greitt at-
kvæði í prófkjörinu eru því
11. febrúar,“ segir í tilkynn-
ingu frá flokknum. Þá kem-
ur fram að Píratar munu
bjóða fram í öllum kjördæm-
um í komandi kosningum og
verður sameiginlegt prófkjör
í Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur. „Allir meðlimir Pí-
rata sem hafa kosningarétt
í næstu alþingiskosningum
geta boðið sig fram í próf-
kjörum Pírata, hvar sem er
á landinu. Allar upplýsingar
um prófkjörin, skráningar í
framboð og atkvæðisrétt má
nálgast á prófkjörsvef Pírata
https://piratar.is/kosning-
ar/“ -mm
Allri
dagskrá læst
LANDIÐ: Allt efni Stöðv-
ar 2 verður í læstri dagskrá
frá og með 18. janúar næst-
komandi, þar á meðal frétt-
ir stöðvarinnar. Stöð 2 verð-
ur því að fullu áskriftarstöð,
en áskriftinni fylgir einn-
ig aðgangur að efnisveit-
unni Stöð 2+. Í tilkynningu
er haft eftir Þórhalli Gunn-
arssyni framkvæmdastjóra
fjölmiðla Stöðvar 2 að þetta
sé sóknaraðgerð. Með þessu
sé sess fréttastofu Stöðv-
ar 2 enn frekar tryggður.
Hann kveðst sannfærður
um að með stuðningi áskrif-
enda skapist forsendur til að
standa vörð um öfluga frétta-
þjónustu og framleiðslu inn-
lends efnis. -mm
Vann 60
milljónir
LANDIÐ: Hann var hepp-
inn ungi maðurinn sem vann
59,7 milljónir í Vikinglottói sl.
miðvikudag. Fyrst ætlar hann
að kaupa sér íbúð og síðan
bíl og svo ætlar hann að gera
eitthvað skemmtilegt fyrir af-
ganginn, segir í tilkynningu
frá Íslenskri getspá. Maðurinn
hafði keypt sér 10 raða Vik-
inglottomiða á lotto.is kvöldið
fyrir útdrátt, mundi eftir hon-
um seint á miðvikudagskvöld-
ið og ætlaði varla að trúa því
sem hann sá þar, skilaboð um
að hann hafði unnið tæpar 60
milljónir. „Það má því með
sanni segja að árið byrji vel
hjá þessum unga manni, hann
ætlar að þiggja fjármálaráðgjöf
sem öllum vinningshöfum
býðst sem vinna stóra vinn-
inga í Lottó. Starfsfólk Get-
spár og Getrauna óskar þess-
um heppna unga manni inni-
lega til hamingju með vinn-
inginn,“ segir í tilkynningu.
-mm
Fíkniefnaakstur
AKRANES: Um miðjan dag
á laugardag barst lögreglu til-
kynning um ökumann undir
áhrifum fíkniefna á Akranesi.
Lögreglumenn sáu ökumann-
inn koma inn á bílastæði við
verslun í bænum og tóku hann
tali. Svaraði ökumaður jákvætt
á fíkniefnaprófi en þvertók þó
fyrir að hafa neytt fíkniefna
nýlega. Frekari rannsókn stað-
festi niðurstöður prófsins og
fór mál hans því hefðbundna
leið. -frg
Páll Brynjarsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka sveitarfélaga á Vest-
urlandi, segir mikilvægt að at-
vinnumál með áherslu á nýsköp-
un og ferðaþjónustu verði sérstak-
lega rædd í aðdraganda alþingis-
kosninganna síðar á árinu. Einn-
ig bendir hann á mikilvægi sam-
göngu- og menntamála. Hann
segir brýnt að stjórnvöld hugi
sérstaklega að eflingu nýsköpun-
ar á landsbyggðinni, ráðist verði
í nauðsynlegar samgöngubætur á
Vesturlandi og að menntastofnan-
ir á svæðinu verði efldar og þeim
tryggt fjárhagslegt sjálfstæði. Þetta
kemur fram í viðtali við Pál á sjón-
varpsstöðinni n4 nýverið. Hluta
úr svörum Páls má lesa hér, með
góðfúslegu leyfi n4.
Atvinnumál, nýsköpun
og ferðaþjónusta
„Það er ljóst að efling atvinnulífs-
ins er einn af lykilþáttum þess að
við getum unnið okkur út úr Co-
vid-kreppunni. Ferðaþjónustan
var orðin mjög mikilvæg atvinnu-
grein á Vesturlandi fyrir krepp-
una. Byggð höfðu verið upp öflug
fyrirtæki, mannvirki og þjónusta
og því er afar brýnt að stjórnvöld
styðji við vöxt hennar og viðgang
um leið og við getum farið að taka
á móti ferðafólki.
Margt bendir til þess að það sé
sátt um það í samfélaginu að nú
sé mikilvægt að horfa til nýsköp-
unar til þess að styrkja íslenskt at-
vinnulíf að nýju. Því er brýnt að
stjórnvöld haldi áfram að styðja
við nýsköpun og bæti frekar í, sér-
staklega á landsbyggðinni þar sem
mikilvægt er að efla nýsköpun.
Þá verða stjórnvöld að standa við
fyrirheit sitt um að auglýsa opinber
störf án staðsetningar og stuðla að
því að opinber störf dreifist jafnar
um landið og þau séu ekki öll stað-
sett á höfuðborgarsvæðinu.“
Samgöngumál
og fjarskipti
„Vestlendingar hafa lagt mikla
áherslu á mikilvægi þess að bæta
samgöngur í landshlutanum. Fyr-
ir fjórum árum samþykktu sveit-
arfélögin sérstaka samgönguáætl-
un fyrir landshlutann þar sem
góð sátt náðist um forgangsröðun
verkefna. Ýmislegt hefur áunnist,
en ennþá standa eftir mikilvægar
leiðir sem nauðsynlegt er að end-
urbæta og veita fjarmagni í. Þetta
á við um tvöföldun á Vesturlands-
vegi frá Kjalarnesi í Borgarnes, veg
um Skógarströnd, veginn um Ux-
ahryggi og Laxárdalsheiði. Veg-
ir innan héraða skipta líka miklu
mál til að skapa heilstæð atvinnu-
og þjónustusvæði. Svo viljum við
Sundabraut strax.
Verkefnið Ísland ljóstengt, ljós-
leiðarvæðing í dreifbýli, heppn-
aðist einstaklega vel og nú er afar
brýnt að tryggja ljósleiðaravæð-
ingu í þéttbýlisstöðum sem hafa
setið eftir. Leita þarf allra leiða
til þess að þetta verkefni komist í
framkvæmd.“
Menntun
„Á Vesturlandi eru tveir háskólar,
þrír framhaldsskólar, símenntun-
arstöð og nokkur þekkingar- og
rannsóknarsetur, sem eru gríðar-
lega mikilvægar stoðir í grunn-
gerð samfélagsins. Þessi starfsemi
er mjög mikilvæg fyrir Vesturland
þar sem helstu sóknarfæri í at-
vinnuuppbyggingu á næstu árum
eru talin verða í þekkingariðnaði,
auk þess sem allar atvinnugreinar
munu í framtíðinni þurfa að reiða
sig á öfluga sí- og endurmennt-
un.
Því skiptir það okkur Vest-
lendinga miklu máli að starfsemi
skólanna og þekkingar- og rann-
sóknasetra verði efld og þeim
tryggt rekstrarlegt sjálfstæði og
fjárhagslegur rekstrargrundvöll-
ur, enda hefur starfsemi þessara
stofnanna haft jákvæð mælanleg
áhrif á þekkingarstig og búsetu á
Vesturlandi,“ segir Páll Brynjars-
son framkvæmdastjóri Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi í sam-
tali við n4.
mm/Karl Eskil Pálsson.
Þrír mikilvægir málaflokkar
sem þarf að ræða
Páll S Brynjarsson var í viðtali við sjónvarpsstöðina N4.