Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
Meirihlutanum í borgarstjórnReykjavíkur þótti ekki ástæða
til að eyða tíma í tillögu Sjálfstæð-
isflokksins í borginni um að skipu-
leggja nýjar atvinnulóðir í Keldna-
landi og felldi tillöguna umsvifalaust.
Það var snaggaralega gert en ekki
endilega skynsamlega.
Meirihlutinn í Reykjavík hefurmeð stefnu sinni hrakið fjölda
fyrirtækja og fjölskyldna út fyrir
borgarmörkin og mætti fara að end-
urskoða afstöðu sína til uppbygg-
ingar í borginni og nýtingar borg-
arlandsins.
Meirihlutinn vill helst enga nýjaíbúabyggð fyrir austan
Snorrabraut, hvað þá fyrir austan El-
liðaár. Allir eiga að búa á svo að segja
sama blettinum þó að sú stefna feli í
sér að íbúðaverð rjúki upp úr öllu
valdi.
Meirihlutinn vill ekki heldurstuðla að því að fyrirtæki njóti
sín innan borgarmarkanna og að þau
hafi þar ýmsa kosti, eins og til dæmis
þann sem sjálfstæðismenn bentu á.
Meirihlutinn telur ekki æskilegtað skapa fjölbreytt tækifæri
fyrir atvinnulífið, sem jafnvel gæti
haft þann kost aukalega að draga úr
umferðarþunga vestur í bæ, en er
þess í stað sáttur við að stærstu fyrir-
tæki landsins flytji úr höfuðborginni.
Þetta er sérkennilegt metn-aðarleysi hjá meirihluta Við-
reisnar, Pírata, Vinstri grænna og
Samfylkingar.
Metnaðarlaus
meirihluti
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Frumvarpi iðnaðarráðherra, Þór-
dísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, til
breytingar á ýmsum lögum til ein-
földunar regluverks hefur verið
dreift á Alþingi.
Það er í flestum atriðum efn-
islega samhljóða því frumvarpi
sem kynnt var í samráðsgátt
stjórnvalda fyrr í vetur. Þó er þar
ekki að finna brottfall leyfisveit-
ingar Neytendastofu til notkunar
þjóðfánans í skráðu vörumerki. Þá
er hætt við að
fella niður
ákvæði í lögum
um sölu fast-
eigna og skipa
um að fasteigna-
sali skuli eiga
meirihluta í fé-
lagi sem stundar
fasteignasölu.
Meðal ákvæða
í frumvarpinu
sem nú hefur verið lagt fram er að
lögverndun starfsheitis viðskipta-
og hagfræðinga verði felld brott úr
lögum og að próf til viður-
kenningar bókara verði aflögð.
Kaflar frumvarpsins eru fleiri, átta
talsins.
Í drögum að frumvarpinu sem
kynnt var í samráðsgátt stjórn-
valda var það fært sem rök fyrir
afnámi leyfisveitingar Neytenda-
stofu fyrir notkun þjóðfánans í
skráðu vörumerki að leyfisveitinga-
kerfið væri þungt í vöfum, tíma-
frekt og kostnaðarsamt. Hugverka-
stofa gerði athugasemdir við þetta
í samráðsferlinu. Benti á að Neyt-
endastofa og Hugverkastofa hefðu
í sameiningu komið á einföldu kerfi
og umfangið væri ekki svo mikið að
það kallaði á breytingar.
Fallið er frá þessari breytingu í
endanlegu frumvarpi, eins og fyrr
segir. helgi@mbl.is
Þarf leyfi fyrir notkun fánans
Nýtt frumvarp iðnaðarráðherra til einföldunar regluverksins komið fram
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
Aðstandendur og vinir Tomasz
Majewskis, sem lenti í bílslysi í
Skötufirði 16. janúar síðastliðinn
ásamt fjölskyldu sinni, hafa stofnað
söfnunarreikning fyrir hann. Söfn-
unin er til að styðja Tomasz í erfið-
leikum hans.
Kamila Majewska, eiginkona
Tomasz, lést af völdum slyssins að
kvöldi sama dags og það varð.
Mikolaj, 18 mánaða gamall sonur
þeirra, lést svo á Landspítalanum á
þriðjudaginn var. Von er á fjöl-
skyldum þeirra Kamilu og Tomasz
til landsins, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Reikningsnúmer
söfnunarinnar fyrir Tomasz er
0123-15-021551 og kennitala hans
er 031289-4089.
Lögreglan á Vestfjörðum vinnur
nú að rannsókn á tildrögum slyss-
ins. Hún sendi í gær innilegustu
samúðarkveðjur til Tomasz og
þakkaði um leið fjórum vegfar-
endum sem komu fyrstir að slysinu
og veittu hjálp og eins viðbragðs-
aðilum sem komu á vettvang og
sýndu allir mikið hugrekki.
Söfnun fyrir Tomasz
Majewski vegna slyss
Ljósmynd/Af Facebook
Fjölskyldan Kamila, Mikolaj og Tomasz Majewski lentu í alvarlegu bílslysi.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15