Skessuhorn - 24.03.2021, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 24. MARs 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Pennagrein
Ég heiti Björn Guðmundsson og er
64 ára gamall húsasmiður, búsettur
á Akranesi en fæddur í Miðfirði við
Húnaflóa. Ég gef kost á mér í 1.-4.
sæti á framboðslista samfylkingar-
innar í Norðvesturkjördæmi.
Ég ólst upp við hefðbundin
sveitastörf en öfugt við það sem
mætti halda hef ég aldrei aðhyllst
Framsókn eða sjálfstæðisflokk-
inn heldur hneigðist ég snemma til
jafnaðarstefnu. Jafnaðarmennskan
hefur verið mitt leiðarljós en hún
fellur best að mínum hugsjónum.
Af þeim sökum hef ég verið virkur
í sveitarstjórnarmálum um allnokk-
urt skeið.
Nú kunna einhverjir að hugsa
með sér hvað vill hann upp á dekk á
sjötugsaldri. Við því er einfalt svar:
Mér blöskrar einfaldlega hvernig
staðan í þjóðfélaginu er í dag. Virð-
ingarleysi virðist vera viðloðandi
gagnvart öllu, ekki eingöngu gegn
hlutum og eignum heldur einnig
gegn fólki og þörfum þess.
Ég get ekki lengur setið aðgerða-
laus hjá og horft upp á meðan komið
er fram við aldraða og öryrkja eins
og annars flokks þegna. Það verður
að bæta úr þessu strax því meðferð
stjórnvalda á fólki er óviðunandi.
Komist ég í þá stöðu að geta haft
áhrif verður það mitt forgangsmál
að leiðrétta kjör aldraðra og ör-
yrkja og afnema þá smán sem þar
viðgengst. sama gildir um fátækt í
landinu enda á enginn að líða skort
í þessu gjöfula landi. slíkt er þjóð-
arskömm sem úr þarf að vinna.
Ég vil að staðið verði við þau lof-
orð sem gerð voru við stofnun líf-
eyrissjóða um að þeir eigi að bæta
kjör fólks til viðbótar við almanna-
tryggingakerfið og þannig eigi að
afnema tafarlaust krónu á móti
krónu skerðingu sem fengið hefur
að viðgangast of lengi. Öllu fólki á
að tryggja laun sem hægt er að lifa
á. Við eigum að hjálpa fólki til að
hjálpa sér sjálft, ég hef þá trú að all-
ir vilji getað lifað með reisn.
Heilbrigðismálin eru mér líka
ofarlega í huga, á tyllidögum stát-
um við okkur af því hvað við eig-
um gott kerfi. En er það svo um
allt land í raun og veru? Nei, því
miður skortir þar verulega mikið á.
Við þurfum að stokka upp kerfið og
endurskipuleggja það. En við eig-
um frábært starfsfólk í heilbrigð-
isgeiranum sem er okkur afar dýr-
mætt og vinnur þrekvirki á hverjum
degi. Að þessu fólki þurfum við að
hlúa, sérstaklega við þær aðstæður
sem eru í samfélaginu í dag. Það
virðist vera lenska þegar vel geng-
ur þá er klappað á bakið á fólki, en
þegar kemur að kjörum og pening-
um er komið annað hljóð í strokk-
inn og ekkert fjármagn sé til staðar.
Þetta viðhorf getum við lagað ef við
viljum.
Í þessu sambandi verð ég að
minnast á eina gullsetningu sem er
í okkar ylhýra máli og kemur venju-
lega upp í aðdraganda kosninga en
það er setningin (tryggjum öldr-
uðum áhyggjulaust ævikvöld). En
er það framkvæmdin? Því er fljót
svarað að svo er ekki. Ekki þarf að
horfa lengra en til reksturs hjúkr-
unarheimila sem hefur verið í fjöl-
miðlum síðustu misseri þar sem
sveitarfélög eru að gefast upp á
rekstrinum og vísa því til ríkis-
ins. Þessari eilífu baráttu við ríkis-
valdið um fjármagn til rekstrar og
viðhalds hjúkrunarheimila verð-
ur að linna. Komum þessu í lag og
tryggjum öldruðum raunverulegt
áhyggjulaust ævikvöld.
Atvinna er svo ein af undirstöð-
um velferðar sérhvers manns. Því
er nauðsynlegt að hlúa að aukinni
atvinnustarfsemi og dreifa henni
um land allt. Fara þarf í gegnum
allt regluverkið og sjá hvar skór-
inn kreppir að í stofnun og rekstri
fyrirtækja. Regluverkið þarf að vera
gert einfalt og skýrt.
Fiskveiðistjórnunarkerfinu þarf
að breyta strax þar sem markaðs-
leiðin á að vera notuð til grund-
vallar. Þannig fæst sanngjarnt verð
fyrir aflaheimildirnar og útgerðirn-
ar borga eðlilegt gjald fyrir afnot
sinni af auðlindinni. Á sama tíma
eigum við að halda áfram að berjast
fyrir breytingum á stjórnarskránni
í anda niðurstöðu stjórnlagaráðs.
Þannig náum við fram grundvall-
arbreytingum á auðlindaákvæðinu
svo tryggt verði að allar auðlindir
séu í eigu þjóðarinnar.
Landbúnaður er mikilvægur bæði
vegna matvælaöryggis og vernd-
unar lands. Ég treysti íslenskum
bændum til að varðveita landsins
gæði og skila landinu betra en þeir
tóku við því. Auka þarf frjálsræði í
framleiðslu landbúnaðarafurða, svo
sem með heimaslátrun og vinnslu
afurða heim á búunum. Treystum
bændum til að skila okkur fullkom-
inni vöru.
skólakerfið er svo ekki eins gott
og við viljum hafa það, taka þarf af
festu á þeim vanda
sem þar er við að
eiga og laga það
sem úrskeiðis hef-
ur farið. Það kost-
ar tíma og peninga en kemur til
með að skila sér margfalt til baka á
komandi árum.
Það kunna að vakna spurningar hjá
þér, kjósandi góður, en hvernig á að
fjármagna allar þessar aðgerðir? Því
er til að svara að hægt að fjármagna
og vinna að þessum aðgerðum á
ýmsa vegu, t.d. með eðlilegri dreif-
ingu á fjármagni og sanngjarnara
skattkerfi. Einnig er hægt að líta til
aukinnar og fjölbreyttrar atvinnu og
framkvæmda um land allt af hálfu
ríkisvaldsins og sveitarfélaga. svo
er hægt að minnka báknið og reglu-
verkið vegna atvinnustarfsemi.
Það er hægt að grípa til fjölmargra
aðgerða til að fjármagna þær aðgerð-
ir sem nauðsynlegar eru fyrir fólkið
í landinu ef vilji er fyrir hendi að
vinna að því. Allavega mun ég ekki
una mér hvíldar fyrr en það tekst.
Björn Guðmundsson.
Höf. er frambjóðandi í 1.-4. sæti
fyrir Samfylkinguna í Norðvestur-
kjördæmi.
Í Fréttablaðinu 19. mars var greint
frá að sveitarstjórnarráðuneyt-
ið hefði ákveðið að skoða stjórn-
sýslu Borgarbyggðar nánar m.a.
vegna hönnunarvinnu við skólalóð-
ina í Borgarnesi og leikskólalóð-
ina á Kleppjárnsreykjum. Oddviti
framsóknarmanna í Borgarbyggð
leikur þar lykilhlutverk að gagn-
rýna meirihluta sveitarstjórnar og
fyrrverandi sviðsstjóra umhverfis-
og skipulagssviðs Borgarbyggðar.
Þann 18. mars fól byggðaráð sveit-
arstjóra að greina ráðuneytinu frá
hvernig stjórnsýslan vann að mál-
um.
Guðveig Eyglóardóttir oddviti
framsóknarmanna heldur því fram
að sviðsstjóri hafi falið stóru ráð-
gjafafyrirtæki, sem maki hans vinn-
ur hjá, að hanna skólalóðina í Borg-
arnesi. Eins og oddvita er kunnugt
um þá ákvað byggðarráð árið 2017
og 2018 að skipa byggingarnefnd-
ir fyrir GB og Kleppjárnsreyki.
Byggingarnefndirnar eru skipaðar
fulltrúum stjórnamálaflokkanna í
Borgarbyggð. Framsóknarflokkur-
inn á tvo af fimm fulltrúum í hvorri
nefnd. Það eru byggingarnefndir
sem samþykkja öll verkkaup, hönn-
uði og verktaka. Það ætti því öllum
að vera ljóst að sviðsstjóri kemur
ekki að ákvörðunartöku um hver
hannar eða framkvæmir verkin.
Fundargerðir byggingarnefnda eru
lagðar fyrir byggðarráð. sviðsstjóri
fól umsjónarmanni eignasjóðs
Borgarbyggðar að sitja fundi bygg-
ingarnefndar Grunnskóla Borgar-
ness, þar hafði viðkomandi mál-
frelsi, auk þess sat viðkomandi alla
verkfundi með verktaka og eftirlits-
manni Borgarbyggðar. sviðsstjóri
sat fundi byggingarnefndar Klepp-
járnsreykja og ritaði fundargerðir.
Útboð á hönnunarverk-
efnum
Að jafnaði þá eru minniháttar
verkefni hjá sveitarfélögum ekki
boðin út, hvorki hönnun, eftir-
lit eða framkvæmdir. Það er sjald-
gæft að ráðgjafafyrirtæki bjóði í
lítil hönnunarverkefni. Leitað er
til ráðgjafa sem hafa þekkingu og
getu til að leysa verkefnin. Á mín-
um tíma sem sviðsstjóri hjá Borg-
arbyggð þá unnu um tíu ráðgjafa-
stofur fyrir sveitarfélagið m.a.
stofur sem hafa starfsemi í sveitar-
félaginu svo sem Landlínur, Verk-
ís og Efla. Hagur þess að leita til
margra ráðgjafafyrirtækja, er sá að
þá er hægt að bera saman gæði,
verð og tímaskil. Fyrir sveitarfélög
á landsbyggðinni þá er það mikill
fengur að ráðgjafafyrirtæki starfi
á svæðinu og er Borgarbyggð vel
sett í þeim efnum.
starfsheiður er öllum mikilvæg-
ur. Það ætti ekki
að vera neinum
til framdráttar að
greina ranglega
frá. Mér finnst
það miður að odd-
viti framsóknarmanna leyfi sér að
blanda fyrrverandi sviðsstjóra hjá
Borgarbyggð og maka hans inn í
stjórnmálaátök.
Ég vænti þess að sveitarstjóri
Borgarbyggðar greini sveitar-
stjórnarráðneytinu rétt og skil-
merkilega frá málavöxtum.
Virðingarfyllst,
Ragnar Frank Kristjánsson.
Höf. er fyrrverandi sviðsstjóri hjá
Borgarbyggð.
Starfsheiður og að greina rétt frá
Kæri kjósandi í Norðvesturkjördæmi!
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is