Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Hækkandi sól Í dag er nákvæmlega mánuður frá vetrarsólstöðum en þá var sól lægst á lofti á norðurhveli jarðar. Daginn hefur lengt smám saman og nú nýtur birtu nærri tveimur klukkustundum lengur en fyrir mánuði. Sól- arupprás í Reykjavík var klukkan 10:45 í gær og sólin settist klukkan 16:31. Nú styttist í að sólin sjáist í fjörðum umluktum fjöllum. Sólardagur Ísfirðinga er 25. janúar nk. og sólardagur Siglfirðinga 28. janúar. Eggert Hvað eiga Trygg- ingastofnun ríkisins, Ís- landsbanki, Lands- réttur, Hafrannsóknastofnun, sýslumaðurinn á höfuð- borgarsvæðinu og Ice- landair sameiginlegt? Jú, þessar stofnanir og fyrirtæki hafa valið sér aðalstarfsstöð utan Reykjavíkur á allra síð- ustu árum. Farið úr borginni. Fleiri aðilar, svo sem Tækniskólinn, eru að hugsa sér til hreyfings. Ástæðan er einföld. Það vantar hagstæðar og hentugar atvinnulóðir. Stefna borgarinnar hefur verið að skipuleggja ákveðna atvinnustarfs- semi á Esjumelum fyrir starfsemi. Fáir kostir eru fyrir stórar stofnanir og fyrirtæki sem vilja vera miðsvæðis með skrifstofur og starfsemi á höfuðborg- arsvæðinu. Þá liggur fyrir að verulegur skipulagshalli hefur aukist þar sem umferð- in fer vestur og í miðbæinn á morgnana, en í austur og til Kópa- vogs síðdegis. Loks skortir staðarval fyrir nýjan spítala, en langan tíma tekur að undirbúa slíka starfsemi eins og dæmin sanna. Besta staðsetning fyrir nýja starf- semi væri austarlega til að stytta vegalengdir og minnka umferð á álagstímum. Keldur. Íbúabyggð, óskert ströndin við Grafarvog og at- vinnulóðir undir framsækna starf- semi á Keldum er skynsamlegasta svarið. En í stað þess að skipuleggja Keldur eins og lagt er upp með bæði í lífskjarasamningum og samgöngusáttmálanum gerir borg- arstjórnin ráð fyrir engri uppbygg- ingu á Keldum næsta áratuginn. For- feður okkar bændurnir hefðu vitað það betur. Störfin eru undirstaða tekna íbúanna. Þau eru líka und- irstaða tekna borgarinnar. Skuldir hafa hækkað mikið hjá borginni og því einboðið að borgin þarf að bjóða stofnunum og fyrirtækjum góða val- kosti. Sú er ekki raunin. Sá sem hrek- ur frá sér mjólkurkýrnar situr eftir mjólkurlaus. Eftir Eyþór Arnalds » Besta staðsetningfyrir nýja starfsemi væri austarlega til að stytta vegalengdir og minnka umferð á álags- tímum. Keldur. Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. Að missa frá sér mjólkurkýrnar Veiðigjald ársins 2021 er áætlað um 7,5 milljarðar króna. Gjald- ið er reiknað út frá af- komu fiskveiða árið 2019, en það var gott ár í sjávarútvegi. Nú þeg- ar árið 2020 er að baki er áætlað að veiðigjald þess árs hafi verið 4,8 milljarðar króna, en það byggðist á afkomu ársins 2018. Hækkun gjaldsins milli áranna 2020 og 2021 endurspeglar einfaldlega bætta af- komu í fiskveiðum á milli áranna 2018 og 2019. Samkvæmt lögum um veiðigjald er það 33% af afkomu fiskveiða. Í því felst að gjaldið er þriðjungur af verð- mæti aflans að frádregnum kostnaði. Þannig fær þjóðin þriðjung af afkom- unni. Tveir þriðju fara meðal annars í fjármagnskostnað, af- skriftir, greiðslu arðs til þeirra sem lagt hafa fjármagn til reksturs- ins, fjárfestingar í nýj- um skipum og búnaði og viðhalds á eldri skipum. Í þessu samhengi skal áréttað að greiðsla arðs til hluthafa í sjávar- útvegi hefur að með- altali verið hlutfallslega lægri en í fyrirtækjum í viðskiptahagkerfinu á tímabilinu 2010 til 2018. Tölur fyrir árið 2019 liggja ekki fyrir. Þá hafa fjárfestingar verið miklar undangengin fimm ár – þær mestu frá því lög um stjórn fisk- veiða tóku gildi árið 1990. Sú þróun er afar jákvæð enda eru tækniframfarir örar og fjárfesting í sjávarútvegi for- senda framfara og samkeppnishæfni á alþjóðlegum markaði. Jafnframt er fjárfesting nauðsynleg svo sjávar- útvegur geti haldið áfram á þeirri já- kvæðu vegferð sem hann hefur verið í umhverfismálum og dregið enn frek- ar úr olíunotkun og minnkað sót- sporið. Síst má gera minna úr þessum samfélagslega ávinningi en þeim sem felst í greiðslu veiðigjalds. Árið 2018 greiddi sjávarútvegur 11,3 milljarða króna í veiðigjald og ár- ið 2019 voru 6,6 milljarðar króna greiddir í veiðigjald. Þegar ljóst var að veiðigjald ársins 2020 yrði 4,8 milljarðar króna mátti heyra fullyrð- ingar þess efnis að sú ríkisstjórn sem nú situr hafi átt einhvern þátt í þess- ari lækkun. Slíkar staðhæfingar voru varla settar fram í góðri trú, enda mætti þá með sömu rökum halda því fram að sama ríkisstjórn hafi átt þátt í að hækka gjaldið á ný á þessu ári upp í áðurnefnda 7,5 milljarða króna. Ný lög um veiðigjald voru sett í lok árs 2018 og var gjaldið í fyrsta sinn innheimt eftir reiknireglum þeirra laga á liðnu ári, það er árið 2020. Veiðigjald var frádráttarbært sem kostnaður samkvæmt eldri lögum, en er það ekki samkvæmt þeim nýju. Þá er í nýju lögunum lagt 10% álag á tekjur uppsjávarveiðiskipa, það er þeirra skipa sem veiða tegundir á borð við makríl, síld, kolmunna og loðnu. Gjaldstofninn var þannig breikkaður, sem þýðir hærra veiði- gjald. Það er því beinlínis rangt að tala um að sú ríkisstjórn sem nú situr hafi með samþykkt nýrra laga stuðlað að lækkun veiðigjalds. Þeir sem það gera tala gegn betri vitund. Til frekari staðfestingar má benda á að veiði- gjald ársins 2021 er um 50% hærra en það hefði verið samkvæmt eldri lög- um. Sitt sýnist vafalaust hverjum um þá þróun, en ljóst má vera að hún er síst til þess fallin að leggja mik- ilvægum útflutningsatvinnuvegi lið í samkeppni við ríkisstyrktan sjávar- útveg annarra þjóða. Afkoma Íslendinga af sjávar- auðlindinni er að miklu leyti háð duttlungum náttúru og manna. Vist- kerfi hafsins tekur sífelldum og ófyr- irsjáanlegum breytingum og mark- aðir geta brugðist; átök á Krímskaga, efnahagslægð í Nígeríu vegna verð- lækkunar á olíu og alltumlykjandi kórónuveira eru aðeins fáein dæmi. Þau verðmæti sem við náum að gera úr auðlindinni frá einu ári til annars geta því sveiflast. Í umræðu um greiðslu fyrir nýtingu á auðlindinni er mikilvægt að þessar ytri aðstæður séu hafðar í huga. Veiðigjald mun bæði hækka og lækka án þess að nokkur stjórnmálamaður hafi þar sérstaklega hönd í bagga. Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur » Það er því beinlínis rangt að tala um að sú ríkisstjórn sem nú situr hafi með samþykkt nýrra laga stuðlað að lækkun veiðigjalds. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Sjö og hálfur milljarður Utanríkisþjónustan sýndi hvað í henni býr þegar kórónuveiran steypti sér yfir heims- byggðina án þess að gera boð á undan sér fyrir tæpu ári. Samgöngur milli landa hafa á síðari tímum ekki verið mark- aðar annarri eins óvissu. Þúsundir Íslendinga þurftu að komast heim meðan ringulreið ríkti hvert sem litið var. Verkefnið var að tryggja öllum sem á þurftu að halda heimferð eða aðra úrlausn. Norræn samvinna á farsóttartímum Viðbrögðin við heimsfaraldrinum eru án efa eitt það fyrsta sem kemur upp í hugann nú þegar um fjögur ár eru liðin frá því ég tók við embætti ut- anríkisráðherra. Aðstæðurnar voru að sönnu einstakar og aldrei hefur borgaraþjónusta utanríkisráðu- neytisins staðið frammi fyrir stærra verkefni. Við þurftum að stilla saman strengi – ráðuneytið, sendiráðin, fastanefndir, ræðismenn, almanna- varnir, sóttvarnalæknir, flugfélög og fjöldi annarra. Þarna kom í ljós að í reynslubanka ráðuneytisins er ómet- anleg þekking á réttum viðbrögðum í framandi umhverfi sem virkilega reynir á við aðstæður sem þessar. Líklega hefur gildi norræns sam- starfs sjaldan komið betur í ljós en í heimsfaraldrinum. Náið samstarf var á milli Norðurlandanna þar sem þau opnuðu borgaraþjónustu sína fyrir þegnum hvert annars. Daglegir fund- ir voru haldnir um stöðu, viðbrögð og úrræði til að tryggja að allir kæmust til síns heima. Á fyrstu þremur mán- uðum faraldursins áttum við utanríkisráðherrar Norðurlanda nán- ast vikulega fjarfundi og þar voru far- sóttin og viðbrögð við henni auðvitað efst á baugi. Samráðið við þessar nán- ustu vinaþjóðir okkar hefur aldrei verið jafn náið. Íslendingar aðstoðaðir heim Í upphafi faraldursins var brýnast að láta fólkið sem þurfti á þjónustu okkar að halda vita af okkur – að við værum reiðubúin að rétta því hjálp- arhönd. Á fáum dögum náðum við beint eða óbeint til flestra Íslendinga í útlöndum – næstum allra, held ég að sé óhætt að segja. Þar gegndi lyk- ilhlutverki skráningargrunnurinn sem var settur upp með hraði. Íslend- ingar erlendis gátu notað hann til að láta okkur vita af ferðum sínum og við í staðinn komið til þeirra boðum án nokkurra tafa og fengið ómetanlega yfirsýn. Staðreyndirnar tala sínu máli. Nær tólf þúsund manns skráðu sig í grunninn. Frá lokum mars og fram í miðjan apríl var haft beint samband við tæplega sex þúsund Ís- lendinga erlendis, fyrst utan Evrópu en svo einnig í Evrópuríkjum. Hringt var í á þriðja þúsund manns en aðrir fengu sérsniðin skilaboð í tölvupósti, á sam- félagsmiðlum og með smáskilaboðum. Frá 10. mars og til dagsins í dag hafa yfir þrettán þúsund erindi verið skráð hjá borgaraþjónustunni, tvö af hverjum þremur tengjast Covid-19. Dagana 14.-19. mars svaraði borg- araþjónustan 400 erindum á dag. Til samanburðar má nefna að allt árið 2018 bárust alls 550 erindi til borg- araþjónustunnar, að frátöldum fjöl- mörgum erindum sem sendi- skrifstofur og ræðismenn afgreiddu það árið. Samstillt átak við útvegun búnaðar Þegar farsóttin skall á með fullum þunga reið á að eiga nægar birgðir af hlífðarbúnaði fyrir starfsfólk sjúkra- húsa. Þá kom í hlut sendiráðsins í Kína að semja um kaup á slíkum vörum og tryggja leyfi fyrir útflutn- ingi þeirra. Með samstilltu átaki stjórnvalda, sendiráða, fyrirtækja og einstaklinga tókst að útvega búnaðinn og Icelandair flutti hann svo hingað heim. Þá hafði utanríkisþjónustan sömuleiðis milligöngu um að koma gjörgæsluöndunarvélum til landsins frá Kína sem Landspítalinn fékk að gjöf frá íslenskum fyrirtækjum. Nú þegar vonandi sér fyrir endann á þessum fordæmalausa faraldri er nauðsynlegt að draga af honum lær- dóm. Ég er ekki í minnsta vafa um að utanríkisþjónustan stóðst prófið og stendur sterkari eftir en áður. Starfs- fólkið fékk þjálfun í að vinna saman í gríðarstóru verkefni þar sem mik- ilvæg reynsla hvers og eins kom að góðum notum. Ég hef aldrei verið jafn stoltur af samstarfsfólki mínu og þessar örlagaríku vikur sem sýndi hvað það er mikilvægt að hafa öfluga utanríkisþjónustu. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson Guðlaugur Þór Þórðarson »Nú þegar sér fyrir endann á þessum fordæmalausa faraldri er ég ekki í vafa um að utanríkisþjónustan stóðst prófið og stendur sterkari eftir en áður. Höfundur er utanríkis- og þróunar- samvinnuráðherra. Þegar heimurinn lokaðist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.