Skessuhorn


Skessuhorn - 13.01.2021, Side 26

Skessuhorn - 13.01.2021, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 202126 Barnahælið Einu sinni fyrir langa langa löngu var lítil stelpa sem hét Lísa sem átti heima á sveitabæ sem var við hliðina á barnahæli. Á þessu barnahæli fóru börn inn en komu aldrei út aftur. Barnahælið var umkringt stórum trjám og fyrir aftan barna- hælið var stórt fjall sem skyggði á það. Fyrir framan barna- hælið var stór og djúp á og það var ótraust brú yfir ánna. Á sveitabænum sem Lísa átti heima á ásamt foreldrum sínum og dýrum var kirkja og kirkjugarður sem enginn þorði að fara inn í. Það var alltaf sagt að ef maður labbaði inn í kirkju- garðinn þá gripu hendur í fæturna á manni og þær myndu draga mann ofan í gröf. Lísa fer í kirkjugarðinn Dag einn vaknar Lísa og ákveður að fara út að leika sér með bolta. Hún æfir sig á hægri fætinum og það gengur mjög vel og svo ákveður hún að æfa sig með vinstri og það gengur mjög vel þangað til að boltinn skoppast yfir í kirkjugarðinn. Hún hefur heyrt margar hræðilegar sögur um kirkjugarð- inn en ákveður að labba inn í hann. Hún gengur inn í kirkju- garðinn og sækir boltann sinn og það gerist ekkert. Hún hugsar með sér að allar þessar sögur væru bara lygi þannig að hún labbar stolt af stað til baka og þá byrjaði hana að kitla í fæturna þannig að hún klóraði sér og þá sér hún hendi sem er að fara að grípa utan um ökklann á henni og hún öskr- ar og hleypur af stað en þá er höndin búin að grípa utan um ökklann á henni. Hún öskrar á hjálp en enginn kemur þann- ig að hún öskrar enn hærra en ekkert gerist nema að hönd- in er að grípa utan um ökklann á henni. Hún byrjar á því að sparka í höndina en það er eins og höndin finni ekki fyrir sparkinu þannig að Lísa sparkar ennþá fastar og það fast að hún var alveg að verða kraftlaus og höndin losar ökklann á Lísu þannig að hún stekkur upp, grípur boltann með sér og hleypur heim til sín og ætlar að segja mömmu sinni og pabba frá því sem hefði gerst en þau eru ekki inni í íbúðarhúsi þannig að hún gáir út í fjós og fjárhús en enginn er þar þann- ig að hún fer inn í íbúðarhús og heldur áfram að leita. Mamma og Pabbi eru týnd Lísa leitar og leitar en hún finnur hvergi foreldra sína þann- ig að hún ákveður að fá sér að borða og þá sér hún allt í einu eitthvað rautt á gólfinu og sér beittasta hnífinn í húsinu og það er blóð á honum og það eru fullt af litlum blóðpollum sem liggja í áttina að útidyrunum. Hún eltir blóðpollana út um útidyrnar og þá sér hún blóðpollana liggja í átt að barna- hælinu og þá var komið að því. Hún elti blóðpollaslóðina en hún þorði ekki að fara þangað þannig að hún fór aftur heim og hugsaði vel hvað hún gæti gert. Það voru bara tveir val- möguleikar sem henni datt í hug. Annað hvort að fara inn á barnahælið sem myndi enda með skelfilegum dauðdaga, eða skrifa bréf til lögreglunnar en það var tvær vikur á leiðinni þangað. Henni fannst skárri valmöguleiki að skrifa lögregl- unni bréf frekar en að deyja. Hún skrifaði bréf: „Kæri lögregluþjónn! Ég á heima á sveitabæ í Hvalfirði. Það er kirkjugarður á sveitabænum og þá hlýtur þú að rata. Mamma mín og pabbi hurfu í morgun þegar ég var í kirkjugarðinum. Svo þegar ég kom heim þá voru mamma og pabbi horfin og beittasti hnífurinn í eldhúsinu var með blóði og lá á eldhúsborðinu. Það voru blóðdropar út um útidyrn- ar og að barnahælinu sem er rétt við hliðina á þar sem ég á heima. Ég þorði ekki að fara ein þangað svo þess vegna skrifaði ég þér bréf. Ef ég verð ekki í húsinu mínu þegar þú kemur, þá hef ég gefist upp á biðinni og farið þangað ein. Kær kveðja, Lísa, 10 ára.“ Biðin langa Lísa beið og beið eftir póstberanum sem kom einu sinni í viku. Eftir tveggja daga bið kom póstberinn loksins með eitt bréf sem var handa Lísu. Lísa gaf póstberanum bréfið til lög- reglunnar og tók bréfið sitt og fór inn í herbergið sitt að lesa bréfið sitt. Þegar hún settist á rúmið sitt og opnaði bréfið sá hún rauða stafi: „Hæ Lísa ég er að fylgjast með þér , komdu í barnahælið í kvöld og þá færð þú foreldra þína aftur en ef þú kemur ekki þá sérðu þá aldrei aftur.“ Lísa vissi ekkert hver var að skrifa henni þetta bréf en hún vissi samt að hún þyrfti að fara í barnahælið í kvöld. Hún vonaði að það væri allt í lagi með foreldra hennar. Hún varð að gera plan. Planið Læðast inn á barnahælið, hlusta eftir hljóðum, fylgja hljóð- unum, ef ekki fela sig á góðum felustað, bjarga foreldrum, flýja heim með foreldrum. Barnahælið Klukkan er hálf sjö og sólin var að setjast. Hún var kom- in hálfa leiðina að barnahælinu og var strax orðin hrædd en hún hélt áfram dauðhrædd og fimm mínútum seinna var hún komin. Hún kíkti á listann og uppgötvaði að planið var öm- urlegt en það var of seint að hætta við núna þannig hún hélt áfram að hurðinni. Hún opnaði hana og gekk inn. Það var dimmt inni þannig að hún sá varla neitt og leit á listann sinn og sá að hún var búin með skref eitt þá þurfti hún að gera skref númer tvö og það var að hlusta eftir hljóðum. Hún heyrði ekki neitt þannig hún faldi sig og þá heyrði hún eitt- hvað. Það var einhver að koma og þá sá hún það. Börnin Það sem Lísa sá var kona í hvítum kjól með blóði á. Lísa varð svo hrædd að hún öskraði næstum því en þá mundi hún eftir planinu og dró andann djúpt til að jafna sig. Konan var farin svo að Lísa fór úr felustaðnum sínum. Lísa var búin að venj- ast myrkrinu og sá að það var blóð út um allt. Þá varð Lísa smeyk en hún sá stiga og fór upp hann og sá langan gang með fullt af dyrum hún opnaði fyrstu dyrina og það kom ógeðsleg lykt. Framhald síðar. Höfundar: Adda Karen, Kristín Eir, Sesselja og Sigvaldi Þór. Draugarnir í Hvítá Einu sinni voru stelpa og strákur kölluð Mía og Aron. Þau eru systkini. Mía er 12 ára og Aron er 13. Þau búa á sveitabæ nálægt Hvítá. Á sumrin finnst þeim oft skemmtilegt að koma og hafa litla lautarferð hjá Hvítá. En á veturna er oft rosalega dimmt og hræðilegt. Trúðu mér. Einu sinni á Þorláksmessu fóru Mía og Aron þangað sem þau fara alltaf í lautarferð á sumrin. En það var svo dimmt að þau ætluðu að snúa við, en þau fundu ekki leiðina heim í myrkrinu. Mía var svo hrædd, en hún vissi að þau myndu komast heim. Eða hún hélt það. Aron var ekkert hræddur. Hann vildi bara komast heim fyr- ir jólin. Þau héldu bara áfram þangað til Mía datt um eitthvað, hún vissi ekkert hvað það var. Hún tók utan um það og það var mjög hrufótt. Hún leyfði Aroni að finna og hann vissi strax hvað það var. Aron sagði: „Þetta eru gamlar rústir af gamla húsinu sem brann fyrir 15 árum. Manstu ekki það sem pabbi sagði okkur frá?“ „Ó, já nú man ég.“ Allt í einu straukst eitt- hvað utan í Aron, hann sagði: „Æi Mía láttu mig vera.“ Þá Sagnasamkeppni Föstudagsins DIMMA Föstudagurinn DIMMI verður nú haldinn í fimmta sinn í Borgarbyggð næsta föstudag. Viðburðurinn verð- ur með nokkuð breyttu sniði í ár í ljósi aðstæðna en alla jafnan eru íbúar hvattir til að taka hvíld frá raftækjum og njóta samverunnar þennan dag. Í ár er Föstudag- urinn DIMMI hins vegar að mestu rafrænn en foreldr- ar eru samt hvattir til að halda upp á daginn með óhefð- bundinni samveru, fari út í kuldagalla, spili, segi sög- ur og njóti þess að vera með sínum nánustu, í hæfilega stórum hópum. Þema viðburðarins í ár er sagnaarfurinn og var óskað eftir frumsömdum og/eða áður óbirtum sög- um í samkeppni; flökkusögum, lygasögum, þjóðsög- um, hamfarasögum, hetjusögum, hræðilegum sög- um eða sönnum sögum. Alls bárust 39 sögur og sá dómnefnd um að velja úr frambærilegustu sögurnar sem tengdust Vesturlandi. Sögurnar máttu vera á hvaða formi sem var, skrifaðar, lesnar eða leiknar. Fimm af þeim sögum sem sendar voru inn eru birt- ar hér í Skessuhorni. Þá verða 24 sögur lesnar í út- varpi á FM Óðal 101,3 á föstudaginn. Ein saga og eitt útvarpsleikrit verður hægt að hlusta á í hlað- varpsþættinum Myrka Íslandi sem kemur út á föstu- daginn og verður í kjölfarið aðgengilegt á Spotify. Fjórar sögur verða birtar í Borgfirðingabók. Aðrar sögur þóttu of hræðilegar fyrir almenna birtingu. Nokkrar af sögunum verða svo birtar á Facebook og Instagram síðum Föstudagsins DIMMA næsta föstudag. F.v.: Sesselja Narfadóttir,10 ára, Kristín Eir Hauksdóttir Holaker,11 ára, Sigvaldi Þór Bjarnason,10 ára og Adda Karen Harðardóttir, 11 ára. Þóra Kolbrún Ólafsdóttir.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.