Skessuhorn - 13.01.2021, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 2021 29
LEIGUMARKAÐUR
Nýfæddir Vestlendingar
Borgarbyggð –
föstudagur 15. janúar
Föstudagurinn DIMMi verður hald-
inn í fimmta sinn í Borgarbyggð.
Viðburðurinn verður rafrænn í ár
sem er heldur óhefðbundið því alla
jafnan eru íbúar hvattir til að hvíla
sig á raftækjunum þennan dag.
Foreldrar eru þó hvattir til halda
upp á daginn með óhefðbundinni
samveru í hæfilegum hópum. Í ár
voru allir hvattir til að senda inn
sögu í samkeppni og verða sögurn-
ar birtar á nokkrum miðlum, þar af
eru fimm sögur birtar hér í Skessu-
horni í dag.
Stykkishólmur –
miðvikudagur 13. janúar
Snæfell tekur á móti KR í körfu-
knattleik kvenna kl 19:15.
Á döfinni
30. september Stúlka. Þyngd: 4.044 gr. Lengd: 50 cm.
Foreldrar: Sonja Maggý Magnúsdóttir og Baldvin Örn
Ólafsson, Hafnarfirði. Ljósmóðir: Elísabet Harles.
2. janúar. Drengur. Þyngd: 3.064 gr. Lengd: 48 cm. For-
eldrar: Sædís Ösp Valdemarsdóttir og Jakob Örn Guð-
laugsson, Höfn í Hornafirði. Ljósmóðir: Unnur Berglind
Friðriksdóttir.
6. janúar. Stúlka. Þyngd: 3.764 gr. Lengd: 52 cm. For-
eldrar: Una Rakel Hafliðadóttir og Aron Daníelsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir.
10. janúar. Drengur. Þyngd: 3.778. Lengd: 49 cm. For-
eldrar: Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir og Frans Jós-
ef Ingólfsson, Reykjavík. Ljósmóðir: Inga María Hlíðar
Thorsteinson.
Smáauglýsingar
Hús til leigu
Nýlegt 95 fm hús í uppsveitum
Borgarfjarðar til leigu. Nánari upp-
lýsingar í tölvupósti, agust.jons-
son@centrum.is.
Um áramótin tóku þær reglur gildi
sem banna afhendingu plastburð-
arpoka í verslunum. Bannið tek-
ur jafnt til þunnu, glæru græn-
metispokanna og innkaupaburð-
arpokanna, en nær ekki yfir plast-
poka sem eru seldir í rúllum í hill-
um verslana. „Til þess að koma í
veg fyrir að einnota neysla færist
yfir á aðra eru einnota burðarpok-
ar úr öðrum efniviði en plasti gjald-
skyldir,“ segir í tilkynningu frá um-
hverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Samkvæmt því er verslun óheimilt
að gefa viðskiptavinum sínum inn-
kaupapoka t.d. úr pappír, maíspoka
eða öðrum lífrænum afurðum.
Plastpokabannið hér á landi er í
samræmi við Evróputilskipun sem
lýtur að því að draga úr notkun á
plastpokum. Bannið var einnig
meðal þeirra tillagna sem samráðs-
vettvangur um aðgerðir í plast-
málefnum afhenti Guðmundi Inga
Guðbrandssyni, umhverfis- og
auðlindaráðherra, í loks árs 2018. Í
samráðsvettvangnum áttu sæti m.a.
fulltrúar atvinnulífsins, sveitar-
félaga, umhverfisverndarsamtaka,
félagasamtaka, opinberra stofn-
ana, Alþingis og ráðuneyta. „Plast-
pokabannið er ein af fjölmörgum
aðgerðum sem stjórnvöld ráðast í
til þess að draga úr notkun á plasti,
auka endurvinnslu á því og koma í
veg fyrir plastmengun sjávar. nánar
má lesa um aðgerðirnar í aðgerða-
áætlun í plastmálefnum; úr viðjum
plastsins, sem kom út síðastliðið
haust,“ segir í tilkynningu. mm
Innkaupapokar úr plasti nú bannaðir með lögum
nú þegar fólk er að koma fyrrum
jólatrjám úr húsum sínum er vert
að minna á að barrtré má nýta þrátt
fyrir að hlutverki þeirra sé lokið
innandyra. jóhanna Þorvaldsdóttir
geitabóndi á Háafelli í Hvítársíðu
biðlar til nágranna sinna um að fá
trén fyrir geitur sínar, sem njóta
þess mjög að éta nálarnar, eins og
sjá má á þessari mynd frá henni.
mm
Geiturnar þiggja barrtrén
með þökkum
Ágætu lesendur!
Hún var ömurleg jólagjöf Haf-
rannsóknastofnunar. Eftir 6% nið-
urskurð í sumar, er niðurstaðan úr
haustralli sú að sýna þorskstofn-
inn mælast minni þriðja árið í röð.
Þetta er mikill áfellisdómur yfir nú-
verandi kvótakerfi. Veiðistjórnunin
er ekki að ganga upp. Þorskaflinn er
um helmingur af því sem hann var
fyrir daga kvótakerfisins. Það versta
er að meðvirkni stjórnmálamanna,
bæjarfulltrúa og annarra kjörinna
fulltrúa kemur í veg fyrir málefna-
lega líffræðilega gagnrýni á kerfið.
Þingmenn, ráðherrar og Samtök
sveitarfélaga vaknið til lífsins!
Á meðan fiskveiðiheimildir sog-
ast úr fjórðungnum sitja kjörnir
fulltrúar með hendur í skauti. nú
er mál að linni. Ekki veitir af störf-
um og fjárhagslegri innspýtingu á
fordæmalausum tímum.
Baráttukveðjur,
Stefán Skafti Steinólfsson.
Ömurleg jólagjöf
Hafró og með-
virkni stjórnvalda
Pennagrein