Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 13.01.2021, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 202120 Framkvæmdir halda áfram við Grundarfjarðarhöfn á nýju ári og eru starfsmenn Almennu umhverf- isþjónustunnar iðnir þessa dagana við bryggjuna. Síðasta mánudag var byrjað að setja fríholt utan á leng- ingu norðurgarðs og í framhaldi af því verða settir stigar og kanttré. Eftir það hefst vinna við að reisa rafmagns- og vatnshús á norður- garði. Áætlað er að lagnavinna fari fram í vetur ef veður leyfir og svo verður hafist handa við að steypa þekjuna með hækkandi sól í vor. tfk Matvælastofnun vekur athygli á of miklu magni af aukefninu própý- lenglýkól (E1520) í orkudrykkjun- um Monster Lewis Hamilton LH 44 og Monster Vanilla Espresso. Innflytjandinn, Coca-Cola Euro- pean Partners (CCEP), innkallar drykkina í samráði við Heilbrigðis- eftirlit Reykjavíkur. Innköllunin á eingöngu við eftir- farandi vöruheiti: Vörumerki: Monster• Vöruheiti: Lewis Hamilton • LH44 Energy Drink Best fyrir dagsetning: Allar • dagsetningar Strikamerki: 5060337508988• Lotunúmer: Öll lotunúmer• nettómagn: 500 ml• Geymsluskilyrði: Á ekki við• Framleiðandi: Monster Ltd.• Framleiðsluland: Holland• Dreifing: Aðföng (Hagkaup), • Fjarðarkaup, Heimkaup, Ice- land, Kjörbúðin, Krambúðin, Melabúðin, Miðstöðin, n1, nettó, Tíu-ellefu, Kassinn. Vörumerki: Monster• Vöruheiti: Vanilla Espresso • - Espresso vanilla flavoured coffee drink Best fyrir dagsetning: Allar • dagsetningar Strikamerki: 5060639122332• Lotunúmer: Öll lotunúmer• nettómagn: 250 ml• Geymsluskilyrði: Á ekki við• Framleiðandi: Monster Ltd.• Framleiðsluland: Holland• Dreifing: Aðföng (Hagkaup), • Fjarðarkaup, Iceland, Kjör- búðin, Krambúðin, nettó, Póló, Tíu-ellefu, Vegamót Bíldudal, Video-markaðurinn. Björgvin EA 311 kom til löndunar í Grundarfirði aðfararnótt mánudags. Hafist var handa við löndun um þrjúleytið um nóttina og var búið að ganga frá öllu rétt eftir hádeg- ið daginn eftir. Starfsmenn Djúpa- kletts voru því ansi snöggir við að hífa þessi 127 tonn upp á bryggju og fylla lestina aftur af tómum körum. Landaður afli í Grundarfjarðar- höfn á síðasta ári var um 18.500 tonn en til samanburðar árið 2019 var aflinn 16.200 tonn og árið 2018 13.800 tonn. Því er nú um talsverða aukningu að ræða. Vegna heims- faraldursins kom ekkert skemmti- ferðaskip til Grundarfjarðar síðasta sumar en næsta sumar eru bókað- ar 56 komur skemmtiferðaskipa. Það veltur að sjálfsögðu á veirunni heimsfrægu hvort að af þeim verði. Höfnin heldur því áfram að vera líf- æð bæjarins eins og svo víða. tfk Björgvin EA 311 bakkar frá bryggju eftir tæplega 11 klukkustunda stopp í Grundarfirði. Landað úr Björgvini EA Starfsmenn Djúpakletts voru kátir að löndun lokinni. Kraninn um borð í Björgvini bilaði og því þurfti að kalla til kranabíl til að klára löndunina um nóttina. Atli Freyr Friðriksson og Aðalgeir Vignisson eru hér hangandi í vinnunni. Framkvæmt við höfnina á nýju ári Innkalla vegna aukaefna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.