Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 25
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 2021 25 Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fagna því að hafa hlotið umhverfisvott- un EarthCheck 13. árið í röð – til hamingju Snæfellingar! Þegar við veltum umhverfismál- um fyrir okkur, getur verið gott að líta aftur í tímann og spyrja; hverju höfum við áorkað? Erum við að taka skref í rétta átt? duga þau? Er kominn tími til að stökkva? Loftslagsváin og umhverfis- mál hafa verið í brennidepli í um- ræðunni á heimsvísu síðastliðin ár. Það er alveg ljóst að þessir mála- flokkar eru ekkert að fara neitt, við horfumst í augu við afleiðingar neyslumenningar og brennslu jarð- efnaeldsneytis og munu umhverf- ismálin hafa áhrif á ákvarðanatöku okkar í flestum sviðum samfélags- ins héðan í frá. En af hverju erum við að taka á þessum málum svona seint? Höfum við ekki búið yfir upplýsingum fyrr en nú? Bylting plastsins „Hvernig loftslag verður í heimin- um innan tíðar?“ var spurt í Þjóð- viljanum árið 1975. Yfirborðshækk- un heimshafanna vegna bráðnandi jökla og röskun hitajafnvægis á yf- irborði jarðar á nokkrum áratugum voru á meðal tilgáta sem fleygt var fram. „Ef áframhaldandi rannsókn- ir staðfesta tilgáturnar um mikl- ar loftslagsbreytingar á næstu öld, verður að gera ráðstafanir sem tak- marka áhrif iðnaðarþróunar“, seg- ir í greininni. Ári síðar birtist viðtal við hagfræðiprófessor í danmörku í Heimilistímanum, um safn hans af hinum byltingarkennda plastpoka, sem hafði unnið hug og hjörtu mannkyns og var álitinn árang- ur „plastaldarinnar“. Vegna áróð- urs umhverfisverndarfólks var tek- ið fram að tilefni væri til að óttast plastpokaleysi. En þessar áhyggj- ur voru óþarfar, plastið fékk svo sannarlega að njóta sín í allri sinni „dýrð“ og hafði töluverð áhrif á neyslumenninguna – og náttúruna. Ekki leið á löngu þar til fór að bera á háværum umræðum um plast- rusl í hafi og á víðavangi á 9. ára- tugnum. Árið 1989 birtist umfjöll- un í dV um mikilvægi þess að við mannfólkið stæðum okkur betur í umhverfismálum, einum mikilvæg- asta málaflokki þess tíma. Mála- flokkur sem þyrfti að takast á við með ströngum lagaramma, verk- ferlum og aðgerðum. Göngumst við afleið- ingum neyslunnar Þetta eru aðeins dæmi um um- fjallanir sem sýna greinilega að mannkynið hefur um áratugaskeið haft upplýsingarnar um það hvert stefndi. Á sumum sviðum hefur náðst árangur en í alltof mörgum tilfellum höfum við stungið höfð- inu í sandinn og flotið sofandi að feigðarósi. En ekki allir. Snæfelling- ar hafa til að mynda verið ötulir við að hreinsa rusl úr náttúrunni síðast- liðin ár. Hreinsunarátökum hefur fjölgað og árlega fara einstakling- ar og hópar á vegum frjálsra félags- samtaka, skóla og annarra meðfram vegum og strandlengju og tína rusl – bæði syndir fortíðar og samtím- ans. Eins aðdáunarvert og það er að sjá allt þetta fólk taka til hendinni, þá þarf að taka á rót vandans sem liggur dýpra. Fyrir örfáum árum fóru landsmenn að hafa áhrif á neysluhegðun með því að mótmæla plastpokanotkun. Jafnvel var talað um að gera samfélög plastpokalaus. Boltinn fór að rúlla og fyrr en varði voru hvatningarátökin víða - heilu bæirnir farnir að sýna að það er vel hægt að lifa án plastpokans. Með- al þeirra sem fyrst tóku skrefið var umhverfishópur Stykkishólms sem árið 2014 hóf verkefnið „plastpoka- laus Stykkishólmur“. Árið 2017 fór átakið „margnota Snæfellsnes“ af stað og vakti athygli á kostum þess að kjósa margnota umbúðir í stað einnota, og að forðast plast- ið. Plastpokinn er fjarri því að vera eina vandamálið en segja má að hann sé tákn fyrir ósjálfbæran lífstíl okkar. Að fjarlægja þennan einfalda en áhrifamikla hlut úr lífi okkar fær okkur vonandi til að huga að heild- armyndinni og horfast í augu við þann ósjálfbæra lífstíl sem við höf- um vanið okkur á. Hvernig tileink- um við okkur slíka hugarfarsbreyt- ingu? Einnota plast er vandamál, rusl í náttúrunni líka, en við þurf- um að grafa enn dýpra og kynna okkur lausnir sem eru til staðar. Matarsóun, sorpmyndun, losun gróðurhúsaloftegunda, jarðvegsrof, ágangur á náttúrulegar auðlindir og svo miklu fleira sem við getum tek- ist á við sem samfélag. Gleymum því ekki að allt sem við kaupum er- lendis hefur einhver umhverfisáhrif í framleiðslu og flutningi og veldur álagi á náttúrulegar auðlindir ann- ars staðar í heiminum. Þetta getur t.d. verið mengun vatns, jarðvegs og lofts með brennslu jarðefnaelds- neyti og notkun eiturefna – og við verðum að gangast við því að valda þessum áhrifum. Tími til að stökkva Það var samtakamáttur á Snæfells- nesi sem varð til þess að sveitarfé- lögin á Snæfellsnesi hófu það ferli að fá umhverfisvottun, eitt af þeim skrefum sem hafa verið tekin til að standa vörð um náttúru og samfé- lag á svæðinu. Ferlið tók nokkur ár, skipulagsbreytingar og aðlaganir í takt við breyttan heim, og á end- anum fengum við umhverfisvottun EarthCheck árið 2008. Vottunin er ekki árangurinn í sjálfu sér, heldur staðfesting á árangri og framförum. Í þrettán ár höfum við verið með umhverfisvottunina og berum hana stolt. Við höfum í samvinnu við samfélagið reynt að minnka ein- nota og barist fyrir margnota, við höfum hreinsað strendur, sveitir og bæi í áraraðir, safnað tugum tonna af rusli úr náttúrunni og kom- ið á fót skráningarkerfi sem gef- ur miklu betra yfirlit um auðlinda- notkun á vegum sveitarfélaganna. Börnin okkar hafa mun greiðari að- gang að upplýsingum um loftslags- breytingar og umhverfismál í skól- um og félagsstarfi en áður. Aðgengi að nokkrum viðkvæmum og vin- sælum stöðum á Snæfellsnesi hefur verið bætt með hag fólks og vernd- un náttúrunnar að leiðarljósi, og sú vinna heldur áfram. En við stopp- um ekki hér því verkefninu lýkur aldrei. Sveitarfélögin munu koma sér upp loftslagsstefnu þar sem los- un gróðurhúsalofttegunda er metin út frá auðlindanotkun, sorpmynd- un og innkaupum. Jafnframt verð- ur farið í markvissar aðgerðir til að uppfylla sett markmið. Áfram verð- ur leitast við að auka þekkingu íbúa á því hvernig við getum gert betur. Við mannfólkið höfum of lengi litið fram hjá þeim umhverfis- vandamálum sem blasa við. Afleið- ingarnar eru mismiklar eftir svæð- um en við getum ekki hunsað þær lengur. Þær aðgerðir sem við gríp- um til virðast kannski smávægileg- ar í stóra samhenginu – við drög- um ekki úr því að Snæfellsjökull hopi með því einu að hjóla í vinn- una. En við höfum áhrif út á við, til nágranna okkar, til næsta bæjar, til vinabæja okkar erlendis og víðar, og sýnum fordæmi með því að takast á við þetta verkefni sem er í höndum okkar allra í dag. Enginn getur gert allt en allir þurfa að gera eitthvað. Margt smátt gerir eitt stórt. umræður síðastliðna áratugi eiga sér hliðstæður í samtímanum, en við verðum að hafa það hugfast að við höfum ekki fimm áratugi í við- bót til þess að láta sannfæra okkur um að við þurfum að breyta okk- ar hegðun. Við þurfum að draga úr neyslu, flokka ruslið betur, keyra minna, styrkja kolefnisbind- ingu með landgræðslu og endur- heimt votlendis og hætta að ganga á auðlindir heimsins eins og þær séu endalausar. Förum með þetta hugarfar í vinnuna, í félagsstarfið, í rannsóknarverkefnið og í stjórn- sýsluna. Tökum stökkið og tileink- um okkur öll þær lífstílsbreytingar sem til þarf. Guðrún M Magnúsdóttir, verk- efnisstjóri hjá Umhverfisvottun Snæ- fellsness. Björgunarsveitirnar Ok og Brák, ásamt nokkrum félögum í Slökkviliði Borgarbyggðar, héldu æfingu á og við Skorradals- vatn á sunnudaginn. Komið var með gúmmíbáta og sæþotur á vatnið en í landi æfðu drónasveitir. Meðal annars var far- ið með slökkvidælu um borð í bát og tilraun gerð til að dæla vatni í land. Æfingin var í og með til að liðka búnað og mann- skap en haldin nú í ljósi þess að hættustig er enn í gildi vegna þurrka og eldhættu. mm/ Ljósm. mm & kj. Héldu bátaæfingu á Skorradalsvatni Pennagrein Enginn getur gert allt – en allir þurfa að gera eitthvað! Græna teymi umhverfisvottunarverkefnisins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.