Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Síða 4

Skessuhorn - 13.01.2021, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 20214 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Kemur alltaf að skuldadögum Sagan hefur kennt okkur að þegar halla fer að lokum kjörtímabila ríkisstjórna fer að bera á fögrum fyrirheitum; óháð því hvort innistæða er fyrir efndum þeirra eða ekki. Kosningaár er nú gengið í garð og það er jafn öruggt og ég sit hér, að slík- um loforðum mun fara fjölgandi. Þá má ekki gleyma því að það er nú eða aldrei fyrir stjórnarflokkana að efna þau loforð sem þeir gáfu kjósendum fyrir kosning- arnar haustið 2017, en kannski ekki síður að efna það sem samið var um og kemur fram í stjórnarsáttmálanum. Þau voru mörg loforðin þar, en misjafnt hefur verið með efndir, enda samstarf þriggja ólíkra flokka flókið þar sem þeir eru afar ólík- ir að grunngerð rétt eins og bakland þeirra. nokkur mál hafa því ekki enn náð í gegn, þótt að þeim hafi verið stefnt. En tíminn er nú orðinn naumur. Af þessum málum nefni ég af handahófi auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem ákaft hefur verið kallað eftir, sölu ríkisbankanna, lög um einkarekna fjölmiðla og miðhálendisþjóð- garð. Þessi mál og miklu fleiri hafa verið á málaskrá einstakra flokka og jafnvel get- ið í stjórnarsáttmálanum, en mæta einarðri andstöðu og komast því ekki á dagskrá, sitja föst í einhvers konar tómi. En þrátt fyrir óleystu málin er margt gott sem núverandi ríkisstjórn hefur áork- að. Ánægðastur hef ég verið með þá ákvörðun stjórnarliða að fela fagfólki ráðgjöf og stefnumótun vegna viðbragða við kórónaveirunni. Það hefur reynst farsælt eins og sjá má á árangri Íslands nú á síðustu vikum í samanburði við ástandið í lönd- unum í kringum okkur. Smitstuðullinn hér er nú innan við 20 af hundrað þúsund íbúum, sem er ótrúlega góð staða í ljósi þess að sáralítið er byrjað að bólusetja. Þá vil ég einnig nefna að ráðning nýs Seðlabankastjóra, sem er pólitísk ráðning, hefur reynst farsæl. Sá hafði kjark til að stíga fast til jarðar og koma stýrivöxtum hratt niður. Sú vegferð reyndist þjóðinni farsæl í allri viðspyrnu við ástandinu á liðnu ári og gerði það meðal annars að verkum að fasteignasala hefur verið venju fremur lífleg. Aftur á móti hafa viðskiptabankarnir sýnt ótrúlegt máttleysi í að lækka útlánavexti sína í samræmi við þau kjör sem þeim bjóðast. Innlánsvextir fólks eru engir sem þýðir að vaxtamunur hefur líklega aldrei í sögunni verið meiri. Þannig fæ ég nú 0,15% innlánsvexti af bankareikningi mínum, en borga 8% vexti ef ég er á yfirdrætti. Þetta hefur leitt af sér að tvöföldun var á síðasta ári í þeim hópi almennings sem freistar gæfunnar á hlutabréfamörkuðum, með tilheyrandi áhættu. nú um áramótin tóku gildi ýmis lög frá Alþingi sem snerta hag og kjör margra. nefna má að tekjuskattar lækkuðu lítillega og á sú lækkun meðal annars að skila sér til þeirra sem minnst hafa. Hins vegar hefur mjög lítið verið gert til að bæta kjör eldri borgara. Hafa þeir til dæmis ekki fengið þá krónutöluhækkun sem sam- ið hefur verið um á almennum markaði. Stærsta kjaraskerðing eldra fólks felst þó í þeirri refsingu sem ríkisstjórn jóhönnu Sigurðardóttur kom á skömmu eftir bankahrunið 2008, þegar lífeyrir frá hinu opinbera var skertur vegna tekna þeirra úr lífeyrissjóðum. Líklega hefur þarna átt sér stað eitt mesta arðrán Íslanssögunn- ar, og hafa þau þó verið mörg og óforskömmuð í gegnum tíðina. nú, tólf árum síðar, er staðan ennþá sú að njóti lífeyrisþegi tekna úr lífeyrissjóði sínum, fær hann skerðingu sem því nemur af greiðslum úr ríkissjóði. Þeir sem byrjuðu að greiða hluta af launum sínum í lífeyrissjóði fyrir um fimmtíu árum síðan fara þannig verst út úr þessu. Fólkið sem unnið hefur hörðum höndum á vinnumarkaði allan þann tíma sem lífeyrissjóðir hafa verið til, er refsað grimmilega. Ég vænti þess að ein- hver flokkur setji þetta þjóðþrifamál á sína stefnuskrá. Á þessu ári ætla ég því að fylgjast grannt með því hvaða áherslur stjórnmála- flokkarnir velja að setja í stefnuskrár sínar í aðdraganda kosninga. jafnvel þótt dæmin hafi sýnt að lítið hafi stundum verið að marka gefin loforð, verður maður að binda traust sitt við einhverja. Atkvæði í kosningum er nefnilega okkar beittasta vopn og atkvæðum ber að verja til þeirra sem best er treystandi til að vinna að al- mannaheill. Til að allir geti lifað sáttir í okkar auðuga landi þarf nefnilega að jafna kjörin. Við höfum á liðnum árum horft upp á aukna misskiptingu þar sem ákveðnir þjóðfélagshópar hafa verið látnir sitja eftir á kostnað þeirra sem haft hafa sterkari málsvara á þingi. Tíundi hluti þjóðarinnar á nú á að giska þrjá fjórðu allra eigna. Er það eðlilegt? Svari hver fyrir sig. Magnús Magnússon Ríkiskaup fyrir hönd Hafrann- sóknastofnunar óska eftir tilboð- um í leigu á netabátum til verk- efnisins „Stofnmæling hrygning- arþorsks með þorskanetum – net- arall 2021.“ Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leið- angrar yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1. apríl. Markmið rannsóknanna er að safna upplýsingum um kynþroska, aldur, lengd og þyngd þorsks á helstu hrygningarsvæðum. Einn- ig að meta árlega magn kynþroska þorsks er fæst í þorskanet á hrygn- ingarstöðvum og breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum. Skilfrestur tilboð er til há- degis 29. janúar næstkomandi, en útboðsgögn má sækja á vef Ríkis- kaupa. mm/ Ljósm. Valur Bogason. Ísfisktogarinn Akurey AK, sem Brim gerir út, er nú á Vestfjarða- miðum eftir að hafa fengið 140-145 tonna afla í fyrstu veiðiferð ársins. Aflanum var landað í Reykjavík á fimmtudaginn. Eiríkur jónsson skipstjóri segir að nýtt ár hafi byrj- að vel og aldrei þessu vant hafi ver- ið ágætt veður allan túrinn. ,,Við vorum mest að veiðum í kantinum vestur af Vestfjörðum. Fórum einnig á Halann og í Djúp- álinn og enduðum svo í Víkuráln- un. Uppistaða aflans var mjög góð- ur þorskur og ég gæti skotið á að hann hafi verið fjögur kíló að jafn- aði,” sagði Eiríkur í samtali við vef- ritara Brims, en hann upplýsir að auk þorsksins hafi ýsa og ufsi verið hluti aflans. ,,Hafís var að gera okkur lífið leitt og þá sérstaklega síðustu tvo sólar- hringana. Það var kominn hafís inn fyrir kantinn og ég gæti skotið á að hann hafi verið um 30 mílur frá landi. Meira að segja var hafís kom- inn í Víkurálinn þar sem við enduð- um,“ sagði Eiríkur en að hans sögn urðu skipverjar víða varir við loðnu. ,,Það var nokkuð um að við fengjun loðnu ánetjaða í trollinu. Þetta var mest smáloðna sem við urðum varir við,“ sagði Eiríkur. mm Í vikubyrjun lauk leiðangri fimm skipa með það að markmiði að mæla stærð hrygningarstofns loðnu. Loðna fannst með landgrunnskant- inum norðan Íslands allt austur að Langanesdýpi. Ekkert var að sjá á grunnum né með kantinum austan lands. Að megninu til fékkst hrygn- ingarloðna í togsýnum. niðurstöð- ur mælinganna munu liggja fyrir síðar í vikunni. Hafís vestan við land hafði ver- uleg áhrif á mælinguna eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Rannsók- naskipið Árni Friðriksson var vestast og kom ísinn alveg í veg fyrir mælingar við og utan við landg- runnsbrúnina á Vestfjarðamiðum. Þar varð vart við loðnu í desem- ber. Eins lenti Bjarni Sæmunds- son í ís norður af Vestfjörðum. Að öðru leyti voru aðstæður til mælin- ga með ágætum, segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun. Fyrirhugað er að endurtaka mælingar og þá helst þegar hag- stæðar aðstæður verða m.t.t. hafíss og veðurs. Rannsóknaskipin verða tilbúin í verkefnið en ekki hefur ver- ið ákveðið hvernig þátttöku annar- ra skipa verður háttað. Miðað við veðurspár og núverandi útbreiðs- lu hafíss verða góðar aðstæður til mælinga í fyrsta lagi seinni part vi- kunnar. mm Akraneskaupstaður mun nú í árs- byrjun efna til hugmyndasam- keppni um skipulag og hönn- un Langasandssvæðis á Akranesi í samstarfi við FÍLA, Félag íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni er að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbygging- arreit og hafnarsvæðið. Þetta er stórt verkefni um dýrmætt svæði og því mikilvægt að kalla eftir skoðun- um flestra. Við viljum hefja þessa vegferð og skapa svæði sem mót- ast af vellíðan og heilsu fyrir alla notendur og skiptir okkur máli að fá íbúana með í lið en þetta svæði er okkar svæði,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. Í ljósi heimsfaraldurs er ekki hægt að verða með hefðbundna íbúa- fundi til að kynna málið og hefur þess í stað verið útbúin rafræn við- horfskönnun um þarfir, upplifun og framtíðarsýn íbúa um svæðið. Þar fá íbúar tækifæri til að láta sínar skoð- anir í ljósi, þarfir og áherslur um svæðið. Munu niðurstöður könn- unarinnar verða fylgigagn við aug- lýsingu um samkeppnina. Könn- unin samanstendur af sextíu spurn- ingum sem flestar eru krossaspurn- ingar og tekur um 15-30 mínútur að svara. Þátttakendur hafa kost á að komast í pott sem dregið verður úr og fá einhverjir heppnir gjöf að launum. Allir ungir sem aldnir eru hvattir til að taka þátt í könnuninni sem verður opin út janúarmánuð. mm Auglýst eftir bátum í netarall Góður afli á Vestfjarðamiðum í upphafi árs Íbúar hvattir til þátttöku í könnun um Langasandssvæði Loðnumælingum lokið í bili Leiðarlínur skipanna fimm sem tóku þátt í loðnumælingum í vikunni ásamt legu hafíss.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.