Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 2
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 20212
Eurovision söngvakeppnin verður
haldin í Rotterdam á laugardags-
kvöldið. Seinna úrslitakvöldið verð-
ur annað kvöld og munu Daði og
Gagnamagnið þá flytja sitt lag, 10
Years. Grillveislur hafa gjarnan ver-
ið órjúfanlegur hluti af Eurovision
og þá er vert að minna á að í lands-
hlutanum hefur gróður verið mjög
þurr og því mikilvægt að fara var-
lega við grillið og gæta þess að
glóð komist ekki í gróðurinn.
Á morgun og föstudag verður
breytileg átt 3-8 m/s og víða bjart
í veðri, en skúrir sunnantil á land-
inu. Hiti 3-11 stig og hlýjast vestan-
lands. Á laugardag á að vera suð-
austlæg átt með smáskúrum sunn-
an- og vestanlands, annars þurrt.
Hiti á bilinu 4-10 stig að deginum.
Á sunnudag á að vera austlæg átt,
skýjað með köflum og smá væta
suðaustan- og austantil, en annars
þurrt. Hiti breytist lítið. Á mánudag
á að vera breytileg átt með stöku
skúrum sunnan- og vestanlands,
annars þurrt.
Í síðustu viku voru lesendur á vef
Skessuhorns spurðir hvort þeir hafi
orðið fyrir ofbeldi. Tæplega helm-
ingur svarenda, eða 47%, segjast
ekki hafa orðið fyrir ofbeldi. 22%
hafa orðið fyrir fleiri en einni teg-
und af ofbeldi, 18% hafa orðið fyrir
andlegu ofbeldi, 7% hafa orðið fyr-
ir kyferðislegu ofbeldi og 6% þeirra
sem svöruðu hafa orðið fyrir líkam-
legu ofbeldi.
Í næstu viku er spurt:
Horfir þú á úrslitakvöld
Eurovision?
Feðgarnir Magnús og Jón Þór á Rán
SH í Snæfellsbæ rufu 100 tonna
múrinn á grásleppuvertíðinni sem
þeir voru að ljúka. Þeir feðgar eru
Vestlendingar vikunnar að þessu
sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Beltin talin hafa
bjargað manns-
lífum
VESTURLAND: Á sunnu-
dagskvöld varð bílvelta á
Hraunhreppsvegi við Einholt.
Tveir voru í bílnum og öku-
maður 17 ára síðan í janúar.
Ökumaður segist hafa hrokkið
eitthvað við, kippt í stýrið og
við það misst bílinn út af veg-
inum sem er malarvegur. Öku-
maður og farþegi sem voru
nokkuð skornir og lemstrað-
ir voru fluttir á sjúkrahúsið á
Akranesi til aðhlynningar. Tal-
ið var að íkveikjuhætta stafaði
af bílnum í sinunni utan vegar
og var hann því snarlega fjar-
lægður með kranabíl af slys-
stað. Talið er að bílbelti hafi
þarna komið í veg fyrir alvar-
legra slys og jafnvel bjargað
mannslífum. -frg
Dregið í Mjólk-
urbikarnum
LANDIÐ: dregið var í
32-liða úrslit Mjólkurbikars-
ins í gær og voru Vesturlands-
liðin nokkuð heppin með and-
stæðinga. Skagamenn fengu
heimaleik gegn Fram sem leik-
ur í Lengjudeildinni, Víkingur
Ólafsvík fékk útileik og mæt-
ir liði KFS frá Vestmannaeyj-
um sem leikur í þriðju deild-
inni og Kári mætir KR-ingum
í Akraneshöllinni. Leikirnir í
32-liða úrslitunum fara fram
dagana 22.-24. júní næstkom-
andi. -vaks
Hólmurinn
heilsueflandi
STYKKISH: Stykkishólms-
bær hefur ákveðið að sækja
um þátttöku í Heilsueflandi
samfélagi. Bæjarráð samþykkti
á fundi 6. maí síðastliðinn að
fela æskulýðs- og íþróttanefnd
að undirbúa umsókn um þátt-
töku og gera tillögu um skipan
þverfaglegs stýrihóps. -arg
Leitin
að leikurum
ÓLAFSVÍK: Í byrjun júní
eiga að hefjast upptökur á
kvikmyndinni Woman at sea
í Ólafsvík og nágrenni, eins
og við greindum frá í síðasta
blaði. Í frétt á vef Snæfells-
bæjar segir að upptökur eiga
að standa yfir fram í júlí og
hafa framleiðendur óskað eft-
ir aukaleikurum af svæðinu.
Áhugasamir aukaleikarar á
aldrinum 18-70 ára eru hvatt-
ir til að mæta á Hótel Ólafs-
vík í dag, miðvikudag, milli kl
18:00 og 20:30. -arg
Nú er unnið við byggingu nýs veiði-
húss fyrir veiðimenn í Hörðudalsá
Á vef Akraneskaupstaðar er sagt
frá því að nýverið hafi verið skrif-
að undir verksamning vegna upp-
steypu og utanhússfrágangs á nýju
leikskólahúsnæði við Asparskóga
25. Sjammi ehf er verktaki og mun
Verkís hafa umsjón með verkinu
fyrir hönd Fasteignafélags Akra-
neskaupstaðar. Verkefnið snýst um
byggingu á um 1500 fermetra leik-
skóla úr forsteyptum einingum.
Hluti af verkinu felst í að koma fyr-
ir lögnum í grunni, setja í glugga og
hurðir ásamt því að ganga frá þaki
og ljúka öllum utanhússfrágangi
við bygginguna. Áætlað er að verk-
lok séu eigi síðar en 1. mars 2022.
vaks
Mikið líf er þessa dagana í höfnum
Snæfellsbæjar þegar strandveiði-
flotinn bætist við vertíðarbáta og
-skip sem fyrir eru. Við trébryggj-
una í Rifi voru t.d. nú um helgina
fimm bátar hver utan á öðrum, sem
gerist ekki oft. um 30 handfærabát-
ar lágu þá í höfninni, bátar sem flot-
bryggjan ætti að rúma, en það sem
fréttaritari tók sérstaklega eftir var
hvað það voru margir stórir bátar á
færum sem ekki geta legið við flot-
bryggjuna.
Strandveiðar hafa farið vel af
stað. Á A-svæði, sem nær frá Eyja-
og Miklaholtshreppi til Súðavíkur-
hrepps, voru útgefin leyfi fyrstu sjö
dagana í maí 231 en á sama tíma í
fyrra voru þau 205. Landanir hafa
nær tvöfaldast í fjölda, voru 564 árið
2020 en voru 1.071 í ár. Afli strand-
veiðibátanna hefur að sama skapi
aukist eða úr 406 tonnum í 764
tonn. Var meðalafli á bát árið 2020
2.335 kg fyrstu vikuna í maí, en í ár
var hann 3.693 kg. Meðfylgjandi
myndir eru frá Rifshöfn síðastliðinn
laugardag. þa
Töluverð aukning á strandveiðum í Snæfellsbæ
Nýtt veiðihús risið fyrir Hörðudalsá
í dölum. „Það er verið að vinna í
að klára húsið og þetta er allt að
koma,“ sagði Níels Sigurður Ol-
geirsson á Seljalandi í Hörðudal, en
hann selur veiðileyfi í Hörðudalsá
fyrir veiðifélagið. Gamla veiðihús-
ið við ána var orðið barn síns tíma
enda orðið um 40 ára gamalt. Nýja
veiðihúsið stendur rétt fyrir neðan
það gamla á fallegum stað í Hörðu-
dal þar sem sést vel yfir dalinn.
Í fyrra veiddust um 60 laxar í ánni
og um 140 bleikjur. Víða á þessu
svæði selja bændur sjálfir veiðileyfi
í árnar, svo sem í Hörðudalsá, Miðá
í dölum og Hvolsá og Staðarhólsá.
Nauðsynlegt er að aðbúnaður fyr-
ir veiðimenn sé góður. Við Hauka-
dalsá í dölum standa sömuleiðis
yfir framkvæmdir en þar er verið að
stækka veiðihúsið. gb
Samið um byggingu nýs
leikskóla í Skógahverfi
Frá undirritun samningsins. Efri röð: Anna María Þráinsdóttir frá Verkís, Alfreð Þór Alfreðsson og Sigurður Páll Harðarson frá
Akraneskaupstað. Neðri röð: Sigurjón Skúlason frá Sjamma ehf, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Heimir Einarsson frá
Sjamma ehf. Ljósm. Akraneskaupstaður.
Nýja veiðihúsið við Hörðudalsá í Dölum
skammt neðan við það gamla.
Ljósm. María Gunnarsdóttir.