Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 16
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202116 Norskættaði Skagamaðurinn Mari- anne Ellingsen hefur vakið verð- skuldaða athygli fyrir handbragð sitt við útsaum, prjón, hekl, leður- gerð, þæfingu og gerð allskyns list- muna í formi brúða og dýra. Brúð- urnar eru oft klæddar í þjóðbúninga þar sem öll smáatriði eru unnin af mikilli nákvæmni. „Áhugi minn á handverki gæti átt rætur að rekja til uppeldisins í Noregi. Mamma mín var mikil handavinnukona og saumaði kjóla og föt á okkur krakk- ana. Pabbi var líka hagleiksmaður en hann náði sér í við úr skóginum og var að renna tréskálar. Þá var afi minn afar liðtækur í að skera út og tálga úr viði sem hann náði sér einnig í úti í skóginum sem var allt um kring hjá okkur,“ segir Mari- anna. Heimsækir æskustöðvarnar Marianne fæddist í Sande sem er í Vestfold fylki í suðaustur Nor- egi á milli drammen og Töns- berg. Hún er yngst fjögurra systk- ina. Þrjú þeirra eldri búa í Noregi í og við Sande. Hún segir að ekk- ert þeirra væri í handverkinu. List- fengið hefði greinilega bara far- ið í hana. Eftir að Marianna flutt- ist til Íslands árið 1970 hefur hún haldið tryggð við heimahagana og segist reyna að fara árlega í heim- sókn til ættingja sinna og vina í Noregi. „Þegar stelpurnar mínar voru yngri elskuðu þær að fara til Bekke. Þarna var skógurinn fyrir ofan byggðina og svo Oslóarfjörð- urinn fyrir neðan þar sem hægt var að synda og leika sér. Þær reyndar njóta þess enn í dag. Bróðir minn er búinn að gera upp æskuheimilið okkar og býr þar í dag. Hann hefur gert risastóran pall fyrir utan húsið og útsýnið þaðan yfir Oslóarfjörð- inn með skógivöxnum eyjunum þar fyrir utan er himneskt.“ Prófað ólíkt listform Marianne segir að þegar kemur að handavinnunni þá reyni hún að nýta hluti og efni sem jafnvel aðrir myndu henda og telja einskis nýtt. „Ég fæ mest út úr því að geta nýtt þessa afganga sem aðrir telja einskis virði. Ég er af þeirri kynslóð og ólst upp við að það ætti að nýta hlutina ef hægt væri í stað þess að henda þeim. Þegar ég flutti til Íslands á sínum tíma þá voru þetta auðvitað mik- il viðbrigði og mér leiddist oft og saknaði heimahaganna. Þá má segja að ég hafi hellt mér út í handverk- ið af fullum þunga.“ Þegar mun- ir Marianne eru skoðaðir á heim- ili hennar sést að hún er ótrúlega hæfileikarík í list sinni og kennir þar ýmissa grasa. „Ég hef farið allan skalann í hannyrðunum og prófað margskonar listform. Heklað gard- ínur og rúmteppi, prjónað, farið í silfurleir og kynnt mér leðurvinnu, en ég fór á sínum tíma á námskeið í Handverkshúsinu í leðurtöskugerð. Ég fór síðan að vinna fyrir félags- málaráð Akraneskaupstaðar. Júlla Baldurs heitin sá um keramikgerð og ég um ýmis konar föndur fyrir þá sem sóttu þessi námskeið á veg- um bæjarins á sínum tíma. Ég rak Grundarbúðina í 2-3 ár og snéri eftir það aftur til félagsmálaráðs um tíma. Síðan vann ég við leikskóla og var m.a. að föndra með börnunum og fannst það mjög skemmtilegt og gefandi. Sömu sögu er að segja eft- ir að ég fór að vinna á hjúkrunar- heimilinu Höfða. Það var mjög gef- andi líka. Þar kom fólk á dagdeild og auðvitað heimilisfólkið líka. Við vorum að aðstoða þau við hannyrð- ir og fleira. Áður, þegar Höfði var einungis dvalarheimili, var þarna fólk sem var mjög fært í að prjóna og hekla og gaman að aðstoða það en eftir að heimilið breyttist meira í hjúkrunarheimili hefur þetta breyst og fólkið ekki getað eins mikið og áður og verkefnin verið einfaldari sem er ofur eðlilegt. En ég naut þess að geta gefið af mér á Höfða og hætti á þeim góða vinnustað eft- ir um 15 ára starf þegar ég náði eft- irlaunaaldri 67 ára gömul.“ Tómstundir öllum nauðsynlegar En Marianne slær ekki slöku við þótt hún sé hætt að vinna. Hún er alltaf með hugann opinn fyrir nýju handverki. „Ég er nú þannig gerð að ég fæ áhuga og hugmyndir fyr- ir ákveðnum verkefnum og fer þá alla leið í því og geri nokkur stykki af hverjum hlut en svo vil ég prófa eitthvað nýtt. Oft eru þetta mínar eigin hugmyndir eða ég sé eitthvað á internetinu eða í blöðum. Fæ þá hugmyndir en geri svo úr þeim annað efni, í öðru formi, eða á ein- hvern hátt öðruvísi.“ Maríanne leggur áherslu á mikil- vægi þess hversu nauðsynlegt er fyr- ir fólk að hafa eitthvað fyrir stafni, sérstaklega eftir að það hættir á vinnumarkaðinum og reyndar fyr- ir fólk á öllum aldri. „Hannyrðir og tómstundir eru öllum nauðsynlegar og lífið verður innihaldsríkara. Eins og ég sagði áður þá hjálpuðu hann- yrðirnar mér þegar ég kom fyrst til Íslands. Enn í dag veita þær mér mikla ánægju ásamt því að vinna í garðinum mínum, sem mér finnst afskaplega nærandi.“ Námskeiðahald Marianne heldur ekki úti heimasíðu með handverki sínu en hefur selt muni sína á handverkssýningum. Einnig hafa verið sýningar á Vöku- dögum á Höfða og þar var hún og vinkona hennar Áslaug Rafnsdóttir með sýningu á verkum þeirra. „Ég „Hannyrðir og tómstundir eru öllum nauðsynlegar til að öðlast innhaldsríkara líf“ segir Marianne Ellingsen hannyrðarkona á Akranesi Marianna með eina léttklædda dúkku með G-streng. Þessa krosssaumsmynd (að ofan) af síðustu kvöldmáltíðinni saumaði Marianna fyrir mörgum árum, ætlaði að vera nokkur ár að því, en var þrjá mánuði. „Ég heillaðist af verkefninu, mátti varla vera að því að fara úr vinnufötunum á daginn og sofnaði út frá saumaskapnum á kvöldin.“ Jólasveinarnir þrettán. „Hérna eru ég og vinkonur mínar,“ sagði Marianna og benti á sjálfa sig. Vegglistaverk, bæði blaut- og þurrþæfð unnin úr kembu. Saumaðar dúkkur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.