Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 2021 7 Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Við framleiðum ár hvert um 320.000 tonn af hreinu áli og álblöndum sem fara á erlenda markaði. Íslenski áliðnaðurinn er ein helsta útflutningsgrein landsins. Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun og fleira. Störfin henta öllum kynjum. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu. Sumarstarfsfólk í framleiðslu fer á námskeið vegna vinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru á www.nordural.is og í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið. Menntunar- og hæfnikröfur: Spennandi sumarstörf 18 ára lágmarksaldur Dugnaður og sjálfstæði Bílpróf er skilyrði Mikil öryggisvitund og árvekni Heiðarleiki og stundvísi Góð samskiptahæfni ÖLL ALMENN SMÍÐAVINNA BORGARFIRÐI aybyggir@gmail.com865 7578 GJ málun ehfmálningarþjónusta Akravellir 12 - Hval arðarsveit sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra ákvað á föstudaginn, í samráði við Þórólf Guðnason sótt- varnalækni, breytingar á samkomu- takmörkunum sem taka gildi frá og með deginum í dag, 13. janúar, og gilda til 17. febrúar næstkomandi. Sóttvarnalæknir lagði til tilslakanir í ljósi þess hversu vel hefur gengið undanfarið við að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar en þó með þeim fyrirvara að þróunin snúist ekki á verri veg. Þá benti hann á að víða erlendis sé faraldurinn í mikilli uppsveiflu sem m.a. megi rekja til nýs afbrigðis af veirunni sem hef- ur enn ekki náð að breiða úr sér hér á landi. Helstu breytingar sem taka nú gildi eru þær að almennar fjölda- takmarkanir verða 20 manns. Í verslunum er gert ráð fyrir einum viðskiptavini á hverja fjóra fermetra en aldrei fleiri en 100 viðskiptavini í rými. Starfsemi í heilsu- og líkams- ræktarstöðvum má fara af stað aftur en með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má ekki fara yfir helming þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsað- staða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Aðeins verður heimilt að halda skipulagða hópatíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og að gestir séu skráðir í hvern tíma. Þá skulu búningsklefar vera lokaðir. Börn fædd 2005 eða síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Íþróttaæfingar fyrir börn og full- orðna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra, en ekki mega vera fleiri en 50 vera saman í rými. Þá verða íþrótta- keppnir barna og fullorðinna heim- ilar án áhorfenda. Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu fjögur í útgefnum reglum skíða- svæðanna í landinu. Tryggja skal að þeir sem eru einir á ferð deili ekki lyftustól með öðrum og halda skal tveggja metra nálægðarmörkum auk þess sem sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar. Í sviðslistum mega allt að 50 manns vera saman á sviði á æfing- um og sýningum og andlitsgrímur skulu vera notaðar eins og hægt er og tveggja metra nálægðarmörk virt eftir föngum. Gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 eða síðar og gestir skulu sitja í sætum sem eru skráð á nafn. Fullorðnir eiga að bera grímu. arg Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi í dag

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.