Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 20218 Bjóða heildar- lausn á þorra- blótum á netinu LANDIÐ: Á þessum for- dæmalausu tímum verða þorrablótin fyrir barðinu á samkomutakmörkunum líkt og margt annað. Með það að markmiði að halda þorra- blótum 2021 lifandi hafa nokkur fyrirtæki sameinað krafta sína og búið til lausn; „Þorrablót heim í stofu.“ „Það eru fyrirtækin Þrjár á priki, Hilton hótel, Kalla K og Kjarnafæði sem búið hafa til pakka sem félög, fyr- irtæki og hópar geta keypt á netinu. Í pakkanum felst gæða þorramatur með öllu, skemmtiatriði með lands- frægum skemmtikröftum ásamt möguleika á streymi á eigin skemmtiatriðum í sinn hóp. Fjölskyldur og vina- hópar geta keypt pakka fyr- ir sig og notið í samræmi við fjöldatakmarkanir, fyrirtæki geta haldið fyrirtækjaþorra- blótið og keypt pakka fyr- ir sína starfsmenn sem njóta heima í stofu. Sérlausn er fyrir íþrótta- og ungmenna- félög sem standa fyrir þorra- blótum í sínum samfélögum, en í þeirra lausn er sérstak- lega hugsað fyrir möguleik- um á fjáröflun félaganna.“ Þá segir í tilkynningu að heyrst hafi að um allt land sitji þorrablótsnefndir á neyðarfundum og telja sig jafnvel þurfa að fella nið- ur þorrablótin, en nú gerist þess ekki þörf. „Gísli Ein- arsson verður veislustjóri og skemmtikraftar sem koma fram eru jóhanna Guðrún og Davíð ásamt Eyþóri Inga. Landinn hefur sýnt ótrú- lega aðlögunarhæfni síðustu mánuði við að færa flest á netið, eins og vinnu, jólatón- leika, fjölskylduboð, jarðar- farir og fleira, en nú er kom- ið að þorrablótum á netinu,“ segir í tilkynningu. Heima- síða er komin í loftið á slóð- inni www.torrablot.is en þar hægt að bóka og fá frekari upplýsingar og leggja inn pantanir. -mm Afbrigðileg hegð- un og eldur í skógrækt AKRANES: Laugardaginn 2. janúar kom vegfarandi með tösku á lögreglustöðina á Akranesi. Í töskunni var tveggja lítra brúsi fullur af bensíni og pappír auk þess sem pappír stóð upp úr stút brúsans. Þá var taskan full af plasti og pappír. Að morgni föstudags- ins 8. jan barst lögreglu tilkynn- ing um eld í skógræktinni Garða- lundi á Akranesi. Vegfarandi varð var við eldinn um kl. 10:30 að morgni og tilkynnti neyðarlínu um eldinn. Lögreglumenn sem komu á staðinn náðu að slökkva eldinn með slökkvitækjum en alls logaði í fimm ruslatunnum. Enginn var nálægur og er málið óupplýst. Lögregla lýsir áhygg- um af vaxandi skemmdarverkum í skógræktinni en auk elds hafa salerni skógræktarinnar verið skemmd og umgengni verið afar slæm um hríð. -frg Eftirlit með spilakössum VESTURLAND: Undanfar- ið hefur lögreglan á Vesturlandi lagt áherslu á eftirlit með spila- kössum. Strangar reglur gilda um spilakassa og má þar nefna staðsetningu kassanna og merk- ingar á þeim. Kassarnir eiga að vera merktir með raðnúmerum og aðilanum sem ágóðinn renn- ur til. Þá þarf að gæta sóttvarna og þess að ólögráða einstakling- um er óheimilt að nota kassana. -frg Aflatölur fyrir Vesturland 2. - 8. janúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 3 bátar. Heildarlöndun: 20.464 kg. Mestur afli: Eskey ÓF-80: 16.156 kg. í tveimur löndun- um. Arnarstapi: Engar landanir á tímabilinu. Grundarfjörður: 3 bátar. Heildarlöndun: 165.316 kg. Mestur afli: Hringur SH-153: 69.137 kg. í einni löndun. Ólafsvík: 17 bátar. Heildarlöndun: 307.840 kg. Mestur afli: Kristinn HU-812: 59.328 kg. í fimm löndunum. Rif: 14 bátar. Heildarlöndun: 396.290 kg. Mestur afli: Magnús SH-205: 70.049 kg. í sex löndun. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 30.129 kg. Mestur afli: Kári SH-78: 13.691 kg. í þremur löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Hringur SH - 153 - GRU: 69.137 kg. 6. jan. 2. Tjaldur SH - 270 - RIF: 63.766 kg. 7. jan. 3. Farsæll SH - 30 - GRU: 49.564 kg. 6. jan. 4. Sigurborg SH - 12 - GRU: 46.615 kr. 5. jan. 5. Hamar SH - 224 - RIF: 23.430 kg. 7. jan -frg Vinna við breikkun sjóvarnargarðs- ins við Faxabraut á Akranesi stend- ur nú yfir og gengur hratt hjá Borg- arverki, sem er verktakinn. Breikk- unin á sjóvarnargarðinum er að verða lokið og hækkun garðsins langt komin. Ljóst er að ásýnd Langasands hefur breyst talsvert við þessar framkvæmdir, en hækk- un garðsins um fjóra metra ger- ir það að verkum að hann breikk- ar um á að giska tuttugu metra við framkvæmdirnar. frg Póst- og fjarskiptastofnun hef- ur með úrskurði frá 30. desemb- er síðastliðnum fallist á beiðni Ís- landspósts um að gera verulegar breytingar á þeim afsláttarkjörum fyrir magnpóst, sem verið hafa í gildi frá árinu 2012. Með ákvörð- un sinni hefur stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu for- sendur til að gera athugasemdir við ósk Íslandspósts um breytingar á gjaldskrá félagsins vegna magn- póstssendinga. Vísað er til þess að kostnaðarbókhald sýni að afslátt- arsvigrúm ÍSP hafi farið minnk- andi og sé nú svo komið að heildar- afsláttur til söfnunaraðila er orðin meiri en afsláttarsvigrúm kostnað- arbókhalds ÍSP leiðir fram. Íslandspóstur mun í kjölfar þess- arar niðurstöðu PFS lækka þau af- sláttarkjör sem í boði hafa ver- ið til þeirra sem senda magnpóst til heimila og fyrirtækja, þ.e. inn- heimt gjald fyrir dreifingu á öll- um frípósti, bæklingum og auglýs- ingaritum, sem send eru út ónafn- merkt í hús. Þessi stefna er raunar í samhljómi við þá ákvörðun fyrir- tækisins að hækka gjaldskrá fyrir bréfasendingar um hvorki meira né minna en 15% um síðustu ára- mót. Í tilkynningu frá Íslandspósti vegna hennar segir að ljóst sé að á næstu árum megi ætla að bréfum fækki talsvert vegna umhverfisvit- undar og rafrænnar umbyltingar í fyrirtækjum og hjá einstaklingum. „Samskipti sem hingað til hafa ver- ið í gegnum bréfasendingar eru í auknum mæli með rafrænum hætti og hefur þessi þróun mikil áhrif á verð á þessum vöruflokki,“ sagði í tilkynningu ÍSP. mm Ungmennafélag Íslands hefur sam- ið um tilfærslu verkefna til Ung- mennasambands Borgarfjarðar. Í samningnum felst að UMSB tek- ur að sér ýmis verkefni á sviði for- varna- og lýðheilsumála. Samn- ingurinn er nýstárlegur og er liður UMFÍ í því að styrkja íþróttahér- uð landsins. Samningurinn kveður á um að Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri UMSB, sinni vinnunni fyrir UMFÍ meðfram störfum sínum fyrir UMSB. Sigurður þekkir vel til starf- semi UMFÍ. Var hann starfsmað- ur þess 2008-2014 og sá þá m.a. um námskeið og fræðslu. Þá hef- ur hann unnið fyrir Íþróttabanda- lag Reykjavíkur, aðra sambands- aðilum UMFÍ og m.a. komið að skipulagningu Reykjavíkurmara- þons. Auk þess hefur hann verið tómstundafulltrúi Borgarbyggðar fyrir hönd UMSB og setið í Æsku- lýðsráði ríkisins og vann þar m.a. að stefnumótun æskulýðsfélaga á Íslandi. Sigurður var jafnframt um skeið formaður Ungmenna- félagsins Íslendings sem rekur m.a. Hreppslaug í Skorradal. „Mér líst afar vel á þetta fyrir- komulag enda gagnast það bæði UMSB og UMFÍ. UMSB er í þeirri stöðu að geta tekið við verk- efnum frá UMFÍ. Þetta er því kjör- ið tækifæri og bæði eykur og styrk- ir samstarf UMFÍ og USMB. Ég sé fyrir mér að í framtíðinni muni fleiri íþróttahéruð taka að sér aukin verkefni fyrir íþróttahreyfinguna með sambærilegum hætti,“ segir Sigurður. mm Heimila Íslandspósti að fella niður afslætti af magnpóstsendingum Breikkun sjóvarnagarðsins við Faxabraut að ljúka Unnið við breikkun sjóvarnargarðsins í krikanum á mótum Faxabrautar og Jarðarsbrautar. Stjórnandi gröfunnar frá Borgarverki lét flugeldasýningu Björgunarfélags Akraness á þrettándanum ekki hafa áhrif á sig, heldur hélt ótrauður áfram við vinnu sína. Var tilkomumikið að fylgjast með atganginum í myrkrinu í ljósbjarmanum frá flugeldunum ofan við bryggjuna. UMSB falin verkefni fyrir UMFÍ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.