Skessuhorn - 13.01.2021, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 20212
Heimsmeistaramótið í hand-
bolta hefst í dag, miðvikudag-
inn 13. janúar, og leikur Ísland
sinn fyrsta leik á mótinu á morg-
un þegar strákarnir mæta Portú-
gal. Þá hefst Domino‘s deild
kvenna í körfuknattleik einnig í
dag og bæði Snæfell og Skalla-
grímur leika í kvöld. Eftir heldur
íþróttalaust tímabil má segja að
íþróttaveislan sé að hefjast að
nýju og vonum að hún sé komin
til að vera.
Á morgun, fimmtudag verð-
ur suðlæg átt 8-15 m/s og rign-
ing eða slydda með köflum. Hiti
1-5 stig. En hægari vindur og
bjartviðri og hiti um frostmark á
Norðausturlandi. Á föstudag er
spáð austlægri eða breytilegri
átt 3-10 m/s og rigningu eða
slyddu á stöku stað um land-
ið sunnantil, en annars þurrt að
kalla. Hiti í kringum frostmark. Á
sunnudag og laugardag er út-
lit fyrir breytilega átt, stöku él
og kólnandi veður. Á mánudag
er útlit fyrir ákveðna norðanátt
með éljum, en bjartviðri sunnan
heiða. Frost um mestallt landið.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvað ætti að gera
við áramótaheit. Flestir, eða 72%
svöruðu að það ætti bara að
sleppa þeim, 16% segja að það
eigi að strengja áramótaheit og
11% voru bara alls ekki vissir.
Í næstu viku er spurt:
Hver er þinn uppáhaldsmán-
uður?
Aðstandendur ÍATV hafa í sjálf-
boðavinnu unnið gott starf fyrir
fyrir ÍA og eru þeir því Vestlend-
ingar vikunnar að þessu sinni.
Hægt er að lesa spjall við þá í
blaðinu í dag.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Janúarúthlutun
Mæðrastyrks-
nefndar
AKRANES: janúarúthlut-
un Mæðrastyrksnefndar Akra-
ness fer fram þriðjudaginn 19.
janúar á milli klukkan 12 og
16 í húsi Rauða krossins við
Skólabraut 25a. Umsækjendur
eiga að hringja í síma 859-3000
(María) eða 859-3200 (Svan-
borg) fimmtudaginn 14. janú-
ar og föstudaginn 15. janúar
á milli kl. 11 og 13, en einnig
má sækja um á netfanginu ma-
edrastyrkurakranes@gmail.
com. Einungis nýir umsækjend-
ur þurfa að skila inn búsetuvott-
orði og staðgreiðsluskrá. -mm
Veiran í rénun
LANDIÐ: Tveir voru greind-
ir með Covid-19 innanlands
á mánudag skv. tölum á covid.
is, annar þeirra var í sóttkví við
greiningu en hinn ekki. 149
voru í gær í einangrun hér á
landi vegna Covid-19 og 320
í sóttkví. 19 voru á sjúkrahúsi
vegna veirunnar og enginn á
gjörgæslu. Á Vesturlandi voru í
gær þrír í einangrun vegna kór-
ónuveirunnar, allir á Akranesi.
Einn er í sóttkví í landshlutan-
um, einnig á Akranesi. -arg
Hrauni lokað
ÓLAFSVÍK: Rekstri veitinga-
staðarins Hrauns í Ólafsvík hef-
ur verið hætt. Bæjarblaðið jök-
ull greindi frá. Eigendur hússins
við Grundarbraut 2 ætla því nú
annað hlutverk, samkvæmt frétt
blaðsins. Rekstraraðilinn sagði
í samtali við jökul að hann sæi
fyrir sér að halda áfram fram-
leiðslu á mat en hafi ekki fundið
hentugt húsnæði til þess. Sam-
kvæmt frétt á ruv.is á mánu-
daginn hefur verið farið fram á
gjaldþrotaskipti yfir eigendum
eignarhaldsfélagsins Tarragon,
sem rekið hefur veitingastaðinn
Hraun. Eignarhaldfélag sem
rak þennan sama stað, og var í
eigu sömu eigenda, varð gjald-
þrota sumarið 2019 og fékkst
ekkert frá búinu þá upp í launa-
kröfur. Formaður Verkalýðs-
félags Snæfellinga kvaðst í sam-
tali við RUV líta á starfsemina
sem kennitöluflakk. Það var líf-
eyrissjóður starfsmanna sem fór
fram á gjaldþrotaskiptin. -mm
Kynsegin/annað
LANDIÐ: Búið er að opna fyr-
ir umsóknir á skráningu kyns í
Þjóðskrá sem „Kynsegin/ann-
að“ fyrir þá einstaklinga sem
eftir því óska. „Þjóðskrá Íslands
leitaði til Samtakanna ’78 eftir
samstarfi við að finna heiti fyr-
ir hlutlausa skráningu kyns og
var niðurstaða þeirrar vinnu
Kynsegin/annað. Þetta heiti er
talið ná mestri sátt innan hin-
segin samfélagsins og að flest-
ir einstaklingar geti samsamað
sig því,“ segir í tilkynningu frá
Þjóðskrá Íslands.
-mm
Engar líkur eru á að þorrablótin að
þessu sinni verði með hefðbundnu
sniði sökum samkomutakmarkana
sem í gildi eru. Flestir þurfa því að
njóta fyrir sig og með sínum, utan
fjölmennis. nú er þorramaturinn
kominn í kæliborð verslana og ekk-
ert að vanbúnaði fyrir þá sem lyst-
ir í þennan þjóðlega mat að verða
sér úti um hann. Hins vegar er það
víða svo að sá matur sem flokkaður
er sem þorramatur er víða hluti af
daglegri fæðu fólks, hvort sem hann
er verkaður í súr, soðinn, hertur eða
kæstur.
Bóndadagurinn er 22. janúar
að þessu sinni. jafnan eru fyrstu
þorrablót haldin þessa fyrstu helgi
í Þorra. nú verður allt yfirbragð
breytt á skemmtanahaldi. Vísi að
þorrablótum verður þó að finna, en
rafræn í streymi. Þannig hefur t.d.
verið kynnt að Þorrablót Skaga-
manna verður í streymi laugar-
daginn 23. janúar og hefst klukk-
an 18:30 með upphitun, opnunar-
ræðu og borðhaldi í heimahúsum.
Klukkan átta verður fluttur annáll
Skagamanna , Skagamaður ársins
krýndur og skemmtidagskrá flutt.
„Það er ósk okkar að Skagamenn
geti átt saman gleðistund með sín-
um nánustu og horft fram á bjartari
tíma á komandi ári,“ segir í tilkynn-
ingu forsvarmanna blótsins.
mm
Lögreglan á Vesturlandi hefur vax-
andi áhyggjur af einstaklingum
sem ekki virða skimunarsóttkví eft-
ir komuna til landsins. Síðastliðna
viku hafa sex mál ratað inn á borð
lögreglunnar á Vesturlandi þar sem
grunur lék á að sóttkví hefði ekki
verið virt. Raunar hafa slík mál
komið í auknu mæli upp í fleiri lög-
sagnarumdæmum.
Í einu tilviki mættu erlendir að-
ilar til vinnu daginn eftir að þeir
komu til landsins. Þeim var vísað
frá af verkstjóra en skömmu síðar
barst ábending um að sömu menn
hefðu farið í ónefnda verslun í sama
bæjarfélagi. Að sögn lögreglu er
því yfirleitt haldið fram að um mis-
skilning sé að ræða og að aðilar hafi
hreinlega ekki áttað sig á alvarleika
málsins fyrr en lögreglan hafði af
því afskipti. Lögreglan á Vestur-
landi brýnir fyrir fólki mikilvægi
þess að sóttkví sé virt. jafnframt að
þeir sem gerast brotlegir við sótt-
varnalög verði sóttir til saka, sekt-
aðir eða hljóti jafnvel þyngri refs-
ingar. frg
Á gamlársdag myndaðist óvenjulega
fallega kringlótt röst ofan við hinn
þriggja metra djúpa Beitistaða hyl
í Leirá í Borgarfirði. Ólafur Ósk-
arsson frá Beitistöðum á sumarhús
þar skammt frá og tók meðfylgj-
andi mynd. Hylurinn er þrír metr-
ar á dýpt og einn fengsælasti veiði-
staður árinnar. Eins og oft sjá má af
þjóðveginum ofan við hylinn standa
veiðimenn þar tímunum saman frá
vori og til hausts og renna fyrir sjó-
birting, en þar er einnig laxavon.
mm/ Ljósm. óó.
Á síðasta ári hófst bygging nýs
hótels í innanverðum Lundar-
reykjadal í Borgarfirði. Á jörðinni
Iðunnarstöðum byggja þau Þórar-
inn Svavarsson og Hjördís Geir-
dal, skógarbændur á Tungufelli,
nýtt 13 herbergja heilsárshót-
el með veitingastað. Opnað verð-
ur síðar á þessu ári. Hótelið hef-
ur nú fengið nafnið Hótel Basalt.
Eigendurnir hafa opnað Facebo-
ok síðu þar sem hægt er að fylgj-
ast með framkvæmdum við bygg-
inguna.
Ellefu af þrettán herbergjum á
hótelinu verða tveggja manna en
tvö aðeins stærri, sem gætu hent-
að fjölskyldum á ferð um landið. Í
viðtali í Skessuhorni við þau hjón
síðasta haust kom fram að á teikni-
borðinu er auk þess stækkun hót-
elsins um jafn stóra gistiálmu til
viðbótar þeirri sem nú er risin.
Ákvörðun um stækkun ræðst hins
vegar af viðtökum og fjölda ferða-
manna til landsins. mm
Ítrekuð brot á sóttkví tilkynnt til lögreglu
Náttúran að
leika sér
Nýtt hótel á Iðunnarstöðum
hefur fengið nafnið Basalt
Ár án hefðbundinna þorrablóta