Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 ✝ Helgi Svein-björnsson fæddist 29. desem- ber 1947 í Reykja- vík. Hann lést 9. janúar 2021 á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja. For- eldrar hans voru Sveinbjörn Sædal Gíslason, f. 17. des- ember 1926, d. 27. júlí 2013, og Karól- ína Aðalsteinsdóttir, f. 9. júní 1927, d. 26. júlí 2006. Systkini Helga eru Ragna Sveinbjörns- dóttir, Edda Sveinbjörnsdóttir og Valur Sveinbjörnsson. Helgi var giftur Helgu Guð- rúnu Þorbergsdóttur árin 1970-1977 og eignuðust þau 3 syni. Þeir eru: Sveinbjörn, f. 26. maí 1970, kvæntur Riina El- isabet Kaunio og börn þeirra eru Katri Elísabet, f. 8. október 2005, Mikko Mathías, f. 2. októ- Ósk Hjaltadóttir. Helgi var kvæntur Carmelitu Mayubay árin 2000-2005. Helgi ólst upp á Seltjarn- arnesi í Reykjavík. Hann byrj- aði ungur að vinna og vann ýmis störf. Vann á fraktflutn- ingaskipum frá 12 ára aldri. Helgi vann einnig sem strætó- bílstjóri um tíma ásamt því að vinna fyrir hljómsveitir eins og Hljóma og Hauka. Um tíma átti hann vinnufatahreinsun í Reykjavík. Árið 1981 flutti hann í Garðinn og byrjaði að vinna hjá Íslenskum að- alverktökum á smurstöðinni og var einnig mikið að gera upp og selja bíla á þeim tíma. Helgi flutti til Keflavíkur árið 1987 og nokkrum árum seinna keyptu hann og Ástríður sam- býliskona hans Þvottahöllina, sem hann átti og stjórnaði til dánardags. Útför Helga fer fram í dag, 21. janúar 2021, í Keflavík- urkirkju kl. 13. Streymt verður frá útförinni (stytt streymi): https://tinyurl.com/y2bqu5dd Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat ber 2009. Þorberg- ur Grétar, f. 18. september 1971, kvæntur Önnu Bryndísi Ósk- arsdóttur. Sæþór, f. 3. maí 1975, barnsmóðir Kristín Maríanna Haf- steinsdóttir og son- ur þeirra er Helgi Fannar, f. 8. sept- ember 1990. Helgi kynntist Ástríði Sigþórsdóttur árið 1976 og voru þau í sambúð til ársins 1997. Þau eignuðust 4 börn. Þau eru Sólveig Harpa, f. 15. febrúar 1977, barnsfaðir Andri Páll Jónsson og börn þeirra: Gabríel Snær, f. 18. jan- úar 2001 og Lena Natalía, f. 13. september 2006. Skúli, f. 21. desember 1982. Ástþór, f. 23. október 1988, d. 18. febrúar 1989 og Andri, f. 23. október 1991, sambýliskona Kristjana Elsku pabbi, ég hélt svo inni- lega að við ættum nokkur ár eftir saman. Það eru svo marg- ar minningar sem við áttum saman. Ferðir okkar á bílasölur og ég kunni allar bílategundir svo lítil og allir bílar sem þú átt- ir voru „bíli mína, pabba mína“, þú sagðir mér þetta svo oft. Ég var mikil pabbastelpa. Allar ferðirnar í Húsafell þar sem við spiluðum t.d. fimm upp og þú elskaðir að stríða mér því ég var svo tapsár. Kofinn sem þú byggðir handa mér í Garð- inum. Trillan sem þú keyptir í Garðinum sem þú skírðir Hörpu, það var svo gaman að fara út á sjó með þér. Þegar þú og mamma keyptuð Birkiteiginn í Keflavík þá fannst mér við vera að flytja í höll, þar voru margar góðar stundir. Þú áttir svo marga vini og það var enda- laus gestagangur heima hjá okkur, sérstaklega í skúrnum þar sem þú elskaðir að gera upp bíla. En svo áttum við líka marga erfiða tíma þar, elsku pabbi, þegar Ástþór bróðir dó fór margt niður á við. Er þakklát fyrir að hafa verið hjá þér seinasta daginn þinn í þessu litríka lífi þínu og sagt þér að ég elska þig. Mig langar líka að segja: pabbi, takk fyrir að gefa mér alla þessa ynd- islegu bræður mína, þitt ríki- dæmi sem þú kallaðir okkur og varst svo stoltur af. Takk fyrir að segja mér að ég væri góð systir. Takk fyrir að ég gat allt- af leitað til þín þegar eitthvað bjátaði á og við gátum rætt hlutina og þú sagðir alltaf við reddum þessu, það er ekkert sem við getum ekki lagað. Takk fyrir að vera svona góð- ur við vini okkar systkina. Takk fyrir að gefa okkur þennan tón- listaráhuga, ég kann flest lög með Bob Marley og Rolling Sto- nes o.fl. vegna þín. Lena afa- stelpa elskaði líka að rúnta með þér í fornbílunum og hlusta á þessa gömlu tónlist. Takk fyrir að segja mér að ég væri góð mamma og hvað þú værir stolt- ur af mér og börnunum mínum, þú átt stóran þátt í því og mögulega hefur Gabríel minn ekki bara þessa stríðni frá pabba sínum heldur þér líka. Sagðir alltaf við Gabríel flott- asti strákurinn í bænum og við bræður mína við erum flottastir þegar þið náðuð að leysa ein- hver mál. Elsku pabbi minn – þú varst erfiður kall og sagðir stundum hluti sem þú hefðir mátt sleppa en við gátum fyrirgefið hvort öðru fyrir alla okkar bresti og talað saman um allt og fyrir það er ég mjög þakklát. Takk líka fyrir að kenna mér hvernig maður á ekki að vera. Takk fyr- ir stuðninginn í sálfræðináminu mínu, þú sagðir svo oft að ég hefði þessa sálfræði í mér vegna þín og ég veit að þú hef- ur hjálpað mörgum og það var gott að tala við þig á erfiðum stundum. Þú varst með stórt hjarta og hjálpaðir mörgum með þinni góðmennsku. Ég gæti skrifað heila bók um þig og þitt líf. Og umfram allt, pabbi minn, takk fyrir að innprenta í okkur systkinin … Við höldum alltaf áfram að berjast, við gefumst aldrei upp. Ég skal passa strákana þína fyrir þig, við Lena og Skúli hugsum vel um Lady þína. Við erum flottust, pabbi. Elska þig og mun ávallt sakna þín. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Harpa. Elsku bróðir minn. Nú er þjáningum þínum lokið eftir löng og ströng veikindi. Ég sit hér og hugsa til þín. Þú varst alltaf kletturinn í lífi mínu þeg- ar ég var barn. Þú passaðir alltaf upp á litlu systur þína. Við áttum margar skemmtileg- ar minningar eins og þegar við byggðum saman snjóhús fyrir utan garðinn við húsið okkar og lögreglan keyrði fram hjá og ég fór að hágráta því að ég var svo hrædd. En þú passaðir mig. Ég man líka eftir því þeg- ar við Ragna fengum dúkku- vagna að gjöf og þú spurðir mig hvort þú mættir fá dekkin undan mínum því þú værir að búa til kassabíl og í staðinn myndir þú taka mig í salíbunu. Ég hélt það nú en mamma og pabbi voru ekki ánægð með þetta uppátæki og fékkstu skammir fyrir. En salíbunan var skemmtileg. Enginn var mér eins og góð- ur og þú þegar ég missti fyrsta barnið mitt. Þú varst alltaf mín stoð og stytta. Þú áttir svo stórt hjarta og gafst svo mikið, bæði til góðgerðarmála og til þinna nánustu. Við Guðni feng- um að búa hjá þér í sex mánuði árið 2006 á meðan við biðum eftir húsinu okkar. Mér leið alltaf eins og heima á meðan við bjuggum hjá þér. Svo tókstu Rocky okkar að þér þegar við gátum ekki haft hann lengur og voruð þið alltaf mestu mátar. Þér var alltaf mjög annt um alla og vildir að öllum liði vel en ég vildi að þér hefði verið jafn annt um sjálfan þig. Nú farið þið Rocky saman til sumarlandsins, báðir hressir og kátir eins og í gamla daga. Elsku Helgi minn, takk fyrir að hafa verið til. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt, hafðu þar sess og sæti, signaður Jesús mæti. (Höf. ók.) Þín Edda. Það er margs að minnast þegar einhver sem manni er kær fellur frá. Helgi var góður maður sem fór í gegnum lífið á hnefanum og eljusemi. Hann barðist við fíkn og bakkus og hafði betur. Hann hjálpaði mörgum sem voru í sömu sporum að finna beinu brautina. Við ólumst upp á Nesinu. Helgi var mikill dýravinur. Við áttum labrador-hund sem hét Grettir og var hann mjög vitur. Þegar Helgi var fjögurra ára ætlaði hann einn upp í strætó en Grettir beit í buxurnar hans og togaði hann til baka. Einu sinni var hann með saum í vör- inni eftir að hafa meitt sig en Grettir tók sauminn úr honum. Við áttum einnig Kóp sem var fjörugur hvolpur og elti Helga um allt. Helgi var kallaður Helgi hundó vegna þess hvað hann var mikill hundavinur. Þetta hefði verið kallað einelti í dag en þá var það orð ekki til. Helgi var umhyggjusamur við okkur systkinin en hann gat líka verið mjög stjórnsamur. Á unglingsárunum vildi hann ráða hverja maður umgekkst. En hann vildi bara vel. Helgi borg- aði okkur systrunum fyrir að þvo nælonskyrturnar sínar og bursta skóna þegar hann fór á djammið. Helgi vann alltaf mikið. Hann var aðeins fimmtán ára þegar hann byrjaði sem messagutti á Gullfossi. Helgi átti og rak Þvottahöll- ina í Reykjanesbæ og gekk vel en auðvitað setti Covid stórt strik í reksturinn hjá honum eins og fleiri fyrirtækjum. Hann var heppinn að hafa gott starfs- fólk í vinnu hjá sér og var Car- men honum sérlega góð að sjá um fyrirtækið í veikindum hans. Helgi hafði alla tíð mikla bíla- dellu og átti hann nokkra glæsi- lega fornbíla, sem hann sýndi á ljósanótt og bauð afabörnunum og ömmubörnunum mínum með á rúntinn og það fannst þeim ekki leiðinlegt að fá að fara í flottu bílana hans Helga frænda, sér í lagi blæjubílinn og var blæjan sett niður ef veður leyfði. Hann hefði mátt vera virkari með þessum bíladellu- körlum en hann var, en kannski leyfði heilsan það ekki. Ég sagði honum að fá sér tölvu svo hann gæti fylgst betur með og skoðað þar flotta fornbíla en hann var af gamla skólanum og ekki hrif- inn af tölvum. Ég var mjög ánægð þegar hann fór með Sæ- þóri syni sínum til Ameríku að skoða fornbíla fyrir nokkrum árum. Þetta var þvílík upplifun fyrir hann, bæði að sjá alla fornbílana þar og monta sig af sínum bílum. Helgi bað stund- um Kalla og Dodda að laga og bóna fyrir sig bílana, þeim þótti það sko ekki leiðinlegt. Helgi var mikill matmaður og kunni að meta góðan mat. Við systkinin borðuðum oft saman og þá var eldaður hryggur og læri og stundum saltfiskur og skata. Við borðuðum heima hjá honum og var mikið spjallað og hlegið. Ég eldaði fyrir hann sl. tvö ár því hann vildi ekki fá heimsendan mat. Sagði að mat- urinn hennar Rögnu systur væri bestur. Hann vildi hafa sósuna þykka og nóg af henni. Hann vildi helst fá kjötbollur, snitsel, kótilettur og góðan ís- lenskan mat. Elsku Helgi, þú varst alltaf þakklátur fyrir mat- inn sem ég kom með og ég sakna þess. Ég bið góðan Guð að geyma þig og hugga og styrkja börnin þín og fjölskyldu. Ragna systir. Frábær karakter og eðal gæji er farinn frá okkur. Helgi Sveinbjörnsson. Mig langar að minnast þín með nokkrum orð- um, og segja það sem ég aldrei fékk sagt við þig, þú hafðir nefnilega mikil áhrif á mitt líf og það hver ég er í dag. Þú kenndir mér svo margt um lífið sjálft bæði beint og óbeint, og þú gafst mér eitt það dýrmæt- asta sem ég á, mína allra bestu og kæru vinkonu hana Hörpu. Ég kom inn á heimilið ykkar fyrst þegar ég var 12 ára, ég minnist þess ætíð hversu vel var tekið á móti mér, og hversu skemmtilegt mér fannst að vera á heimilinu ykkar á Birkiteign- um, ég minnist líka ferðarnar upp í Húsafell þar sem við vor- um í hjólhýsinu ykkar. Það var svo mikið líf og fjör, og þú varst svo fyndinn og stríðin, heimilið ykkar bar líka oft preg af al- vöruleikum lífsins, í því var mikill lærdómur sem kom sér oft vel í framhaldinu á mínu lífi og mótaði mig á margan hátt. Ég minnist þess hvernig þú ávalt talaðir mig og Hörpu upp, kallaðir okkur t.d „aðal gellurn- ar í Kef“. Við ræddum oft sam- an um lífið og tilveruna, ég var ekki alltaf sammála þér en þú varst alltaf hreinskilin og op- inskár og þú hlustaðir. Þú sást mig og þú passaðir jafn mikið uppá mig eins og Hörpu og bræður hennar, þú hafðir alla- vega þann eiginleika að láta mér finnast það. Þú og pabbi minn voru góðir vinir og veit ég að þið rædduð oft um okkur, bæði með áhyggjum og stolti. Það var heima hjá ykkur sem ég kynntist mörgum af mínum uppáhalds tónlistarmönnum og uppáhalds tónlist, og það eru nokkur lög sem ég tengi beint við þig. Ég mun líka alltaf tengja við þig þegar ég sé flotta ameríska gamlar eðalkerrur, einsog Cadillac. Það er reyndar svo margt sem birtist upp í huga mér þegar ég minnist þín. Ég hitti þig alltof sjaldan síð- ustu árin, en talaði við þig í síma heillengi í fyrra sumar, ég mun ætíð vera þakklát fyrir það símtal, og ég mun ætíð vera þakklát fyrir það að hafa fengið að vera til staðar á þínum síð- asta sólahring. Ég kveð þig nú með eitt á hreinu, ég mun alltaf passa hana Hörpu, hún er vinur í raun og ég veit að það er mik- ið þér að þakka, hvernig hún er sem vinur, dóttir, móðir, systir og meðmanneskja. Þú skildir víða eftir þig spor, og þú munt lifa áfram í hjörtum margra. Á tímum Covid mun ég ætið vera þakklát fyrir að fá að fylgja þér þinn síðasta spöl í þessu lífi. Ég mun gera það stolt yfir að hafa þekkt þig. Takk fyrir allt. Að sinni. Bless bless. Svava Sandra Björnsdóttir. Helgi Sveinbjörnsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu, hlýhug og stuðning við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, sonar, bróður, barnabarns og frænda, VALGEIRS ÞÓRS ÓLASONAR, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 27. desember. Þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnunarreikning fyrir eiginkonu hans og þrjú ung börn þeirra: 0123-05-001155, kt.: 141057-4649. Kristný María Hilmarsdóttir Hilmar Óli Valgeirsson Emilía Mist Valgeirsdóttir Logi Þór Valgeirsson Óli J. Kristjánsson Jóhanna Jónasdóttir Jónas Pétur Ólason Melissa Auðardóttir Baldur Freyr Ólason Heba María Ægisdóttir Helga Sif Óladóttir Sverrir Pétursson fjölskylda og aðrir ástvinir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, KOLBRÚN SIGRÍÐUR HILMARSDÓTTIR, Hringbraut 71, Reykjavík, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn 1. janúar, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 22. janúar klukkan 15. Streymt verður frá jarðarförinni á Facebókarsíðu Seltjarnarneskirkju. Árný Sigríður Daníelsdóttir Hörður Harðarson Brynja Daníelsdóttir Daníel Sigurður Eðvaldsson Tómas Atli Harðarson Darri Harðarson Orri Harðarson Árný Helga Daníelsdóttir og systkini hinnar látnu Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, stjúpfaðir og afi, GÍSLI PÁLSSON, Sjávargrund 8a, Garðabæ, lést á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn 9. janúar. Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 22. janúar klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt á www.lindakirkja.is/utfarir. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið, kt. 590406-0740, reikningur 0130-26-410520 og Minningarsjóð Heru, líknarþjónustu, kt. 640394-4479, reikningur 0513-26-22228. Dagný Björk Pétursdóttir Soffía Stefánsdóttir Ólivía Gísladóttir Páll Gíslason Fríða Sædís Gísladóttir Anný Rós Ævarsdóttir Andri Pétur Dalmar Dagnýjarson Andri, Sunna, Emilía, Jenný og Gabríel Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS HELGA JÓHANNESSONAR vélvirkja, Ferjuvaði 11, Reykjavík, áður búsettur í Borgarnesi. Svanlaug Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Þorsteinsson Olga Hafsteinsdóttir Jenný Vigdís Þorsteinsdóttir Gísli Fannar Gylfason og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.